KOSTNAÐUR TVEGGJA STOFNANA UM 12 MILLJÓNIR
Kostnaður Umhverfisstofnunar og Skipulagsstofnunar við vinnu sem tengist fyrirhugaðri vegagerð í Teigsskógi nemur gróflega um 12 milljónir kr. Þetta kemur fram í skriflegu svari Bjartar Ólafsdóttur umhverfisráðherra við fyrirspurn Elsu Láru Arnardóttur, þingmanns Framsóknaflokks í Norðvesturkjördæmi.
Í svari umhverfisráðherra kemur fram að frá árinu 2004 hefur Umhverfisstofnun ráðstafað um sex vikna vinnu í umsagnir vegna þessa máls á ýmsum stigum þess. Umhverfisstofnun áætlar að kostnaður við þessa vinnu sé um 1,4 millj. kr. á verðlagi ársins 2017.
...Meira