A A A
  • 1975 - Marta Sierzputowska
  • 1995 - Salóme Björt Kjerúlf
  • 1997 - Heiðdís Birta Jónsdóttir
  • 1997 - Hafdís Katla Jónsdóttir
28.08.2015 - 07:14 | Hallgrímur Sveinsson

Eiríkur Þorsteinsson kaupfélagsstjóri kvaddur

Eiríkur kaupfélagsstjóri kvaddur 1960. Auk Eiríks má þekkja meðal annars  séra Stefán Eggertsson, Rögnvald Sigurðsson, sem tók við af Eiríki sem kaupfélagsstjóri, Önnu Guðmundsdóttur, eiginkonu Eiríks, Jóhannes Davíðsson, stjórnarformann, Valdimar Kristinsson á Núpi, síðar stjórnarformann og eiginkonu hans, Áslaugu Jensdóttur. Ljósm. Þórir H. Óskarsson.
Eiríkur kaupfélagsstjóri kvaddur 1960. Auk Eiríks má þekkja meðal annars séra Stefán Eggertsson, Rögnvald Sigurðsson, sem tók við af Eiríki sem kaupfélagsstjóri, Önnu Guðmundsdóttur, eiginkonu Eiríks, Jóhannes Davíðsson, stjórnarformann, Valdimar Kristinsson á Núpi, síðar stjórnarformann og eiginkonu hans, Áslaugu Jensdóttur. Ljósm. Þórir H. Óskarsson.

Svipmyndir úr sögu Kaupfélags Dýrfirðinga 2.


 Þegar Eiríkur Þorsteinsson kaupfélagsstjóri var kvaddur 1960 var haldið heilmikið hóf í Félagsheimlinu á Þingeyri. Þá var meðfylgjandi mynd tekin.


Auk Eiríks má þekkja meðal annars  séra Stefán Eggertsson, Rögnvald Sigurðsson, sem tók við af Eiríki sem kaupfélagsstjóri, Önnu Guðmundsdóttur, eiginkonu Eiríks, Jóhannes Davíðsson, stjórnarformann, Valdimar Kristinsson á Núpi, síðar stjórnarformann og eiginkonu hans, Áslaugu Jensdóttur.

...
Meira
27.08.2015 - 21:27 | Hallgrímur Sveinsson

Vel vaxinn niður

Ísborg ÍS 250
Ísborg ÍS 250
« 1 af 2 »

Einn góður frá Ísafirði
Einar Jóhannsson skipstjóri og síðar hafnsögumaður á Ísafirði var harður karl og skemmtilegur, hávær, kjaftfor og góður að svara fyrir sig. Einar var lengi skipstjóri á síðutogaranum Ísborgu ÍS 250. Einnig var hann með Sólborgu ÍS 260 síðasta árið sem hún var gerð út. Og svo seinna með Framnesið á Þingeyri.


            Einari þótti gaman að renna fyrir lax og fór hann eitt sinn sem oftar til laxveiða í Laugardalsá í Ísafjarðardjúpi. Með honum voru Kristinn sonur hans og Sigurður Sigurðsson, Blóma-Siggi, þá smástrákar. Engin veiði var í ánni í þetta sinn. Á þessum tíma fylgdi veiðileyfinu í ánni ekki leyfi til veiða í Laugardalsvatni.

...
Meira
27.08.2015 - 16:25 | Vestfirska forlagið,Hallgrímur Sveinsson,Björn Ingi Bjarnason

Einar Sigurðsson, Einsi nikk

Einar Sigurðsson í einkennisbúningi sínum í K. D.
Einar Sigurðsson í einkennisbúningi sínum í K. D.
« 1 af 2 »

Svipmyndir úr sögu Kaupfélags Dýrfirðinga 1:


Einar Sigurðsson (26. jan. 1910 - 28. marz 1977) er mörgum minnisstæður. Hann var einn af þessum trúföstu og lipru starfsmönnum K. D. í áratugi. Utan-og innanbúðarmaður í versluninni. Hann kom aðeins við sögu hjá honum Emli Hjartarsyni í skemmtilegri sögu um daginn á Þingeyrarvefnum.
Ástæðan fyrir því að Einar var kallaður Einsi nikk var sú,

...
Meira
27.08.2015 - 10:52 | BIB,bb.is

Víkingahátíð í Haukadal

Haukadalur í Dýrafirði.
Haukadalur í Dýrafirði.
Laugardaginn, 5. september 2015, verður haldin Víkingahátíð í Haukadal í Dýrafirði og hefst hún kl. 14:00.
Þar verður ýmislegt víkingalegt sér til gaman gert, víkingar vinna að sínu handverki, eldsmiðir að störfum, boðið á hestbak, farið í gönguferð í fótspor Gísla Súrssonar og spákona lítur í framtíð gesta. Félagar úr víkingafélaginu Rimmugýgur verða á svæðinu og sýna bardagalistir að hætti víkinga. Víkingatónlist ómar um allan dal og hátíðinni lýkur loks með hringdansi víkinga á öllum aldri um kl. 18:00...
Meira
27.08.2015 - 06:34 | Landbúnaðarsafnið á Hvanneyri,Bjarni Guðmundsson,BIB

... það var í ágúst að áliðnum slætti ...

