A A A
  • 1973 - Björn Henry Kristjánsson
  • 1999 - Friðfinnur Sigurður Sigurðsson
27.06.2017 - 20:02 | Vestfirska forlagið,Dýrafjarðardagar,Björn Ingi Bjarnason

Gísli á Uppsölum verður á Dýrafjarðardögum

Elfar Logi sem Góisli á Uppsölum.
Elfar Logi sem Góisli á Uppsölum.
Hin einstaka og rómaða sýning Kómedíuleikhússins um einbúan Gísla á Uppsölum verður á Dýrafjarðardögum í ár. Láttu þessa sýningu ekki framhjá þér fara. 

Sýningin er sunnudaginn 2. júlí 2017 kl. 15:00 í Félagsheimilinu á Þingeyri. 

Sýningin er innifalin í armbandi Dýrafjarðardaga en miðaverð á sýninguna er 3.500 kr....
Meira
27.06.2017 - 13:50 | Vestfirska forlagið,Dýrafjarðardagar,Björn Ingi Bjarnason

Gíslastaðir í Haukadal

Opið hús á Dýrafjarðardögum.
Opið hús á Dýrafjarðardögum.
« 1 af 2 »
Gíslastaðir í Haukadal er nýr viðkomustaður, á gömlum grunni, í Haukadal í Dýrafirði. 

Þar verður opið hús á Dýrafjarðardögum laugardag og sunnudag frá kl. 13:00 til kl. 16:00...
Meira
27.06.2017 - 12:12 | bb.is,Björn Ingi Bjarnason,Vestfirska forlagið

VEISLA FYRIR HARMONIKUUNNENDUR

Landsmót Sambands íslenskra harmonikuunnenda verður haldið á Ísafirð
Landsmót Sambands íslenskra harmonikuunnenda verður haldið á Ísafirð
Á helginni verður sannkölluð veisla fyrir unnendur ástsælasta hljóðfæris landsmanna þegar 13. landsmót Sambands íslenskra harmonikuunnenda verður haldið á Ísafirði.
Fjöldi dansleikja og tónleika verða í boði og á fimmtudagskvöld byrja harmonikkuleikarar að þenja nikkur sínar á dansleikjum á Húsinu, í Krúsinni og í Edinborg. 
Dansleikirnir hefjast kl. 21 og standa til kl. 01. ...
Meira
27.06.2017 - 07:12 | Hallgrímur Sveinsson,Vestfirska forlagið

Haldið til haga: - Ölsteinninn á Hrafnseyrardal

Ölsteinn á miðjum Hrafnseyrardal. Ljósm. H. S.
Ölsteinn á miðjum Hrafnseyrardal. Ljósm. H. S.
Ölsteinn á miðjum Hrafnseyrardal. 
Hér áðu menn í gamla daga og fengu sér sopa af nestinu sínu er þeir komu úr kaupstað.
Skarphéðinn Njálsson sagði frá því að hann hefði farið nokkrar ferðir yfir Hrafnseyrarheiði með Gunnlaugi lækni Þorsteinssyni frá Þingeyri. Þá var stoppað við Ölstein. Þar fékk Gunnlaugur læknir sér einn lítinn og sagði: „Nú á maður að skála við Ölsteininn.“ Hann fékk sér bara einn sopa, sagði Skarphéðinn. ...
Meira
26.06.2017 - 13:22 | Vestfirska forlagið,Dýrafjarðardagar,Björn Ingi Bjarnason

Dýrafjarðardagar 2017 - Dagskrá

Dýrafjarðardagar 30. júní - 2. júlí 2017.
Dýrafjarðardagar 30. júní - 2. júlí 2017.

Dýrafjarðardagar 2017 verða haldnir dagana 30. júní - 2. júlí 2017

FÖSTUDAGURINN 30. JÚNÍ
17:00 - 22:00 Íslandsmót í strandblaki – stigamót
*18:00 Setning hátíðarinnar í Bjarnaborg (niðri við höfn)
*19:15 „Minningar úr Dýrafirði – nokkrar myndyrðingar“ í Grunnskólanum. Opnun myndlistarsýningar Bjarna Guðmundssonar frá Kirkjubóli. Bjarni verður viðstaddur opnunina með gítarinn.
*20:00 Kynlíf í fornsögunum -Gíslastaðir í Haukadal. Húsið opnar kl. 20:00, fyrirlesturinn hefst 20:30 Geðlæknirinn Óttar Guðmundsson fjallar um fornakappa og konur og náin samskipti þeirra. Heitt verður á könnunni.
*20:00 Emmsje Gauti – Diskótek í Félagsheimilinu
23:00 – 03:00 Pöbbakvöld. Lifandi tónlist í Simbahöllinni

