A A A
  • 1973 - Björn Henry Kristjánsson
  • 1999 - Friðfinnur Sigurður Sigurðsson
01.07.2017 - 13:47 | Vestfirska forlagið,Morgunblaðið,Björn Ingi Bjarnason

1. júlí 1875 - Alþingi tók til starfa sem lög­gjaf­arþing

Jón Sigurðsson (1811 - 1879).
Jón Sigurðsson (1811 - 1879).
Þann 1. júlí 1875 tók Alþingi til starfa sem lög­gjaf­arþing, í sam­ræmi við nýja stjórn­ar­skrá frá 1874. 

Jón Sig­urðsson var for­seti neðri deild­ar og sam­einaðs þings en Pét­ur Pét­urs­son bisk­up for­seti efri deild­ar. 

Deilda­skipt­ing var af­num­in í lok maí 1991....
Meira
01.07.2017 - 13:42 | Vestfirska forlagið,Morgunblaðið,Björn Ingi Bjarnason

Merkir Íslendingar - Theódóra Thoroddsen

Theódóra Thoroddsen (1863 - 1954).
Theódóra Thoroddsen (1863 - 1954).
Theó­dóra Thorodd­sen skáld­kona fædd­ist að Kvenna­brekku í Döl­um 1. júlí 1863.
For­eldr­ar henn­ar voru Katrín Ólafs­dótt­ir og Guðmund­ur Ein­ars­son, prest­ur og alþing­ismaður, en hann var móður­bróðir Matth­ías­ar Jochumsson­ar skálds.

Theó­dóra stundaði nám í Kvenna­skól­an­um í Reykja­vík og út­skrifaðist 1879.
Hún gift­ist Skúla Thorodd­sen; lög­fræðingi, sýslumanni, ritsjóra og alþingiismanni og eignuðust þau þrett­án börn. Þau bjuggu um skeið á Ísaf­irði og ráku þar versl­un, flutt­ust að Bessa­stöðum og síðar að Von­ar­stræti 8, sem nú hef­ur verið flutt í Kirkju­stræti.


Þulur Theó­dóru komu fyrst út 1916. Syst­ur­son­ur henn­ar, Guðmund­ur Thor­steins­son, Mugg­ur, myndskreytti. Þær hafa reglu­lega verið end­urút­gefn­ar síðan enda fag­ur­lega myndskreytt­ar. Rit­safn Theó­dóru kom út 1960 og sá Sig­urður Nor­dal um út­gáf­una. 

...
Meira
01.07.2017 - 08:49 | Vestfirska forlagið,Morgunblaðið,Björn Ingi Bjarnason

Njörður Marel Jónsson - Fæddur 1. maí 1942 - Dáinn 19. júní 2017 - Minning

Njörður Marel Jónsson (1942 - 2017).
Njörður Marel Jónsson (1942 - 2017).
« 1 af 2 »
Njörður Mar­el Jóns­son bóndi fædd­ist 1. maí 1942 á Bergþóru­götu 11a í Reykja­vík. Hann lést á gjör­gæslu­deild Land­spít­al­ans í Foss­vogi 19. júní 2017.

Njörður var son­ur hjón­anna Sig­ríðar Óskar Ein­ars­dótt­ur, f. 3. júlí 1914, d. 24. mars 1988, og Jóns Harrýs Bjarna­son­ar, f. 16. apríl 1914, d. 6. júlí 1980. Systkini Njarðar eru: Ein­ar Sig­ur­bjart­ur, f. 1934, d. 2008, Amal­ía Jóna, f. 1935, Óskar Harrý, f. 1939 og Dag­mar, f. 1950.


Eft­ir­lif­andi eig­in­kona Njarðar er Dýrfirðingurinn Guðrún Lára Ágústs­dótt­ir, f. 10. júlí 1946. Lára er dótt­ir hjón­anna Kristjáns Ágústs Lárus­son­ar, f. 3. janú­ar 1910, d. 1. júní 2009, og Ing­unn­ar Jóns­dótt­ur, f. 9. maí 1916, d. 12. júlí 2016. 
Syn­ir Njarðar og Láru eru: 

...
Meira
01.07.2017 - 07:49 | Vestfirska forlagið,Dagskráin - Fréttablað á Suðurlandi,Björn Ingi Bjarnason

Dýrfirðingurinn Kristinn Pétursson: - Hveragerði var hans skjól og Seyðtún hans musteri

Myndlistarmaðurinn Kristinn Pétursson (1896 - 1981) fæddist á Bakka í Hjarðardal í Dýrafirði 1896 og endaði ævina í Hveragerði 1981
Myndlistarmaðurinn Kristinn Pétursson (1896 - 1981) fæddist á Bakka í Hjarðardal í Dýrafirði 1896 og endaði ævina í Hveragerði 1981
« 1 af 3 »

Dýrfirðingurinn Kristinn Pétursson (1896-1981) myndlistarmaður braust úr einangrun og örbirgð Vestfjarða til mennta í myndlist á Íslandi og erlendis í upphafi síðustu aldar.
Kristinn var fæddur að Bakka í Hjarðardal í Dýrafirði þann 17. nóvember 1896 og lést í Hvaragerði þann 1. september 1981.
Kristinn haslaði sér völl meðal þekktustu listamanna á landinu á 3. og 4. áratug síðustu aldar og hélt fjölda myndlistasýninga hér heima auk þess að taka þátt í samsýningum erlendis.


