A A A
  • 1973 - Björn Henry Kristjánsson
  • 1999 - Friðfinnur Sigurður Sigurðsson
12.07.2017 - 06:50 | Vestfirska forlagið,Hallgrímur Sveinsson,Björn Ingi Bjarnason

Rangárvallasýsla - fimmta hjólabók Ómars Smára

« 1 af 3 »

Hjá Vestfirska forlaginu er komin út fimmta Hjólabókin eftir Ómar Smára Kristinsson og fjallar hún um Rangárvallasýslu.


Viltu ferðast á frábæra staði?


Viltu samt losna við fjölmenni?


Þá er reiðhjólið rétti ferðamátinn og Rangárvallasýsla rétti staðurinn. Svo segir höfundur hjólabókanna, en Ómar Smári er frá Gíslholti í Rangárvallasýslu. Hann hefur búið á Ísafirði í tólf ár.


Í bókinni er lýst ellefu hjólreiðaleiðum, auðveldum og erfiðum, sem eiga það sameiginlegt að þær liggja í hring og að hægt er að loka hringnum á einum degi. 

...
Meira
11.07.2017 - 10:44 | Vestfirska forlagið,Hallgrímur Sveinsson,Björn Ingi Bjarnason

Vesturleið: - Alveg gegndarlaus umferð frá morgni til kvölds.

Á Hrafnseyrarheiði. Ljósm.: Regína Hrönn.
Á Hrafnseyrarheiði. Ljósm.: Regína Hrönn.
Gífurleg umferð er nú um Vesturleið. Það er bara stanslaus umferð frá morgni til kvölds. Þetta eru fólksbílar, jeppar, vörubílar, flutningabílar, húsbílar, traktorar, mótorhjól, reiðhjól og puttalingar. Svo eru náttúrlega alls konar vagnar aftan í sumum bílum eins og húsvagnar, tjaldvagnar og alls konar græjur.
Þeir sem vel fylgjast með, segja að leigubílar séu a. m. k. 2/3 af allri umferðinni. Og flest séu það útlendingar sem sitja undir stýri.
Vesturleiðin er bara gamall malarvegur frá Þingeyri í Vatnsfjörð, um 70 km löng. Þó er um 100 metra bundið slitlag í bröttu brekkunni fyrir ofan Hlíð innan Þingeyrar. Það er mesta furða hvað vegurinn þolir, enda vel lagður upphaflega.
Skal þess og getið til gamans, að hluti Vesturleiðar var lagður með hestum og hestvögnum um eða upp úr seinna stríði. Er sá kafli vegarins á Brekkudal. Þá voru aðal verkfærin páll og reka. 
...
Meira
11.07.2017 - 09:02 | Þingeyrarakademían,Vestfirska forlagið,Hallgrímur Sveinsson,Björn Ingi Bjarnason

Þingeyrarakademían: Eina milljón skattfrjálsa eingreiðslu strax!

Akademían á Þingeyri að störfum. Ljósm. Kristján Ottósson.
Akademían á Þingeyri að störfum. Ljósm. Kristján Ottósson.

Munið þið hvað Þingeyrarakademían samþykkti um daginn?


„Afturvirkar launahækkanir í eingreiðslum til æðstu embættismanna um milljónir króna koma eins og skrattinn úr sauðarleggnum öðru hvoru. Þær eru eins og blaut tuska framan í launamenn, einkum þá sem lægstu hafa launin.“


„Ellilífeyrisþegar, sem ekkert hafa til að moða úr nema einfaldan ellilífeyri, fái strax eina milljón króna og það skattfrjálst, úr sameiginlegum sjóði landsmanna sem afturvirka eingreiðslu.“ 

...
Meira
10.07.2017 - 07:11 | Vestfirska forlagið,Morgunblaðið,Björn Ingi Bjarnason

Víkingatíminn lifnar við á Vestfjörðum

Frumkvöðull.  Borgný Gunnarsdóttir er annar stofnenda víkingastaðarins Skálans á Þingeyri þar sem gestir fá að upplifa landnámstímann.
Frumkvöðull. Borgný Gunnarsdóttir er annar stofnenda víkingastaðarins Skálans á Þingeyri þar sem gestir fá að upplifa landnámstímann.
« 1 af 2 »
Borgný Gunn­ars­dótt­ir og eig­inmaður henn­ar Þórir Örn Guðmunds­son eru um þess­ar mund­ir að opna nýj­an stað á Þing­eyri í Dýraf­irði í anda vík­inga­tím­ans. Gest­ir fá meðal ann­ars að baka brauð yfir opn­um eldi og klæða sig upp í vík­inga­klæði en um er að ræða ein­staka upp­lif­un fyr­ir þá sem hafa áhuga.

Við ætl­um okk­ur að leyfa fólki að upp­lifa land­náms­tíma­bilið hér hjá okk­ur þar sem við höf­um inn­réttað 85 fer­metra mót­töku­sal. Við höf­um hugsað okk­ur að taka á móti litl­um hóp­um,“
...
Meira
09.07.2017 - 07:02 | Vestfirska forlagið,Hlaupahátíð á Vestfjörðum,Björn Ingi Bjarnason

Hlaupahátíð á Vestfjörðum 2017

« 1 af 2 »

Nú styttist í hátíðina og langar okkur að minna á nokkur atriði sem skipta máli á næstu dögum


Skráningu á hlaupahatid.is lýkur fimmtudaginn 13. júlí klukkan 08.00 en eftir það verður hægt að skrá sig í versluninni CraftSport við Austurveg á Ísafirði. Þar verður opið fimmtudaginn 13. júlí frá 16-18 og föstudaginn 14. júlí frá 12-18. Einnig verður hægt að skrá sig á Þingeyri á laugardag í tjaldi sem verður fyrir utan íþróttahúsið á Þingeyri.


