A A A
09.07.2012 - 22:39 | BIB

Basil fursti á Hvanneyri


Fagnaðarfundir.  Bjarni Guðmundsson á Hvanneyri í gær;  brosandi með hefti af Basil fursta.

Basil fursti á Hvanneyri

Safnadagurinn var haldinn hátíðlegur víða um land í gær sunnudaginn 8. júlí

 

Fjöldi fólks kom til Hvanneyrar í Borgarfirði og naut þess sem þar var í boði. Landbúnaðarsafnið og fleira var opið og ákveðinn hápunktur dagsins var sagnaganga Dýrfirðingsins Bjarna Guðmundssonar um Hvanneyrarhlöð.

 

Dýrfirskættaður Önfirðingur á Eyrarbakka og hjálparkokkur Vestfirska forlagsins á Þingeyri var á staðnum og eftir sagnagönguna færði hann Bjarna hefti af Basil fursta. Urðu þar fagnaðarfundir því Basil fursti var í mikum metum hjá Bjarna á fyrri tíð og er hann sérlega ánægður með þetta nýja menningarlega innslag Vestfirska forlagsins.

 

Fleiri myndir síðar frá sagnagöngunni á Hvanneyri

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30