A A A
  • 1973 - Björn Henry Kristjánsson
  • 1999 - Friðfinnur Sigurður Sigurðsson
21.07.2017 - 07:35 | Vestfirska forlagið,Morgunblaðið,Hallgrímur Sveinsson,Björn Ingi Bjarnason

Merkir Íslendingar - Sveinbjörn Finnsson

Sveinbjörn Finnsson (1911 - 1993).
Sveinbjörn Finnsson (1911 - 1993).
« 1 af 2 »
Svein­björn Finns­son fædd­ist 21. júlí 1911 á Hvilft í Önund­arf­irði. 
For­eldr­ar hans voru Finn­ur Finns­son, bóndi þar, f. 1876, d. 1956, og k.h. Guðlaug Jakobína Sveins­dótt­ir, hús­freyja. For­eldr­ar Finns voru Finn­ur Magnús­son, bóndi á Hvilft, og k.h. Sig­ríður Þór­ar­ins­dótt­ir, og for­eldr­ar Guðlaug­ar voru Sveinn Rós­inkr­anz­son, út­vegs­bóndi og skip­stjóri á Hvilft, og k.h. Sig­ríður Svein­björns­dótt­ir, hús­freyja.

Svein­björn lauk stúd­ents­prófi frá Mennta­skól­an­um á Ak­ur­eyri árið 1933 og hag­fræðiprófí frá London School of Economics 1939.


Hann var verk­smiðju­stjóri Síld­ar­verk­smiðju rík­is­ins á Sól­bakka í Önund­arf­irði 1935-1937, full­trúi í Verðlags­nefnd og Tveggja­manna­nefnd 1939-1941, skrif­stofu­stjóri Viðskipta­nefnd­ar ut­an­rík­is­viðskipta 1941-1942 og fyrsti verðlags­stjóri á Íslandi 1943-1946.


Hann var frum­kvöðull humariðnaðar á Íslandi og byggði upp veiðar, frystiaðferðir og markaði 1950-1954. 

...
Meira
20.07.2017 - 19:10 | Vestfirska forlagið,Hallgrímur Sveinsson,Björn Ingi Bjarnason

20. júlí - Þorláksmessa að sumri

Í Skálholti. Þorláksbúð og Skálholtsdómkirkja sem Hörður Bjarnason teiknaði. Ljósm.: Björn Ingi Bjarnason.
Í Skálholti. Þorláksbúð og Skálholtsdómkirkja sem Hörður Bjarnason teiknaði. Ljósm.: Björn Ingi Bjarnason.

Þorláksmessa á sumri er 20. júlí. Verndardýrlingur Íslendinga er Þorlákur helgi. 
Sumarið 1198 var helgi Þorláks Þórhallssonar samþykkt á Alþingi og bein hans tekin upp og skrínlögð 20. júlí. 

Þorláksmessa á vetur er 23. desember, á dánardegi hans. 

Þorláksmessa á sumar var til siðaskipta einn helsti hátíðisdagur sunnanlands  og þá var haldin mikil samkoma í Skálholti.
Síðustu ár eru einnig til dæmi um skötuveislur þennan dag.

...
Meira
20.07.2017 - 12:48 | Björn Ingi Bjarnason,Elfar Logi Hannesson,Hallgrímur Sveinsson,Ísafjarðarbær,Vestfirska forlagið,Act alone

Ísafjarðarbær styrkir Act alone 2017

Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri, og Elfar Logi Hannesson, listrænn stjórnandi Act alone, handsala samninginn á Suðureyri
Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri, og Elfar Logi Hannesson, listrænn stjórnandi Act alone, handsala samninginn á Suðureyri

Á dfögunum gjöðist sá einstaki og ánægjulegi viðburður að endurnýjaður var samstarfssamningur millu Actsins og Ísafjarðarbæjar. Enn ánægjulegra var að hækkun uppá 200.000.- kónur því nú styrkir Ísafjarðarbær hátíðina um 700.000.- krónur. Act alone getur ekki annað en roðnað og þakkað fyrir sig með þennan einstaka samning.


Í samningum kveður á aðkoma beggja aðila til að efla hátíðina og umgjörð hennar ennfrekar. Þannig mun Ísafjarðarbær m.a. sjá til þess að snyrta og gera einleikjaþorpið huggulegt og hreint bæði fyrir og eftir hátíð. Act alone megin munum við m.a. bjóða áfram uppá ókeypis almenningssamgöngur millum Ísafjarðar og einleikjaþorpsins meðan á hátíð stendur og að sjálfsögðu stuðla að einstakri hátíð.

...
Meira
20.07.2017 - 09:26 | Vestfirska forlagið,Hallgrímur Sveinsson,Bændablaðið,Björn Ingi Bjarnason

Bjarni Guðmundsson heiðraður fyrir áratugastarf í þágu Landbúnaðarsafnsins á Hvanneyri

Fyrir ofan frá vinstri: Ragnar Frank Kristjánsson, Lilja Árnadóttir og Björn Þorsteinsson. Fyrir framan frá vinstri standa Ragnhildur Helga Jónsdóttir, núverandi safnstjóri, Haraldur Benediktsson og svo hinn heiðraði Bjarni Guðmundsson. Ljósm.: Ásdís Helga Bjarnadóttir.
Fyrir ofan frá vinstri: Ragnar Frank Kristjánsson, Lilja Árnadóttir og Björn Þorsteinsson. Fyrir framan frá vinstri standa Ragnhildur Helga Jónsdóttir, núverandi safnstjóri, Haraldur Benediktsson og svo hinn heiðraði Bjarni Guðmundsson. Ljósm.: Ásdís Helga Bjarnadóttir.
Hvanneyrarhátíð var haldin laugardaginn 8. júlí síðastliðinn á Hvanneyri í Borgarfirði. 

