16.07.2017 - 07:14 | Vestfirska forlagið,Hallgrímur Sveinsson,Björn Ingi Bjarnason
Hafliði Magnússon (1935 - 2011) við fossinn Dynjanda í Arnarfirði sumarið 2009. Ljósm.: Björn Ingi Bjarnason.
Hallgrímur Sveinsson og Hafliði Magnússon á hlaðinu á Brekku í Dýrafirði sumarið 2009. Ljósm.: Björn Ingi Bjarnason.
Hafliði Magnússon við upplestur í Sunnlenska bókakaffinu á Selfossi í desember 2008. F.v.: Steingrímur Stefnisson frá Flateyri, veitingamaður á Cafe Catalina í Kópavogi, Hafliði Magnússon frá Bíldudal, fór á kostum við lesturinn, Elín Gunnlaugsdóttir tónskáld og veitingamaður í Sunnlenska bókakaffinu, sitjandi við borðið; Guðrún Jónína Magnúsdóttir frá Ingjaldssandi, síðan Þingeyringarnir Regína Höskuldsdóttir og Gerður Matthíasdóttir. Ljósm.: BIB
Gleðistund í 70 ára afmælsfagnaði Jóns Kr. Ólafssonar þann 22. ágúst 2010 á Hvolsvelli. F.v.: Jón Kr.Ólafsson, Magnús Björnsson, Ólafur Helgi Kjartansson, Hafliði Magnússon og Pétur Bjarnason. Ljósm.: BIB
Í Vík í Mýrdal í desember 2008. F.v.: Hafliði Magnússon frá Bíldudal, Jón Kr. Ólafsson,frá Bildudal, Sveinn Pálsson, Vík, Kolbrún Matthíasdóttir, Vík og Harpa Jónsdóttir frá Flateyri. Ljósm.: BIB
Við Skógafoss í desember 2008. F.v.: Jón Kr. Ólafsson, Hafliði Magnússon og Björn Ingi Bjarnason. Ljósm.: Einar Loftur Högnason.
Menningarkakóstund í Bókakaffinu á Selfossi. Sitjandi f.v.: Hafliði Magnússon, Jóhann Páll Helgason og Einar Loftur Högnason. Ljósm.: BIB
Hafliði Þórður Magnússon, listamaður frá Bíldudal, var fæddur þann 16. júlí 1935 og í dag eru því 82 ár frá fæðingun hans. Hafliði lést þann 25. júní 2011 á heimili sínu á Selfossi.
Hafliði var fæddur í Hergilsey á Breiðafirði. Hann fluttist þaðan 6 ára í Arnarfjörð þar sem fjölskyldan bjó á ýmsum stöðum en lengst af bjó hann á Bíldudal. Hann bjó einnig um tíma í Reykjavík.
Hafliði starfaði m.a. sem sjómaður og þá mest á síðutogurum, við fiskvinnslu og einnig kenndi hann sjóvinnu. Þá vann hann við uppbyggingu Mjólkárvirkjunar og endurgerð fæðingarbæjar Jóns Sigurðssonar á Hrafnseyri við Arnarfjörð.
Frá árinu 1998 bjó Hafliði síðan á Selfossi ásamt sambýliskonu sinni Evu Þórarinsdóttur frá Suðureyri við Súgandafjörð. Á Selfossi vann hann ýmis störf, síðast hjá SG við trésmíðar þar sem hann lauk hefðbundinni starfsævi árið 2002.
En Hafliði Magnússon var fyrst og fremst rithöfundur, ljóðskáld, söngleikjahöfundur og málari. Þá lagði hann mikla rækt við sagnaþætti af ýmsum toga og flest í því tengdist Bíldudal og Arnarfirði. Hann var svo sannarlega margþættur listamaður og þeim störfum helgaði hann sig alfarið eftir að hann hætti störfum hjá SG.
...
Meira