Athugið að þeir sem skrá sig eftir að forskráningu lýkur fara ekki í pott þar sem dregnir verða út útdráttarvinningar. Þetta er gert til þess að hvetja fólk til að skrá sig í forskráningu þar sem það auðveldar okkur alla vinnu.


Þeir sem skrá sig í forskráningu fá sendan tölvupóst með helstu atriðum varðandi hátíðina. Einnig verður hægt að nálgast þann minnislista á skráningarstöðum hátíðarinnar.


Ef einhver lendir í því að skráningin þeirra gengur ekki í gegn þá er sá hinn sami beðinn um að senda tölvupóst á hlaupahatid@hlaupahatid.is og við munum finna út úr því. Einnig ef þið hafið einhverjar spurningar eða viljið breyta skráningunni ykkar.


Annars hlökkum við bara til að sjá ykkur á hátíðinni okkar 14-16 júlí 2017.

...
Meira
08.07.2017 - 20:30 | Vestfirska forlagið,Morgunblaðið,Björn Ingi Bjarnason

Merkir Íslendingar - Jakobína Sigurðardóttir

Jakobína Sigurðardóttir (1918 - 1994).
Jakobína Sigurðardóttir (1918 - 1994).
Jakobína Sig­urðardótt­ir fædd­ist í Hæla­vík á Horn­strönd­um 8. júlí 1918. For­eldr­ar henn­ar voru Sig­urður Sig­urðsson, bóndi í Hæla­vík, og Hall­dóra Guðna­dótt­ir hús­freyja.

Jakobína átti alls 12 systkini en meðal þeirra var Fríða Á. Sig­urðardótt­ir rit­höf­und­ur.
Jakobína flutti að Garði í Mý­vatns­sveit 1949 og bjó þar til æviloka, ásamt manni sín­um, Þorgrími Starra Björg­vins­syni, og börn­um þeirra, þeim Stef­an­íu, Sigrúnu Huld, Sig­ríði Krist­ínu og Kára. Hún stundaði nám við Ingimars­skól­ann í Reykja­vík og nám ut­an­skóla við KHÍ, en þess utan var hún sjálf­menntuð.
Jakobína sendi m.a. frá sér end­ur­minn­inga­bók, skáld­sög­ur, smá­sög­ur og ljóð en verk henn­ar komu út á ár­un­um 1959-2004. Formtilraun­ir og næm stíl­vit­und ein­kenna verk henn­ar. Hún réri ávallt á ný mið með hverju verki og fiskaði ríku­lega. Hún var form­bylt­ing­ar­höf­und­ur.
Fyrsta verk Jakobínu, æv­in­týrið Sag­an af Snæ­björtu Elds­dótt­ur og Ketilríði Kot­ungs­dótt­ur kom út 1959 og vakti strax at­hygli.

...
Meira
08.07.2017 - 07:11 | Vestfirska forlagið,Hallgrímur Sveinsson,Bændablaðið

Bændablaðið: - Eitt skemmtiferðaskip mengar jafn miklu sóti daglega eins og ein milljón bílar!

 Skemmtiferðaskip í höfn á Ísafirði. Ljósm.: Gústi.
Skemmtiferðaskip í höfn á Ísafirði. Ljósm.: Gústi.

Í því merka blaði, Bændablaðinu, lesum við að sautján stærstu gámaflutningaskip heimsins losi meiri brennistein út í andrúmsloftið árlega en allir bílar í heiminum. Og eitt skemmtiferðaskip mengar jafn mikið daglega eins og ein milljón bílar! Blaðið segir að þetta komi fram í nýlegri heimildarmynd, Sea Blind, eftir Bernice Notenboom og Söruh Robertson.


Nýlega var sagt frá því í fréttum RÚV að um 300 skemmtiferðaskip komi árlega til Kaupmannahafnar. Geigvænleg mengun segja Danir. Jafngildir 300 milljónum bíla á ferð daglega eftir því að dæma.

...
Meira
07.07.2017 - 06:28 | Björn Ingi Bjarnason,Morgunblaðið,Vestfirska forlagið

Merkir Íslendingar - Benedikt Gröndal

Benedikt Gröndal (1924 - 2010).
Benedikt Gröndal (1924 - 2010).
Benedikt fæddist á Hvilft í Önundarfirði 7. júlí 1924. Foreldrar hans voru Sigurður Gröndal, rithöfundur, yfirkennari í Reykjavík og hótelsjóri að Valhöll á Þingvöllum og k.h., Mikkelína María Sveinsdóttir húsfreyja.

Sigurður var sonur Benedikts Gröndal, skálds og skólastjóra, af Presta-Högna ætt, og Sigurlaugar Guðmundsdóttur, en Mikkelína María var dóttir Sveins Árnasonar, bónda í Hvilft í Önundarfirði, og Rannveigar Hálfdánardóttur, systur Örnólfs í Skálavík, afa Haraldar J. Hamar ritstjóra.


Meðal sex systkina Benedikts má nefna Halldór Gröndal sóknarprest og Gylfa Gröndal rithöfund.

...
Meira
Eldri færslur
« Janúar »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31