Hestamannamót á Söndum
Basil fursti á Hvanneyri
Fagnaðarfundir. Bjarni Guðmundsson á Hvanneyri í gær; brosandi með hefti af Basil fursta.
Basil fursti á Hvanneyri
Safnadagurinn var haldinn hátíðlegur víða um land í gær sunnudaginn 8. júlí
Fjöldi fólks kom til Hvanneyrar í Borgarfirði og naut þess sem þar var í boði. Landbúnaðarsafnið og fleira var opið og ákveðinn hápunktur dagsins var sagnaganga Dýrfirðingsins Bjarna Guðmundssonar um Hvanneyrarhlöð.
Dýrfirskættaður Önfirðingur á Eyrarbakka og hjálparkokkur Vestfirska forlagsins á Þingeyri var á staðnum og eftir sagnagönguna færði hann Bjarna hefti af Basil fursta. Urðu þar fagnaðarfundir því Basil fursti var í mikum metum hjá Bjarna á fyrri tíð og er hann sérlega ánægður með þetta nýja menningarlega innslag Vestfirska forlagsins.
Fleiri myndir síðar frá sagnagöngunni á Hvanneyri
Bjarni Guðmundsson með sagnagöngu á Hvanneyri sunnudaginn 8. júlí 2012
Hvanneyri í Borgarfirði. Næst er Hvanneyrarkirkja sem teiknuð var af Dýrfirðingnum Rögnvaldi Ólafssyni sem og fleiri hús þar.
.
Bjarni Guðmundsson með sagnagöngu á Hvanneyri sunnudaginn 8. júlí 2012
.
Safnadagur 8. júlí - Mjólkursagnaganga ofl.
.
Kl. 14 verður sagnaganga um gamla skólastaðinn á Hvanneyri, þar sem m.a. má sjá sérstætt og merkilegt dæmasafn íslenskrar húsagerðarlistar frá öndverðri síðustu öld.
...
Meira
Ganga á Arnarnúp í Dýrafirði laugardaginn 7. júlí 2012
Arnarnúpur í Dýrafirði.
.
Ganga á Arnarnúp í Dýrafirði laugardaginn 7. júlí 2012
.
Ferðafélag Ísfirðinga er með göngu laugardaginn 7. júlí.
Gengið er frá Sveinseyri í Dýrafirði upp á Arnarnúp í 558 mys. Á fáum stöðum er útsýni yfir Dýrafjörð jafn stórbrotið. Göngutími er 4 klst.
Mæting er við sundlaugina á Þingeyri klukkan 9:45.
Sameinast um bíla til Þingeyrar kl. 8:45 við Íþróttahúsið á Torfnesi.
Tveggja skóa ganga. Verð 1000.
Umsjónarmaður Rögnvaldur Þór Óskarsson, sími 846 7980
Fararstjóri Þórir Örn Guðmundsson. ATHUGIÐ: SKRÁNING í síma 863-2412 .
.
.
Mjólkurfernuhús á Þingeyri
Vinnukvöld á Söndum
Lúðuveiðar og hátíðarhöld á þjóðhátíðardeginum 4. júlí 1890
Lóðirnar dregnar. Komin full doría af vænni lúðu og enn er hluti veiðafæranna í sjó.
Oft þarf að fara þrisvar-, fjórum sinnum eða jafnvel oftar út til að ná allri línunni inn.
Lúðuveiðar og hátíðarhöld á þjóðhátíðardeginum 4. júlí 1890
.
Haustið 2010 út; hjá Vestfirska forlaginu á Þingeyri, bók sem heitir Undir miðnætursól - Amerískir lúðuveiðarar við Ísland 1884-1897 eftir Jóhann Diego Arnórsson. Saga lúðuveiðaranna er mikilvægur hluti af sögu Dýrafjarðar en Þingeyrar þó sérstaklega.
Í bók sinni rekur Jóhann Diego rækilega margt af því sem tengdist hinum amerísku lúðuveiðurum, störfum þeirra, afdrifum og örlögum. Skipsbók lúðuveiðiskipsins Concord árið 1890 er afar fróðlegur kafli af mörgu merkilegu sem í bókinni er.
Hér má sjá þrjá 4. júlí .
Föstudagur 4. júlí 1890. (Fjórði júlí er þjóðhátíðardagur Bandaríkjamanna.)
Í garð er genginn hinn happasæli fjórði. Klukkan fjögur í morgun mokuðum við
út pönnu af salti og flökuðum fiskinn okkar. Þá tókum við upp og færðum okkur um
set. Vindur var þessa stundina suðvestlægur og jók ört í vindinn. Við létum þó
aðeins berast stuttan spöl og settum aftur niður akkeri. Við settum upp þjóðfánann
okkar og gengum síðan til náða. Það leit út fyrir að það ætlaði að gera einhvern rosa
í veðrinu og straumþunginn jókst.
Klukkan um sex létti svo til að við gátum sett niður færin okkar og enn dró úr.
Klukkan átta sáum við svo til amerískrar skútu á siglingu út með Hornbjargi.
Skonnortan Commonwealth er enn í sjónmáli. Þetta hefur verið sérlega þurr fjórði
en í morgun fengum við okkur einn góðan og svo aftur einn undir kvöldið svo lítil
hætta er á höfuðverk í fyrramálið. Það verður fátt um þetta að segja heima og hvað
með það? Svona lauk okkar skemmtun.
.
Bókin er til sölu í bókaverslunum um land allt og í netverslun Vestfirska forlagsins: - www.vestfirska.is
.
.