A A A
  • 1999 - Birkir Freyr Konráðsson
05.07.2012 - 22:41 | JÓH

Mjólkurfernuhús á Þingeyri

Húsið var málað í litum Dýrafjarðardaga. Myndir: Daðey Arnborg
Húsið var málað í litum Dýrafjarðardaga. Myndir: Daðey Arnborg
« 1 af 2 »
Á Dýrafjarðardögum mátti sjá margar skemmtilegar og frumlegar skreytingar í bænum. Ein af þeim var mjólkurfernuhús sem Daðey Arnborg Sigþórsdóttir setti saman og málaði í hátíðarlitunum. Fernunum er raðað í veggi líkt og múrsteinum, og þar sem fjölskyldan er enn að safna í þakið er teygjulak notað til bráðabirgða. Hver veggur er stakur svo það er auðvelt að taka húsið í sundur og geyma en það er límt saman með málningarlímbandi. Daðey segir að í rakanum og rigningunni hafi málningarlímbandið hins vegar farið illa og bendir öðrum húsagerðarmeisturum á að styrkja með glæru límbandi eftir að húsið hefur verið sett saman og málað.
« Febrúar »
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28