02.07.2017 - 09:18 | Vestfirska forlagið,Morgunblaðið,Hallgrímur Sveinsson,Björn Ingi Bjarnason
Hafliði Magnússon (1935 - 2011) við fossin Dynjanda í Arnarfirði árið 2009. Ljósm.: Björn Ingi Bjarnason.
Hafliði Magnússon (1935 - 2011) framan við bæ Jóns Sigirðssonar á Hrafnseyri árið 2009. Ljósm.: Björn Ingi Bjarnason.
Hafliði Þórður Magnússon, rithöfundur frá Bíldudal, fæddist 16. júlí 1935 í Hergilsey á Breiðafirði. Hann lést 25. júní 2011 á heimili sínu á Selfossi.
Foreldrar hans voru Bentína Kristín Jónsdóttir og Magnús Einarsson.
Eftirlifandi sambýliskona Hafliða er Eva Þórarinsdóttir frá Suðureyri, foreldrar hennar voru Þórarinn Brynjólfsson og Guðrún Markúsdóttir.
Systkini Hafliða: sammæðra Elísabet Matthildur Árnadóttir, f. 1924. Alsystkini: Sigríður, f. 1927, Óskar, f. 1933, d. 2010, tvíburasystir Hafliða, Guðlaug Ásta, f. 1935, d. 2007, Ásdís Guðrún, f. 1940, d. 1996.
Hafliði eignaðist tvær dætur, Björk og Sóldögg. Eiginmaður Bjarkar er Magnús B. Óskarsson, börn þeirra eru Soffía Karen og Óskar. Eiginmaður Sóldaggar er Jonatan Hertel, þeirra börn eru Dagur Nikolaj, Apríl Sól og Nína Björk. Eva á tvær dætur, Jónu Vigdísi, eiginmaður hennar er Sigþór Þórarinsson, þau eiga sex syni, og Unu Rós, fyrrverandi eiginmaður hennar er Pétur Einarsson, þau eiga fjögur börn.
...
Meira