... það var í ágúst að áliðnum slætti ...
Fyrsta reynsla af sýningunni á "nýja" staðnum er góð. Sýningin fær afar lofsamleg ummæli - einkum þykir gestum efni sýningarinnar falla vel að hinu virðulega nær 90 ára fjósi. Það er líkt og fjósið hefi beðið eftir þessum söguríku safngripum.
Breytingar verður á opnunartíma Ullarsels og safns um næstu mánaðamót.
Í þar íðustu viku kom stjórn Bændasamtaka Íslands í heimsókn. Fyrir nokkru komu 25 sauðfjárbændur frá Oppdal, skoðuðu safnið og fræddust um íslenskan landbúnað að fornu og nýju og fleiri erlendir hópar hafa kíkt við; bandarískir, þýskir, hollenskir.
Já og vestfirskir skógarbændur litu við á dögunum...
Þannig hefur verið nóg að snúast. Þegar hafa allmargir og stórir hópar boðað komu sína í safnið á næstu vikum, innlendir og erlendir.
Við merkjum því glögglega hinn aukna ferðamannastraum.