A A A
  • 1999 - Birkir Freyr Konráðsson
25.08.2015 - 09:06 | BIB,Safnahúsið á Ísafirði

Uppskeruhátið sumarlesturs Bókasafnsins

Safnahúsið á Ísafirði sem Eyrbekkingurinn Guðjón Samúelsson teiknaði. Ljósm.: BIB
Safnahúsið á Ísafirði sem Eyrbekkingurinn Guðjón Samúelsson teiknaði. Ljósm.: BIB

Á morgun, miðvikudaginn 26. ágúst 2015 kl. 16:00 verður haldin uppskeruhátið sumarlesturs Bókasafnsins á Ísafirði.
Allir sem tóku þátt fá viðurkenningaskjal og glaðning. Nöfn átta þátttakenda sem mæta á uppskeruhátíðina verða dregin úr lukkupottinum og eru bækur í verðlaun. Við hvetjum alla sem hafa verið með í sumarlestrinum að mæta á uppskeruhátíðina!

Sumarlesturinn er fyrir grunnskólabörn 12 ára og yngri og var nú í boði níunda sinn. Til að vera með þarf að mæta með skírteini á Bókasafnið og fá lánaðar bækur til að lesa. 

« Febrúar »
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28