A A A
  • 1949 - Guðberg Kristján Gunnarsson
  • 1962 - Unnur Cornette Bjarnadóttir
04.09.2008 - 00:07 | bb.is

Kristinn H. vill Dýrafjarðargöng næst

Kristinn H. Gunnarsson
Kristinn H. Gunnarsson
Kristinn H. Gunnarsson, formaður þingflokks Frjálslynda flokksins, vill ráðast í Dýrafjarðargöng eins og stendur til á næsta ári. Hann er ekki sammála því að seinka þeirri framkvæmd á kostnað ganga milli Skutulsfjarðar og Álftafjarðar. „Það má sjálfsagt hugsa sér að ráðast í þessi jarðgöng á milli Skutulsfjarðar og Álftafjarðar og það hafa verið settar fram tvær útgáfur af því verkefni og ég tel að menn hljóti að skoða það næstu árum, en ég tel að það sé ekki næsta verkefni í jarðgöngum," segir Kristinn. Aðspurður hvenær hann telji að tengingu norður og suðursvæði Vestfjarða ljúki segir Kristinn....
Meira
Núverandi byggðamerki Ísafjarðarbæjar.
Núverandi byggðamerki Ísafjarðarbæjar.
Bæjarráð Ísafjarðarbæjar hefur falið bæjarstjóra að vinna áfram að því að finna nýtt byggðamerki fyrir sveitarfélagið. Þrátt fyrir opna samkeppni í vetur um nýtt byggðamerki fyrir sveitarfélagið féllst dómsnefnd ekki á að nein tillaga uppfyllti kröfur nefndarinnar. Einhverjir hugmyndasmiðir hafa náð í sínar tillögur en ekki er hægt að senda þær til baka þar sem þær voru sendar til keppni undir dulnefni. Bæjarstjóri hefur því stungið upp á því að auglýsa að það megi ná í tillögurnar á bæjarskrifstofuna. „Það þarf að ljúka þessu máli fá nýtt byggðamerki", segir Halldór Halldórsson bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar í bréfi til bæjarráðs þar sem hann leggur til að farið verði í samkeppni í samræmi við reglur um samkeppni um merki, en slíkar reglur hefur Félag íslenskra teiknara FÍT sett.
Frá mötuneyti SKG í Grunnskólanum á Ísafirði. Mynd: bb.is
Frá mötuneyti SKG í Grunnskólanum á Ísafirði. Mynd: bb.is
Gjaldskrá mötuneyta í grunnskólum Ísafjarðarbæjar hefur hækkað talsvert frá síðasta skólaári. Í samningi Ísafjarðarbæjar við SKG veitingar er getið um að vísitöluhækka eigi samninginn einu sinni á ári samkvæmt vísitölu neysluverðs í ágúst. Undanfarin ár hefur niðurgreiðsla bæjarins einnig verið vísitöluhækkuð. Ef notast er við sömu forsendur og undanfarin ár er gjaldskrá mötuneytisins í Grunnskóla Ísafjarðar eftirfarandi: SKG verðið verður 540 krónur en niðurgreiðsla bæjarins verður 170 krónur á hverja máltíð þannig að stök máltíð til nemenda verður 370 krónur. Einn mánuður mun þá kosta 9.882 krónur ef gengið er út frá 18,6 dögum að jafnaði í mánuði. Haustönnin mun því kosta 24.087 krónur og vorönn 30.969 krónur....
Meira
Grunnskólinn á Þingeyri.
Grunnskólinn á Þingeyri.
„Starfið leggst alveg prýðilega í mig", segir Bogi Ragnarsson, nýr skólastjóri Gunnskólans á Þingeyri. „Starfsandinn er einstakur og maður finnur það strax að manni muni líða vel hér. Skólastarfið er í góðu horfi og því ekki annað að sjá en starfsemin muni ganga vel í vetur." Bogi tekur við af Ellerti Erni Erlingssyni sem sinnt hefur skólastjórastöðunni frá því í júlí 2003. Bogi hefur töluverða reynslu af kennslu, hefur kennt í grunnskólum í Kópavogi auk Fjölbrautaskóla Suðurlands og Háskóla Íslands. Hann er frá Reykjavík og er ættaður að austan en fyrir ættfræðiþyrsta má geta þess að hann getur rakið ættir sínar vestur....
Meira
28.08.2008 - 00:23 | bb.is

