Skora á ráðherra að halda sig við samþykkta samgöngustefnu
Þessi stefnumótun er að mestu leyti staðfest í gildandi samgönguáætlun Alþingis og í byggðaáætlun sem samþykkt er af Alþingi þar sem Ísafjörður er skilgreindur sem byggðakjarni fyrir Vestfirði.
Bæjarráð Ísafjarðarbæjar sér ekki ástæðu til þess að breyta þessari samþykkt að öðru leyti en því að mikil þörf er á því að hraða verkefnum mjög frá því sem nú er, þannig að þessari nauðsynlegu samgöngubót ljúki eigi síðar en árið 2011 með göngum milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar og að í framhaldi komi fullkomin tenging úr Arnarfirði til byggða í V-Barðastrandasýslu. Ekki má draga þessar samgöngubætur lengur því fjölmörg verkefni til viðbótar bíða.
Bæjarráð Ísafjarðarbæjar telur þessa stefnu nýtast Vestfirðingum best við að tengja saman byggðirnar til aukinna viðskipta og samskipta af öllum toga. Þannig verði byggð best styrkt á Vestfjörðum."