A A A
  • 1986 - varð kjarnorkuslysið í Tsjernóbyl
11.03.2010 - 22:32 | JÓH

Frumsýning á morgun

Simbahöllin opnar eftir leiksýningar í mars
Simbahöllin opnar eftir leiksýningar í mars
Leikverkið Eikin ættar minnar verður frumsýnt í Félagsheimilinu á Þingeyri á morgun og er miðasala í fullum gangi. Leikritið segir frá klerknum Ólafi Jónssyni sem var fæddur á Tálknafirði en varð prestur á Söndum í Dýrafirði árið 1596 og til æviloka. Ólafur þjónaði á Söndum samfellt í 31 ár og andaðist þar árið 1627. Ólafur er eitt af fyrstu tónskáldum Íslandssögunnar og var meðal vinsælustu og virtustu skálda þjóðarinnar á sínum tíma, og er því við hæfi að gera þessu höfuðskáldi góð skil á heimaslóðum. Höfundur og leikstjóri verksins er Elfar Logi Hannesson og tónlistarstjóri er Krista Sildoja sem einnig sér um tónlistarflutning. Eftir allar sýningarnar í mars verður opið í Simbahöllinni, allir ættu því að geta átt ljúfa kvöldstund í Dýrafirðinum.
Upplýsingar um sýningar er að finna í atburðadagatalinu og miðasala er í s. 848 4055.
10.03.2010 - 15:43 | Tilkynning

Kaffidagur Dýrfirðingafélagsins

Allur ágóði af veitingasölu Kaffidagsins fer í sjóð sem veitt er úr til góðra málefna í Dýrafirði. Mynd: Davíð Davíðsson
Allur ágóði af veitingasölu Kaffidagsins fer í sjóð sem veitt er úr til góðra málefna í Dýrafirði. Mynd: Davíð Davíðsson
Kaffidagurinn verður haldinn í Fella- og Hólakirkju (Hólabergi 88 í Breiðholtinu, í næsta nágrenni Menningarmiðstöðvarinnar Gerðubergs) sunnudaginn 14 mars n.k. Sú hefð hefur skapast að Dýrfirðingar hafa fjölmennt í messu sem hefst kl. 14:00 og síðan verður sala á kaffi og meðlæti strax á eftir eða um kl. 15:00. Kaffinefnd félagsins, skemmtinefnd og stjórn leggja til kökur, brauð og fleira góðgæti til að hafa með kaffinu. Ef einhverja fleiri langar til að leggja þeim lið þá er það afskaplega vel þegið. Við minnum á að við erum ekki posavædd svo munið eftir reiðufénu!......
Meira
10.03.2010 - 15:40 | BB.is

Buðu nágrönnum sínum í heimsókn

Dýrfirðingar kynntu sér félagsstarf eldri borgara á Flateyri.
Dýrfirðingar kynntu sér félagsstarf eldri borgara á Flateyri.
Þátttakendur í félagsstarfi eldri borgara á Flateyri buðu nágrönnum sínum frá Þingeyri í heimsókn á dögunum. Tuttugu manna hópur frá félagsstarfi eldri borgara á Þingeyri kynnti sér starfsemina á Flateyri. „Við skoðuðum dúkkusafnið og vinnuaðstöðuna hjá þeim og fengum fínt kaffi og með því," Ásta Kristjánsdóttir umsjónarmaður félagsstarfsins á Þingeyri. Dýrfirðingar sóttu um styrk til Rauða krossins sem bauð upp á rútuferð fyrir ferðalangana. Ásta segir félagsstarfið á Þingeyri vera mjög fjölmennt. „Við erum frá 18-25 sem tökum þátt í starfinu á Þingeyri. Á Flateyri eru þau 7-10."
08.03.2010 - 19:14 | BB.is

