A A A
  • 1973 - Björn Henry Kristjánsson
  • 1999 - Friðfinnur Sigurður Sigurðsson
25.06.2017 - 06:51 | Vestfirska forlagið,Dýrafjarðardagar,Björn Ingi Bjarnason

Dýrafjarðardagar 2017 - "Minningar úr Dýrafirði - nokkrar myndyrðingar"

Bjarni Guðmundsson. Ljósm.: BIB
Bjarni Guðmundsson. Ljósm.: BIB

Sýningin "Minningar úr Dýrafirði - nokkrar myndyrðingar" samanstendur af um 30 teikningum eftir Bjarna Guðmundsson frá Kirkjubóli í Dýrafirði. Við hverja mynd er stuttur texti.
Í þessari sýningu deilir Bjarni minningum sínum , frá bernsku og ungdómsarum, í mái og myndum á sinn einstaka hátt.


Bjarni verður viðstaddur opnunin sýningarinnar, sem hefst í kjölfar settningar Dýrafjarðardaga, og hefur samþykkt að hafa gítarinn með og leika og syngja nokkur lög fyrir viðstadda.
Sýning sem engin ætti að láta fram hjá sér fara og stendur aðeins á Dýrafjarðardögum.

...
Meira
24.06.2017 - 21:25 | Vestfirska forlagið,Hallgrímur Sveinsson,Björn Ingi Bjarnason

Að loknum 17. júní 2017: - Hver var Jón forseti, uppáhaldsmaður þjóðarinnar?

Jón Sigurðsson (1811 - 1879).
Jón Sigurðsson (1811 - 1879).
Nú er 17. júní liðinn í aldanna skaut rétt einu sinni. Lýðveldisdagurinn eða þjóðhátíðardagurinn sem almennt er kallaður í dag. Og afmælisdagur Jóns Sigurðssonar.

Flestir eru sammála um að maður dagsins á öllum 17. júni dögum sé þessi Vestfirðingur, Jón forseti.

Bent hefur verið á að helstu fjölmiðlar landsins hafi ekki gert því nokkur skil á nýliðnum 17. júní hvað manna hann var. Eða fyrir hvað hann stendur í þjóðarsögunni. Að vísu nefna sumir nafn hans í framhjáhlaupi. Síðan ekki söguna meir....
Meira
24.06.2017 - 21:18 | Vestfirska forlagið,Morgunblaðið,Björn Ingi Bjarnason

24. júní 1000 - Kristnitakan. Kristin trú var lögtekin á Alþingi á Þingvöllum við Öxará

Þingvellir Ljósm.: BIB
Þingvellir Ljósm.: BIB

Kristnitakan. Kristin trú var lögtekin á Alþingi á Þingvöllum við Öxará þann 24. júní árið 1000. 

Þar hafði skorist í odda með kristnum mönnum og heiðnum en Þorgeir Þorkelsson Ljósvetningagoði úrskurðaði að „allir menn skyldu kristnir vera“ og sagði: 

„Höfum allir ein lög og einn sið. Það mun verða satt, er vér slítum í sundur lögin, að vér munum slíta og friðinn.“


24. júní 2012


Séra Agnes M. Sigurðardóttir, prestur í Bolungarvík, var vígð biskup Íslands fyrst kvenna. Hún hafði sigrað í biskupskjöri tveimur mánuðum áður, hlaut 64% atkvæða en séra Sigurður Árni Þórðarson 32%.

...
Meira
24.06.2017 - 21:09 | Vestfirska forlagið,Morgunblaðið,Björn Ingi Bjarnason

Lilja Rafney Magnúsdóttir alþingismaður – 60 ára - Ólst upp í fiskiþorpi og við almenn sveitastörf

Á heima­slóðum Lilja Raf­ney með Suður­eyri við Súg­anda­fjörð í bak­sýn.
Á heima­slóðum Lilja Raf­ney með Suður­eyri við Súg­anda­fjörð í bak­sýn.
« 1 af 3 »
Lilja Raf­ney Magnús­dótt­ir fædd­ist á Stað í Súg­andafirði 24. júní 1957 og ólst upp á Suður­eyri: „Ég var auk þess alltaf mikið hjá afa ög ömmu á Stað í Súg­andafirði, nán­ast öll sum­ur, en þau voru með hefðbund­inn, blandaðan bú­skap. Ég held að kynni mín af þeim og það sveita­líf sem þau buðu upp á hafi mótað per­sónu mína mikið.

Á vet­urna tók svo skól­inn við, heima á Suður­eyri og leik­ir og störf með öðrum krökk­um. Við fór­um í ís­jaka­hlaup í Litlu höfn­inni í löngu frí­mín­út­um og drolluðum oft niðri á bryggju, vor­um að þvæl­ast um borð í bát­ana, feng­um að fara með þeim á milli bryggjuplássa og mauluðum kex með mjólk í lúk­arn­um. Þetta voru ekki hættu­laus­ir leik­ir en þótti mikið sport.“

 

...
Meira
23.06.2017 - 06:44 | Björn Ingi Bjarnason,Vestfirska forlagið,Kiriyama Family

Kiriyama Family - Útgáfutónleikar 23. júní 2017

« 1 af 4 »

Hljómsveitin Kiriyama Family ætlar að fagna útgáfu annarar breiðskífu sinnar Waiting For… með veglegum útgáfutónleikum í Tjarnarbíói í kvöld, föstudagskvöldið 23.júní 2017.


