A A A
  • 1950 - Margrét Guðjónsdóttir
  • 1955 - Angantýr Valur Jónasson
28.08.2008 - 00:20 | bb.is

Tímabundin fjölgun atvinnulausra

Orsökin fyrir fjölgun á skrá Vinnumálastöðvunar yfir atvinnulausa á Vestfjörðum er vinnslustöðvun í fiskvinnslunni Vísi á Þingeyri. Mynd: Mats.
Orsökin fyrir fjölgun á skrá Vinnumálastöðvunar yfir atvinnulausa á Vestfjörðum er vinnslustöðvun í fiskvinnslunni Vísi á Þingeyri. Mynd: Mats.
Tuttugu og fimm eru skráðir án atvinnu á Vestfjörðum, samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar og hefur þeim fjölgað nokkuð frá því í lok júlí er atvinnuleysi á Vestfjörðum mældist 0,1%. Auður Matthíasdóttir á Svæðisvinnumiðlun Vestfjarða hefur þó ekki áhyggjur og segir fjölgunina vera tímabundna. „Þetta stafar aðallega vegna langtíma vinnslustöðvunar hjá fiskvinnslunni Vísi á Þingeyri. Þeir ætla hins vegar að hefja starfsemi fljótlega á ný og þá verðum við með lága tölu aftur." Auður segir atvinnuástandið vera mjög gott á Vestfjörðum en eins og fram hefur komið var atvinnuleysi í júlí lægsta hlutfall af áætluðum mannafla á Vestfjörðum síðan í maí 1991 samkvæmt tölum frá Vinnumálastofnun.

Meðalfjöldi atvinnulausra í mánuðinum voru þrír, tveir karlar og ein kona.. Atvinnuleysi á landinu í heild var 1,1% í júlí minnst á Vestfjörðum en mest á Suðurnesjum þar sem atvinnuleysi var 2,5%. Á vef Svæðisvinnumiðlunar er 21 stöðugildi í 11 starfsgreinum í boði.

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30