Námsfúsar konur

Á myndinni eru þær sex konur sem luku öllu náminu, auk eins þeirra sem tók einstaka námsþætti ásamt Smára Haraldssyni forstöðumanni Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða.
Á myndinni eru þær sex konur sem luku öllu náminu, auk eins þeirra sem tók einstaka námsþætti ásamt Smára Haraldssyni forstöðumanni Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða.
Þrjú hundruð kennslustunda námi Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða, samkvæmt einni af námsskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins lauk á Þingeyri á dögunum en námið hófst í janúar 2009. Sex konur luku öllu náminu, en nokkuð fleiri tóku einstaka námsþætti. Áður höfðu þær sex sem voru útskrifaðar lokið öðru 300 kennslustunda námi, sem einnig var á vegum Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða. Það nám hófst vorið 2008. Þær voru því að ljúka 600 kennslustunda námi. Allt þetta nám er heimilt að meta á móti námi við framhaldsskóla. Um kennsluna sáu að mestu leyti þau Björn Hafberg, Jónína Hrönn Símonardóttir, Rakel Brynjólfsdóttir og Sonja Thompson og hlutu þau öll mikið lof fyrir kennsluna.
Íþróttafélagið Höfrungur sýndi leik- og söngverkið Dragedúkken í fyrra
Íþróttafélagið Höfrungur sýndi leik- og söngverkið Dragedúkken í fyrra
Það er mikið líf og fjör í leiklistarlífinu á Þingeyri þessa dagana því þar er verið að æfa nýtt vestfirskt leikverk. Leikverkið tengist sögu Dýrafjarðar og má því segja að hér séu heimamenn að halda áfram að fjalla um eigin sögu en í fyrra settu þau á svið leikverkið Dragedúkken sem sló heldur betur í gegn. Leikurinn sá gerist í lok átjándu aldar og fjallar um kaupmanninn og tónskáldið Andreas Steenbach á Þingeyri. Nú er haldið enn lengra aftur í aldir því nýja leikverkið gerist í lok sextándu aldar og upphafi þeirra sautjándu. Leikurinn nefnist Eikin ættar minnar, af séra Ólafi á Söndum. Klerkurinn Ólafur Jónsson var mjög merkur maður fæddur um 1560 á Tálknafirði en varð prestur á Söndum í Dýrafirði 1596 og til æviloka......
Meira
04.03.2010 - 00:12 | Tilkynning

Simbahöllin opin um helgina

Simbahöllin verður opin um helgina
Simbahöllin verður opin um helgina
Simbahöllin verður opin frá kl. 21 á föstudagskvöldið 5. mars. Guðrún Snæbjörg Sigþórsdóttir leikur og syngur frá kl. 22.
Laugardaginn 6. mars verður kaffihúsið opið frá kl. 14 - 18. Belgískar vöfflur, kökur, kaffi, heitt súkkulaði og fleira

 

Málverk eftir Einar Birgirsson verða til sýnis.



24.02.2010 - 00:02 | Tilkynning

Grímuball

Grímuball verður 27. febrúar í Félagsheimilinu
Grímuball verður 27. febrúar í Félagsheimilinu
Grímuball verður haldið í Félagsheimilinu á Þingeyri laugardaginn 27. febrúar kl: 16:00 - 18:00. Diskó, léttar veitingar og fjör.

 

Aðgangseyrir: 400 kr. fyrir alla í búning + happdrættismiði.
600kr. fyrir þá sem koma ekki í búning + happdrættismiði.
Auka happdrættismiðar kr. 100.
Skemmtilegir vinningar!

Búningaleiga verður opin í kaffisal félagsheimilisins á fimmtudaginn 25. febrúar kl: 18:00 - 20:00.
Verð: 1 búningur 500 kr./ 2 búningar 750 kr./3 búningar 1000 kr.o.s.frv.

 

Sjáumst hress og kát í grímustuði.
Allur ágóði rennur í útskriftarferðina okkar í vor.

Með kveðju 10.bekkur G.Þ.

16.02.2010 - 22:56 | BB.is

Hafa spilað golf frá áramótum

Svona var um að litast á Meðalsvelli í Dýrafirði á laugardag.
Svona var um að litast á Meðalsvelli í Dýrafirði á laugardag.
Kylfingar hafa nýtt sér veðurblíðuna í Dýrafirði að undanförnu en hægt hefur verið að spila golf á Meðaldalsvelli það sem af er ári, eða þar til í gær. „Þeir hörðustu á Ísafirði og nokkrir héðan hafa ekki lagt frá sér kylfurnar. Það hefur nánast verið hægt að spila samfleytt frá áramótum, " segir Jóhannes K. Ingimarsson formaður Golfklúbbsins Glámu. Hann bætir þó við að ekki sé útlit fyrir að hægt verði að spila golf á næstunni miðað við veðurspána en það snjóaði töluvert í Dýrafirði í nótt. Aðspurður hvort að völlurinn þoli svona veðráttu segir Jóhannes að það ætti að vera í lagi. „Það er vissulega ekki gott ef allt er autt og frystir mikið, þá er betra að hafa snjóinn til að verja völlinn. En þetta reddast sjálfsagt allt saman."
Eldri færslur
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30