12.07.2017 - 21:53 | Vestfirska forlagið,Fornminjafélag Súgandafjarðar,Eyþór Eðvarðsson,Björn Ingi Bjarnason
Bygging á verbúð í Staðardal í Súgandafirði
Fornminjafélag Súgandafjarðar stóð að byggingunni með aðstoð fjölmargra.
Verbúðin er reist til að minnast þess tíma er róið var á sjóinn. Fyrirmyndirnar eru verbúðir á Vestfjörðum og teikningin er eftir Valdimar Össurarson.
Við hliðina a verbúðinni voru þrír staðir sem róið var frá þ.e. Árósinn, Keravíkin og Stöðin.
Verbúðin er öllum opin og öllum velkomið að kíkja inn og lifa sig inn í þúsund ára sögu útræðis á þessum fallega stað í Súgandafirði. Bátinn fengum við frá bátasafninu á Reykhólum og er hann um 80 ára gamall.
Framundan er að mála bátinn og finna hluti sem eiga heima í og við verbúðina og endurspegla lífið fyrir 500-1000 árum síðan.
Af Facebook-síðu Eyþórs Eðvarðssonar.