03.07.2017 - 06:52 | Vestfirska forlagið,Morgunblaðið,Björn Ingi Bjarnason
Stöðugt fjölgar á höfuðborgarsvæðinu
Hlutfall Vestfjarða af íbúafjölda landsins hefur lækkað úr 7,8% árið 1950 í 2% á þessu ári. Þá hefur hlutfall Norðurlands vestra af íbúafjöldanum lækkað úr 7,2% 1950 í 2,1% árið 2017.
Með sama áframhaldi verður hlutdeild beggja landshluta komin undir 2% á næstu árum. Þetta má lesa úr tölum Hagstofunnar, sem teknar voru saman að beiðni Morgunblaðsins.
Vægi höfuðborgarsvæðisins af íbúafjöldanum hefur aukist á tímabilinu. Hlutfall svæðisins var 45,4% árið 1950 en 64,1% árið 2017. Á sama tímabili jókst hlutfall Suðurnesja úr 3,2% í 7,1%. Rúmlega 71% íbúa landsins býr því nú á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum.
Morgunblaðið 3. júlí 2017.