Innritun í Listaskóla Rögnvaldar Ólafssonar
Tónlistarkennsla, danskennsla og ýmiskonar námskeið.
Skrifstofa skólans er opin alla daga frá kl. 9:00 - 16:00 og allar upplýsingar má finna á heimasíðu skólans www.edinborg.is og í síma 456 5444...
Meira
Hinn tvíárlegi bæklingur um íþróttir og tómstundir í Ísafjarðarbæ er kominn út á heimasíðu bæjarins, undir „útgefið efni“ – „íþrótta- og tómstundamál“. Bæklingurinn er farinn í prentun og verður dreift í öll hús í sveitarfélaginu í þessari viku.
Bæklinginn má einnig nálgast með því að smella beint á slóðina:
http://www.isafjordur.is/utgefid_efni/ithrotta-_og_tomstundamal/skra/917
...Ekki er á sjónvarpið logið þegar það tekur sig til. Þátturinn Íslendingar er aldeilis frábær yfirleitt undir öruggri handleiðslu Andrésar Indriðasonar. Í gær var það hinn merki stjórnmálamaður Gylfi Þ. Gíslason. Um daginn Herdís Þorvaldsdóttir leikkona. Gylfi var yfirburðamaður. Það sáu menn vel þegar hann var ráðherra og eftir það. Ennþá betur sást það þegar hann var farinn heim. Eins og oft er með afburðamenn.
„Hann var yfirlætislaus heimsmaður, þjóðrækinn höfðingi og alþýðlegur; öðlingur, vel borinn viti; góðgjarn og forvitinn um allt sem mátti vel fara; fús að færa til hins betra flest.“ Svo sagði Thor Vilhjálmsson um dr. Gylfa.
...Baktal
Á meðan Guðbjartur vagnstjóri Jónsson rak Vagninn á Flateyri, seldi hann mat kostgöngurum jafnt sem gestum og gangandi. Sumar eitt kom burtfluttur Flateyringur, Grétar Snær Hjartarson, inn á Vagninn laust eftir hádegið og var Guðbjartur þá að taka til eftir matinn. Grétar segir við Guðbjart að hann hafi heyrt að fólki líki mjög vel maturinn hjá honum. Guðbjartur svarar:
...Á nýafstöðnum aðalfundi Skógræktarfélags Íslands ræddi Þórarinn Ingi Pétursson, formaður Landssambands sauðfjárbænda, um hvort saman færi skógrækt og sauðfjárrækt. Niðurstaða hans var sú að þetta gæti vel farið saman og gerði það víða nú þegar, þar sem sjálfbær beit birkiskóglendis væri stunduð. Þórarinn nefndi öflugt landbótastarf bændanna á Daðastöðum í Öxarfirði sem dæmi en minntist einnig á að birkið væri í sókn á heimaslóðum hans í Grýtubakkahreppi þrátt fyrir beit.
Þegar rætt er um beit og skógrækt eða aðra landgræðslu hitnar gjarnan í kolunum því sitt sýnist hverjum.
...Við fórum á þvottaplanið hjá henni Diddu á Þingeyri í gær að skola af kappakstursbíl forlagsins . Það er eitthvað sem maður verður auðvitað að gera öðru hvoru. Þar hittum við fyrir þrjá gegnheila Vestfirðinga í sömu erindum. Þá var það rifjað upp, að þegar Vestfirska forlagið var komið með áletrun sína á laglegan fólksbíl, Mitsubishi Outlander, hjá léttadrengnum, sagði Hemmi Gunn:
„Nú, það er bara svona! Kominn á kappakstursbíl! Þú verður þá að koma þér upp dekkjagengi inn við Dýrafjarðarbrú þegar þú ferð á Ísafjörð eins og þeir í Formúlunni. Þá ískrar nú í hjá kalli.“
Meðal þeirra sem voru á þvottaplaninu:
...