A A A
  • 1973 - Björn Henry Kristjánsson
  • 1999 - Friðfinnur Sigurður Sigurðsson
15.07.2017 - 08:18 | Björn Ingi Bjarnason,Hallgrímur Sveinsson,Morgunblaðið,Vestfirska forlagið

Ríkiseignir Héraðsskólans að Núpi í Dýrafirði til sölu

Auglýsing í Morgunblaðinu laugardaginn 15. júlí 2017.
Auglýsing í Morgunblaðinu laugardaginn 15. júlí 2017.

Núpur í Dýrafirði - Gamli skóli, lóð nr. 1


Um er að ræða elsta húsnæði fyrrum héraðsskólans á Núpi í Dýrafirði, eigandi er Ríkissjóður Íslands.


Húsnæðið er upprunalega byggt árið 1931 og með síðari viðbyggingum. Húsið er að hluta á þremur hæðum en tveggja hæða álmur til beggja handa og íþróttahús við bakhlið. Í húsinu voru skólastofur, heimavist, kennaraíbúðir, matsalur, eldhús, sundlaug og íþróttahús. Áhugasamir bjóðendur eru hvattir til að kynna sér ástand húsnæðisins til hlítar. Húseignin er til sýnis í samráði við Guðmund Ástvaldsson í síma 894 9409 á skrifstofutíma. 

...
Meira
15.07.2017 - 07:54 | Vestfirska forlagið,Morgunblaðið,Hallgrímur Sveinsson,Björn Ingi Bjarnason

Kristján Ottósson áttræður á morgun - Stýrir ennþá Lagnafélaginu

Dýrfirðing­urinn Kristján Ottós­son.
Dýrfirðing­urinn Kristján Ottós­son.
« 1 af 2 »
Kristján Ottós­son verður átt­ræður á morg­un, 16. júlí 2017. 
Hann er einn aðal­frum­kvöðull að stofn­un Lagna­fé­lags Íslands árið 1986 og fyrsti formaður þess og fram­kvæmda­stjóri frá upp­hafi. Hann hef­ur verið rit­stjóri og ábyrgðarmaður bæði Lagna­frétta og frétta­bréfs fé­lags­ins frá stofn­un þess, og liggja marg­ar grein­ar eft­ir hann í báðum rit­un­um, auk fjölda annarra blaðagreina. 
„Þegar Lagna­fé­lagið var stofnað 1986 var ástandið þannig að iðnaðar­menn og hönnuðir töluðust ekki við, voru feimn­ir hvor­ir við aðra. Þetta var stórt vanda­mál. Lagna­fé­lagið opnaði þessa rás og nú vill eng­inn fara til baka. Það eru all­ir vin­ir eins og þar stend­ur,“ en að Lagna­fé­lag­inu koma all­ar þær fag­stétt­ir sem vinna að lagna­mál­um....
Meira
14.07.2017 - 20:35 | Vestfirska forlagið,Morgunblaðið,Hallgrímur Sveinsson,Björn Ingi Bjarnason

Hlaupið, synt og hjólað fyrir vestan á helginni

Sigmundur Fríðar Þórðarson á hlaupum.
Sigmundur Fríðar Þórðarson á hlaupum.
Íslandsmót í maraþonfjallahjólreiðum - Sjósund og þríþraut - Hlaupalengdir frá 2 km til 55 km - Hátíð í bæ 

Líf og fjör á Þingeyri og Ísafirði 

Sigmundur Fríðar Þórðarson er einn af forsprökkum Vesturgötuhlaupsins. Hann segir skemmtilega stemningu myndast í kringum Hlaupahátíðina. Það er skemmtilegt hvernig allt þorpið tekur þátt í þessu. Það eru íþróttafélagið Höfrungar, Riddarar Rósu og fleiri aðilar sem ber hitann og þungan af skipulaginu....
Meira
14.07.2017 - 08:46 | Vestfirska forlagið,Hallgrímur Sveinsson,Björn Ingi Bjarnason

Að losna við hafvindinn inn Önundarfjörð

Séð yfir Klofning í fjörunni og út Önundarfjörð. Ljósm.: Kristján Einarsson.
Séð yfir Klofning í fjörunni og út Önundarfjörð. Ljósm.: Kristján Einarsson.
« 1 af 2 »

Sumarnótt eina fyrir allmörgum árum síðan var ég að sprauta bíl fyrir Benna Odds í bílskúrnum hjá Hinna Jóni. 
Milli umferða fórum við út á Klofning með kaffi og bakkelsi frá Rúnu, (Guðrún Kristjánsdóttir frá Þingeyri - eiginkona Benna), pönnukökur bæði með rjóma og sykraðar og mikið af þeim. 
Sátum við á svipuðum stað og myndin er tekin. 
Þá segir Benni:
"Mér finnst að það ætti að strekkja vír hérna yfir fjörðinn og setja á hann gardínur eins og eru í inn í tækjasalinn í frystihúsinu. Þá myndum við losna við hafvindinn."