...
Meira
26.06.2017 - 11:10 | Vestfirska forlagið,Björn Ingi Bjarnason,bb.is

LÍFSHLAUP VILLA VALLA

Villi Valli er heiðurslistamaður Ísafjarðarbæjar.
Villi Valli er heiðurslistamaður Ísafjarðarbæjar.
« 1 af 2 »
Edinborgarhúsið ætlar að bjóða bæjarbúum á sýningu heimildarmyndarinnar Lífshlaupið.
Myndin fjallar um Vilberg Vilbergsson sem er betur þekktur sem Villi Valli rakari, tónlistarmaður og lífskúnstner á Ísafirði. Einnig verður sýnd upptaka af tónleikum með Villa Valla og félögum sem haldnir voru í Edinborgarhúsi í nóvember 2016 en þar var leikin blanda af sígildum jazzperlum og frumsömdum lögum eftir Villa Valla. Lög eins og Don´t get around much anymore, Jeepers Creepers, Vikivaki Jóns Múla, Lover, come back to me, Þakið er lekt og Fall krónunnar.
Sýningin verður á miðvikudagskvöld 28. júní kl. 20. Myndin er eftir Snævar Sölvason og um kvikmyndatöku sá Loga Ingimarsson og hljóðupptaka og -vinnsla var á höndum Matthíasar M.D. Hemstock.
Framleiðandi myndarinnar er Menningarmiðstöðin Edinborg....
Meira
26.06.2017 - 08:20 | Vestfirska forlagið,Fréttablaðið,Björn Ingi Bjarnason

26. júní 1 9 6 8 - Guðni Jóhannesson fæddist

Guðni Th. Jóhannesson og kona hans Elza Reid á Þingeyrarbryggju.  Með þeim er Gunnhildur B. Elíasdóttir.
Guðni Th. Jóhannesson og kona hans Elza Reid á Þingeyrarbryggju. Með þeim er Gunnhildur B. Elíasdóttir.
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, fæddist í Reykjavík 26. júní árið 1968 og er því 49 ára í dag. 
Hann er sonur hjónanna Margrétar Thorlacius, kennara og blaðamanns, og Jóhannesar Sæmundssonar, íþróttakennara og landsliðsþjálfara, sem lést árið 1983. Guðni ólst upp í Garðabæ og á tvo bræður, Patrek, íþróttafræðing og handboltaþjálfara, og Jóhannes kerfisfræðing. 
Á vef embættis forseta Íslands kemur fram að Guðni útskrifaðist árið 1987 með stúdentspróf frá Menntaskólanum í Reykjavík. Hann stundaði nám í sögu og stjórnmálafræði við Warwick-háskóla á Englandi og útskrifaðist þaðan með BAgráðu árið 1991. Eftir það lærði hann þýsku við háskólann í Bonn í Þýskalandi. Hann nam rússnesku á árunum 1993-1994 við Háskóla Íslands. Guðni útskrifaðist með meistaragráðu í sagnfræði frá HÍ árið 1997. Hann nam sagnfræði á árunum 1998-1999 við Oxfordháskóla á Englandi og útskrifaðist þaðan árið 1999 með MSt-gráðu í sögu. Árið 2003 lauk hann doktorsprófi í sagnfræði frá Queen Mary, University of London....
Meira
25.06.2017 - 21:46 | Vestfirska forlagið,Hallgrímur Sveinsson

Flett upp á gömlum blöðum: - Völva Þingeyrarvefsins spáði fyrir um hrunið á árinu 2007

Hús Matthíasar Ólafssonar í Haukadal, reist 1885, stórmerkilegt mannvirki, löngu horfið. Þá voru miklir uppgangstímar í dalnum. Ljósmyndari ókunnur.
Hús Matthíasar Ólafssonar í Haukadal, reist 1885, stórmerkilegt mannvirki, löngu horfið. Þá voru miklir uppgangstímar í dalnum. Ljósmyndari ókunnur.

Nú á miðsumri er fróðlegt að sjá hverju hin heimsfræga Völva Þingeyrarvefsins spáði fyrir það herrans ár 2007.


Völvan spáði m. a. svo, korteri fyrir hrun:


Eftirfarandi atburðir, sem tengjast Dýrafirði og Arnarfirði, spái ég að muni koma fram á næsta ári, 2007. Það skal tekið fram til að forðast misskilning, að ef einhverjir af þessum spádómum mínum koma ekki fram á því herrans ári, þá færast þeir sjálfkrafa fram á árið 2008 og þá eru þeir nokkuð öruggir.

...
Meira
Eldri færslur
« Janúar »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31