En 1954 hverfur Kristinn úr listaheiminum og einangrar sig frá þeim kreðsum, sem hann áður kepptist um athygli og viðurkenningu frá. Nafn hans féll í gleymsku þar til hann lést. Síðan hafa verk hans verið sýnd á fjórum stærri sérsýningum, sem margar hafa snúist um arfleifð hans og sögu. Síðasta sýning á verkum Kristins var Tómið hjá Listasafni Árnesinga árin 2012–2013.


Seyðtún í Hveragerði

...
Meira
30.06.2017 - 07:39 | Björn Ingi Bjarnason,Dýrafjarðardagar,Vestfirska forlagið

Dýrafjarðardagar 2017 - Dagskrá

Þingeyri við Dýrafjörð. Ljósm.: Jón Skúlason.
Þingeyri við Dýrafjörð. Ljósm.: Jón Skúlason.
Dýrafjarðardagar 2017 verða haldnir dagana 30. júní - 2. júlí 2017

FÖSTUDAGURINN 30. JÚNÍ
17:00 - 22:00 Íslandsmót í strandblaki – stigamót



*18:00 Setning hátíðarinnar í Bjarnaborg (niðri við höfn)


*19:15 „Minningar úr Dýrafirði – nokkrar myndyrðingar“ í Grunnskólanum. Opnun myndlistarsýningar Bjarna Guðmundssonar frá Kirkjubóli. Bjarni verður viðstaddur opnunina með gítarinn.


*20:00 Kynlíf í fornsögunum -Gíslastaðir í Haukadal. Húsið opnar kl. 20:00, fyrirlesturinn hefst 20:30 Geðlæknirinn Óttar Guðmundsson fjallar um fornakappa og konur og náin samskipti þeirra. Heitt verður á könnunni.


*20:00 Emmsje Gauti – Diskótek í Félagsheimilinu


23:00 – 03:00 Pöbbakvöld. Lifandi tónlist í Simbahöllinni


...
Meira
29.06.2017 - 06:24 | Vestfirska forlagið,Blaðið - Vestfirðir,Björn Ingi Bjarnason

Landsmót harmónikkuunnenda á Ísafirði 2017

Frá landsmóti árið 2002.
Frá landsmóti árið 2002.
« 1 af 2 »
Landsmót harmónikkuunnenda verður haldið á Ísafirði um helgina.
Dagkráin hefst á fimmtudaginn 29. júní og stendur stanslaust fram á laugardagskvöldið 2. júlí. Dagskráin hefst í Safnahúsinu á fimmtudagskvöldið. Dansleikir verða sama kvöld á Húsinu, í Edinborg og Krúsinn. Á föstudaginn verður sjálft mótið sett kl 14 í íþróttahúsinu og tónleikar fylgja í kjölfarið. Um kvöldið verða dansleikir meðs ama sniði og fimmtudagskvöldið. Á laugardeginum verður dagskráin öll í íþróttahúsinu á Torfnesi og hefst kl 14. og um kvöldið lýkur hátíðinni með sannkölluðum stórdansleik. Fram koma harmónikkuleikarar víða að af landinu. 
Dagskrána má sjá í heildi á harmonika.is...
Meira
28.06.2017 - 07:07 | Vestfirska forlagið,Dýrafjarðardagar,Björn Ingi Bjarnason

Kynlíf í Íslendingasögunum

Óttar Guðmundsson verður á Gíslastöðum í Haukadal.
Óttar Guðmundsson verður á Gíslastöðum í Haukadal.
Hinn umdeildi, en bráðskemmtilegi og geðþekki geðlæknir og rithöfundur Óttar Guðmundsson snýr aftur á heimavöll Gísla Súrssonar í Haukadal með fyrirlesturinn "Kynlíf í Íslendingasögunum".
Árið 2015 fjallaði Óttar um geðsjúkdóma og persónuleikaraskanir í Íslendingasögunum, en nú gengur hann skrefinu lengra og gægist undir rekkjuvoðirnar í baðstofum og skálum sögualdar og lýsir því sem fyrir augu ber í nánum samkiptum fornra kappa og kvenhetja með augum geðlæknis og túlkar.
Fyrirlesturinn er á Gíslastöðum í Haukadal föstudaginn 30. júní 2017. Húsið opnar kl. 20:00 en fyrirlesturinn hefst kl 20:30 - heitt á könnunni....
Meira
28.06.2017 - 06:58 | Björn Ingi Bjarnason,Vestfirska forlagið

Merkir Íslendingar - Hjörtur Hjálmarsson

Hjörtur Hjálmarsson (1905 - 1993).  Ljósm.: BIB
Hjörtur Hjálmarsson (1905 - 1993). Ljósm.: BIB
28. júní 2017 - 112 ár frá fæðingu Hjartar Hjálmarssonar
Hundrað og tólf ár eru í dag frá fæðingu Hjartar Hjálmarssonar fyrrum skólastjóra og sparisjóðsstjóra á Flateyri.
Hann fæddist á Þorljótsstöðum í Skagafirði 28. júní 1905. Hann lést á Dvalarheimilinu Barmahlíð á Reykhólum 17. nóvember 1993 á 89. aldursári. 
Árið 1931 fluttist Hjörtur til Flateyrar og gerðist kennari við barnaskólann, fyrst sem almennur kennari. Árið 1959 tók hann við skólastjórn og gegndi því starfi til ársins 1970. Hann kvæntist Aðalheiði Rögnu Sveinsdóttur, dóttur Sveins Gunnlaugssonar þáverandi skólastjóra á Flateyri og Sigríðar Benediktsdóttur. Hjörtur og Ragna eignuðust tvo syni, þá Emil Ragnar kennara og skólastjóra og Grétar Snæ starfsmannastjóra.
...
Meira
Eldri færslur
« Janúar »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31