Hvanneyri í Borgarfirði.
Hvanneyri í Borgarfirði.
« 1 af 3 »
Það líður á sumar, fyrsta sumar hinnar nýju sýningar Landbúnaðarsafnsins í Halldórsfjósi á Hvanneyri.  Anna Heiða Baldursdóttir sagnfræðingur frá Múlakoti hefur tekið á móti gestum safnsins seinni hluta sumarsins og farist það vel úr hendi.

Fyrsta reynsla af sýningunni á "nýja" staðnum er góð. Sýningin fær afar lofsamleg ummæli - einkum þykir gestum efni sýningarinnar falla vel að hinu virðulega nær 90 ára fjósi. Það er líkt og fjósið hefi beðið eftir þessum söguríku safngripum.

...
Meira
Guðni Ágústsson afhjúpar hér minnisvarðann um Ólaf Þ. Þórðarson á Stað í Súgandafirði. Arinbjörn, sonur Ólafs, aðstoðar.
Guðni Ágústsson afhjúpar hér minnisvarðann um Ólaf Þ. Þórðarson á Stað í Súgandafirði. Arinbjörn, sonur Ólafs, aðstoðar.
« 1 af 2 »
Hið árlega rjómaball bænda verður haldið á Núpi í Dýrafirði á laugardagskvöld, 29. ágúst 2015. 
Rjómaballið er uppskeruhátíð bænda á starfssvæði Búnaðarsamtaka Vestfjarða. Veislunni stjórnar enginn annar en bændahöfðinginn og fyrrverandi landbúnaðarráðherra, Guðni Ágústsson. Rjómaballið er nú haldið í 27. sinn. Upphaflega var ballið samstarfsverkefni afurðastöðva á svæðinu en nú er það Félag kúabænda í Ísafjarðarsýslum sem sér um skemmtunina...
Meira
26.08.2015 - 08:22 | Hallgrímur Sveinsson

Horft til fjalla í Dýrafirði

Snjóalög á Glámuhálendinu upp af botni  Dýrafjarðar. Ljósm.: H.S.
Snjóalög á Glámuhálendinu upp af botni Dýrafjarðar. Ljósm.: H.S.
Meðf. mynd var tekin 24. ágúst 2015. Hún sýnir glöggt snjóalög á Glámuhálendinu upp af botni  Dýrafjarðar. Þetta eru náttúrlega feykileg snjóalög. Aðeins sést í veginn fyrir botn Dýrafjarðar, sem opnaðist 1954. 
Segja má að það sé ein af furðum náttúrunnar að vegurinn skuli ekki vera opinn að sumrinu fyrir gesti og gangandi. Líklega er skýringin sú að við erum að fara út í ferðamennsku. ...
Meira
25.08.2015 - 16:26 | Vestfirska forlagið,Björn Ingi Bjarnason

Vinningshafar í verðlauna krossgátu Vestfirska forlagsins og Sunnlenska fréttablaðsins

Grétar B. Þorsteinsson á Selfossi er einn vinningshafa. Ljósm.: BIB
Grétar B. Þorsteinsson á Selfossi er einn vinningshafa. Ljósm.: BIB
« 1 af 5 »

Nokkrir vinir Hafliða Magnússonar á Suðurlandi heiðruðu minningu hans með samkomu í Bókakaffinu á Selfossi á 80 ára afmælisdegi hans þann 16. júlí sl. en Hafliði lést 25. júní 2011.


Á afmælisdeginum kom verðlauna krossgáta í Sunnlenska fréttablaðinu eftir Hafliða  en hann samdi mjög  vinsælar krossgátur fyrir blaðið í um áratug.


Vestfirska forlagið á Þingeyri gaf bækur til verðlauna í krossgátunni en Hafliði var dugmikill liðsmaður forlagsins alla tíð.
Dregið hefur veriðúr innsendum lausnum og þessir eru vinningshafar:

...
Meira
Eldri færslur
« Janúar »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31