Varað við stormi á Vestfjörðum

Eins og sjá má á meðfylgjandi úrkomuspá Veðustofunnar verður mikil úrkoma og sterkur vindur með morgninum.
Eins og sjá má á meðfylgjandi úrkomuspá Veðustofunnar verður mikil úrkoma og sterkur vindur með morgninum.
Veðurstofa Íslands hefur gefið út viðvörun vegna storms sem gengur yfir landið vestanvert í nótt og fyrramálið. Á Vestfjörðum er búist við norðaustan 18-23 m/s og talsverðri rigningu í fyrramálið, en hægari seint á morgun. Af því tilefni vill Slysavarnafélagið Landsbjörg brýna fyrir fólki að gera ráðstafanir svo hægt sé að koma í veg fyrir tjón og óþægindi er vilja fylgja slíku veðri: „Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar eru ætíð tilbúnar til að aðstoða fólk sem lendir í vandræðum vegna óveðurs. Hafa þær yfir að ráða sérstökum "óveðursbúnaði" sem nýtist í slíkum aðstæðum. Þurfi fólk á aðstoð þeirra að halda má hringja í Neyðarlínuna - 112 eftir hjálp....
Meira
28.08.2008 - 00:20 | bb.is

Tímabundin fjölgun atvinnulausra

Orsökin fyrir fjölgun á skrá Vinnumálastöðvunar yfir atvinnulausa á Vestfjörðum er vinnslustöðvun í fiskvinnslunni Vísi á Þingeyri. Mynd: Mats.
Orsökin fyrir fjölgun á skrá Vinnumálastöðvunar yfir atvinnulausa á Vestfjörðum er vinnslustöðvun í fiskvinnslunni Vísi á Þingeyri. Mynd: Mats.
Tuttugu og fimm eru skráðir án atvinnu á Vestfjörðum, samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar og hefur þeim fjölgað nokkuð frá því í lok júlí er atvinnuleysi á Vestfjörðum mældist 0,1%. Auður Matthíasdóttir á Svæðisvinnumiðlun Vestfjarða hefur þó ekki áhyggjur og segir fjölgunina vera tímabundna. „Þetta stafar aðallega vegna langtíma vinnslustöðvunar hjá fiskvinnslunni Vísi á Þingeyri. Þeir ætla hins vegar að hefja starfsemi fljótlega á ný og þá verðum við með lága tölu aftur." Auður segir atvinnuástandið vera mjög gott á Vestfjörðum en eins og fram hefur komið var atvinnuleysi í júlí lægsta hlutfall af áætluðum mannafla á Vestfjörðum síðan í maí 1991 samkvæmt tölum frá Vinnumálastofnun....
Meira
Úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2006/2007 er nú loksins lokið.
Úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2006/2007 er nú loksins lokið.
Úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2006/2007 er nú loksins lokið, heilu ári eftir að viðkomandi fiskveiðiári lauk. Í tilkynningu frá Fiskistofu dagsett 8. ágúst segir að 82% byggðakvótans hafi verið ráðstafað og það sem eftir stóð var skipt á milli þeirra sem rétt höfðu á úthlutun, samkvæmt reglugerð. Margar útgerðir hafa átt erfitt með að uppfylla skilyrði laga og reglugerða um byggðakvóta, einkum það skilyrði að landa afla til vinnslu innan byggðarlagsins. Nýlega framlengdi fiskistofa umsóknarfrest um byggðakvóta 2007/2008 fram til 1. september í flestum byggðarlögum. Það er því ljóst að úthlutun fyrir það fiskveiðiár verður líka seint á ferðinni. Úthlutun Fiskistofu á byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2006/2007 til einstakra báta og byggðarlaga er birt á heimasíðu Fiskistofu. Þar eru meðal annars þessar upplýsingar:...
Meira
Bæjarráð Ísafjarðarbæjar telur jarðgöng milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar vera nauðsynlega samgöngubót sem nýtist best við að styrkja byggð á Vestfjörðum.
Bæjarráð Ísafjarðarbæjar telur jarðgöng milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar vera nauðsynlega samgöngubót sem nýtist best við að styrkja byggð á Vestfjörðum.
Bæjarráð Ísafjarðarbæjar skorar á samgönguráðherra að vinna í samræmi við samþykkta samgöngustefnu Vestfirðinga sem að grunni til var samþykkt á fjórðungsþingi Vestfirðinga árið 1997 og hefur verið staðfest á síðari fjórðungsþingum. Þetta kemur fram í bókun sem samþykkt var á bæjarráðsfundi í gær. Þar segir: „Stefnan er sú að leggja fullkominn heilsársveg um Djúp og Arnkötludal inn á þjóðveg nr. 1 og fullkominn heilsársveg um Barðastrandasýslu inn á þjóðveg nr. 1. Opna síðan fullkominn heilsársveg milli norðan- og sunnanverðra Vestfjarða með göngum milli Dýrafjarðar og V-Barðastrandasýslu....
Meira
Eldri færslur
« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31