Kiriyama Family hefur verið þekkt fyrir líflega og vandaða tónleika. Hljómsveitin hefur verið áberandi í íslensku tónlistarlífi allt frá útgáfu fyrstu breiðskífu sinnar sem kom út árið 2012.


Fjöldi gestahljóðfæraleikara munu koma fram ásamt hljómsveitinni til að flytja nýja verkið ásamt eldri lögum. Upphitun mun vera í höndum nýkrýndra sigurvegara Músiktilrauna 2017, Between Mountains.


Tónleikarnir hefjast stundvíslega kl 20:30

...
Meira
23.06.2017 - 06:32 | Vestfirska forlagið,Björn Ingi Bjarnason

Götuveislan 2017 á Flateyri er nú á helginni

Götuveislan á Flateyri er núna á helginni 23. og 24. júní 2017.
Götuveislan á Flateyri er núna á helginni 23. og 24. júní 2017.
Dagskráin byrjar á föstudagskvöldinu kl 22 með Bjartmari Guðlaugssyni á Vagninum eitthvað sem enginn er að fara missa af.
Furðufatahlaupið hefst kl 11 á laugardagsmorgni. keppt verður í 2.5 km og 5km vegalengdum. Mæting er við Goðahól.
Líkt og í fyrra verður boðið í heimsókn. 
Opið verður á eftirfarandi stöðum:
Gunnukaffi kl 12-14, Gunna býður uppá pizzasneið og kók á tilboðsverði.
Grænhöfði býður á Kajak í fjörunni milli 13-14
Júlli og co. verða með opið hús á Hafnarstræti 1 milli 13-14
Og Stanley á Öldugötu milli 14-15...
Meira
22.06.2017 - 21:28 | Vestfirska forlagið,Morgunblaðið,Björn Ingi Bjarnason

Merkir Íslendingar - Steingrímur Hermannsson

Björn Ingi Bjarnason og Steingrímur Hermannsson, f.v. forsætisráðherra, á tröppum Ráðherrabústaðarins við Tjarnargötu 32 í Reykjavík þar sem Steingrímur ólst upp. Húsið stóð áður á Sólbakka við Flateyri sem íbúðarhús hvalfangarans Hans Ellefsen.
Björn Ingi Bjarnason og Steingrímur Hermannsson, f.v. forsætisráðherra, á tröppum Ráðherrabústaðarins við Tjarnargötu 32 í Reykjavík þar sem Steingrímur ólst upp. Húsið stóð áður á Sólbakka við Flateyri sem íbúðarhús hvalfangarans Hans Ellefsen.

Steingrímur fæddist í Reykjavík 22. júní 1928, sonur Hermanns Jónassonar, alþingismanns og ráðherra og eiginkonu hans, Vigdísar Oddnýjar Steingrímsdóttur.
Steingrímur Hermannsson ólst upp í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu 32 í Reykjavík sem sonur forætisráðherra, Hermanns Jónassonar.
Steingrímur lauk stúdentsprófi frá MR 1948 og prófi í rafmarksverkfræði frá tækniháskólanum í Chicago árið 1951. Þá lauk hann  M.Sc.-próf frá California Institute of Technology í Pasadena árið 1952.
Eftir nám starfaði Steingrímur sem verkfræðingur hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur 1952—1953 og hjá Áburðarverksmiðjunni  1953—1954. Hann starfaði einnig sem  verkfræðingur við Southern California Edison Company í Los Angeles 1955—1956. Hann var framkvæmdastjóri Rannsóknaráðs ríkisins 1957—1978.

...
Meira
Þetta glæsilega skemmtiferðaskip frá Hurtigfarten í Noregi lagðist að bryggju á Þingeyri 6. sept. 2016. Sjaldan verið stærri sem þar hafa lagst að kaja. Egill (Stebbi) sýnist ekki stór við hliðina hinumegin. En nú er hún Snorrabúð stekkur! Ljósm. H. S.
Þetta glæsilega skemmtiferðaskip frá Hurtigfarten í Noregi lagðist að bryggju á Þingeyri 6. sept. 2016. Sjaldan verið stærri sem þar hafa lagst að kaja. Egill (Stebbi) sýnist ekki stór við hliðina hinumegin. En nú er hún Snorrabúð stekkur! Ljósm. H. S.

1. Vestfirsku Alparnir. Nú er hringleiðin orðin opin um þetta magnaða landslag. Búið að fara á fjörurnar undir Skútabjörgum og öðrum björgum og framhjá álfabyggðinni Stapa. Seigur er Gunnsi! Og Valdimar í Græði, þegar hann er með honum.


2. Rokk. Það er ekkert að frétta úr blokkinni. Þó segja þeir að það hafi verið rokk um alla blokk daginn fyrir fyrradag!


3. Kaffibollinn. Sums staðar er einn bolli af molasopa seldur á 800 kall að sagt er. Vonandi samt ekki hér fyrir vestan! Einn Bónus kaffipakki kostar 398,- kr. Hann ætti að fara létt með að duga í 50 - 75 bolla með ábót! Hvað kallast þetta?


 


 

...
Meira
Eldri færslur
« Janúar »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31