...
Meira
13.07.2017 - 20:50 | Vestfirska forlagið,Hallgrímur Sveinsson,Björn Ingi Bjarnason

Fréttir úr Arnarfirði: - Örn á flugi og hreppstjórinn búinn að ná 16 tófum og Arnfinnur 28

Á Tjaldanesi er eitthvert fegursta bæjarstæði hér um slóðir. Ljósm.: H.S.
Á Tjaldanesi er eitthvert fegursta bæjarstæði hér um slóðir. Ljósm.: H.S.
« 1 af 2 »

Í fyrrinótt sást örn á flugi yfir Tjaldanesi í Arnarfirði. Ekki fer nánari sögum af þeim konungi.
Fyrstur bjó á Tjaldanesi maður að nafni Örn, ágætur maður að sögn Landnámu. Fjörðurinn er væntanlega kenndur við hann, ef ekki bara sjálfan konung fuglanna. 
Á Tjaldanesi gengur sól eigi af um skammdegi. Sennilega hefur kallinn slegið upp tjöldum á nesinu og þar af nafnið. Án rauðfeldur og Grelöð spúsa hans á Eyri keyptu öll lönd af Erni milli Langaness og Stapa, en Örn flutti norður í Eyjafjörð.


Svo er frá því að segja, að Hreinn Þórðarson, hreppstjóri og æðarbóndi á Auðkúlu, hefur nú fellt 16 melrakka á þessari önn, eins og þeir segja fyrir sunnan. Þetta er náttúrlega með ólíkindum. Hreinn gengur nefnilega ekki heill til skógar hvað sjón snertir.

...
Meira
13.07.2017 - 06:34 | Björn Ingi Bjarnason,Blaðið - Vestfirðir,Kristinn H. Gunnarsson,Vestfirska forlagið

59% fækkun á Flateyri - 44% á Þingeyri

Áfundi starfshóps um breytingar á reglum um byggðakvóta var lögð fram tafla um íbúaþróun í nokkrum vestfirskum byggðarlögum frá því að kvótakerfið var tekið upp. Borinn er saman íbúafjöldi á árunum 1980-83 og 2013-16. 
Þar kemur fram fækkun hefur orðið í öllum byggðarlögunum og mestur í þorpunum í vestur Ísafjarðarsýslu. Á Flateyri fækkaði íbúum um 59% og 44% á Þingeyri. Á Suðureyri fækkaði um 43%. Mest varð fækkunin íbúum talið í Bolungavík eða um 373 manns og á Patreksfirði fækkaði um 335 manns...
Meira
12.07.2017 - 21:53 | Vestfirska forlagið,Forn­minja­fé­lag Súg­anda­fjarðar,Eyþór Eðvarðsson,Björn Ingi Bjarnason

Bygging á verbúð í Staðardal í Súgandafirði

Verbúðin í Staðardal í Súgandafirði. Ljósm.: Eyþór Eðvarðsson.
Verbúðin í Staðardal í Súgandafirði. Ljósm.: Eyþór Eðvarðsson.
Fornminjafélag Súgandafjarðar stóð að byggingunni með aðstoð fjölmargra. 
Verbúðin er reist til að minnast þess tíma er róið var á sjóinn. Fyrirmyndirnar eru verbúðir á Vestfjörðum og teikningin er eftir Valdimar Össurarson
Við hliðina a verbúðinni voru þrír staðir sem róið var frá þ.e. Árósinn, Keravíkin og Stöðin.
Verbúðin er öllum opin og öllum velkomið að kíkja inn og lifa sig inn í þúsund ára sögu útræðis á þessum fallega stað í Súgandafirði. Bátinn fengum við frá bátasafninu á Reykhólum og er hann um 80 ára gamall....
Meira
12.07.2017 - 21:48 | Vestfirska forlagið,Björn Ingi Bjarnason,bb.is

FJALLASKAGAVITI VERÐI LAGÐUR NIÐUR

Fjallaskagaviti. Mynd: Kristján Pálsson.
Fjallaskagaviti. Mynd: Kristján Pálsson.

Vegagerðin áformar að slökkva á Fjallaskagavita í Dýrafirði. Þegar mikil útgerð var frá Þingeyri gegndi vitinn veigamikli hlutverki, en hann var reistur árið 1954. Með breyttum tímum er talið fullnægjandi að Svalvogaviti verði innsiglingarviti fyrir Arnarfjörð og Dýrafjörð.


Fjallaskagi var ein af stóru verstöðvunum á Vestfjörðum. Líklega frá upphafi búsetu á Vestfjörðum var róið þaðan til fiskjar.
Síðast var róið frá Fjallaskaga árið 1940 og sjá má leifar af verbúðum og fiskgörðum á svæðinu. Nokkrar verbúðanna eru á ágætu standi en aðrar eru að skemmast og eitthvað er horfið í sjóinn.

...
Meira
Eldri færslur
« Janúar »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31