Ríflega 1000 manns lögðu leið sína að Hvanneyri þennan dag og nutu heimatilbúinnar dagskrár, veitinga og hvert annars. 

Við setningu hátíðarinnar var Hvanneyringurinn og Dýrfirðingurinn Bjarni Guðmundsson í Lækjartúni heiðraður fyrir áratuga starf í þágu Landbúnaðarsafnsins ásamt því að sveitarstjóri Borgarbyggðar, Gunnlaugur Júlíusson, hélt stutta tölu. 

Á hátíðinni fékk Landbúnaðarsafn Íslands formlega afhent þrítengibeisli og vökvalyftu úr Ferguson árgerð 1949 en það var Fergusonfélagið sem færði safninu þessa höfðinglegu gjöf....
Meira
20.07.2017 - 07:03 | Vestfirska forlagið,Hallgrímur Sveinsson,Björn Ingi Bjarnason

Merkir Íslendingar - Jónas Ólafsson

Jónas Ólafsson (1929 - 2016) á skrifstofu sinni í Ráðhúsi Þingeyrarhrepps 3. apríl 1996.
Jónas Ólafsson (1929 - 2016) á skrifstofu sinni í Ráðhúsi Þingeyrarhrepps 3. apríl 1996.
« 1 af 2 »
Jónas Ólafsson fæddist á Borðeyri við Hrútafjörð 20. júlí 1929. Hann lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði 27. apríl 2016.

Foreldrar hans voru Ólafur Jónsson húsasmíðameistari, f. 12. maí 1892, d. 30. desember 1967, og Elínborg Sveinsdóttir, símstöðvarstjóri á Þingeyri, f. 12. október 1897, d. 11. maí 1955. Systkini Jónasar eru Yngvi, f. 1922, d. 2005, Sveinn, f. 1924, Björgvin, f. 1924, Þórey Hrefna, f. 1925, Höskuldur, f. 1927, Jónas, f. 1928, d. 1928, Sylvía, f. 1931, Ingibjörg, f. 1932, Sigríður, f. 1935, Ólöf, f. 1937, María, f. 1939, Guðrún, f. 1944, d. 1960. Hálfsystkini Jónasar, börn Ólafs og fyrri eiginkonu hans, Þóreyjar Sturlaugsdóttur, eru Hrefna, f. 1915, d. 1918, Kjartan, f. 1918, d. 1991. Ennfremur Þórir, f. 1931, d. 1990.


Jónas kvæntist Kristínu Nönnu Magnúsdóttur 7. nóvember 1954, foreldrar hennar voru Magnús Amlín Ingibjartsson og Ingunn Elín Angantýsdóttir.


Börn Jónasar og Nönnu eru:

...
Meira
19.07.2017 - 11:03 | Vestfirska forlagið,Jóhanna G. Kristjánsdóttir,Hallgrímur Sveinsson,Björn Ingi Bjarnason

Ný bók að vestan - Þorp verður til á Flateyri - 2. hefti

Kápa bókarinnar að framan.
Kápa bókarinnar að framan.
« 1 af 2 »

Þræðir spunnir út frá sendibréfum móður til dóttur.
Bók eftir Jóhaönnu G. Kristjánsdóttur á Flateyri.


Í inngangi er bréfasöfnunum gerð stuttlega skil þar sem ekki er víst að lesandi hafi haft fyrsta heftið undir höndum. Þá er fjallað um ævi bréfritarans Maríu Júlíönu Össurardóttur (1840–1915) húsfreyju og alþýðulækni á Flateyri.


Loks eru tveir kaflar sem hefjastá textabroti úr sendibréfum frá henni en hún ritaði um 140 bréf til dóttur sinnar Guðrúnar, eiganda annars bréfasafnsins. 
Teikningar eftir Freydísi Kristjánsdóttur eru í upphafi hvors kafla og fjallar sá fyrri um mannlíf og menningu á Flateyri en hinn síðari um lækningar, hjúkrun og þróun heilbrigðisþjónustu í byggðarlögum vestra.

...
Meira
19.07.2017 - 07:31 | Björn Ingi Bjarnason,Blaðið - Vestfirðir,Einar K. Guðfinnsson,Hallgrímur Sveinsson,Landssamband Fiskeldisstöðva,Vestfirska forlagið,Gísli Halldór Halldórsson

Vestfirðingar biðja ekki um annað en skilning

Séð yfir Dýrafjörð til Þingeyrar.
Séð yfir Dýrafjörð til Þingeyrar.
« 1 af 2 »

Það eru bjartar framtíðarhorfur í Ísafjarðarbæ og við byggjum okkur upp af eigin rammleik. Það er hinsvegar augljóst að laxeldi verður einn af undirstöðuþáttunum í atvinnuuppbyggingu næstu ára á norðanverðum Vestfjörðum, líkt og suðurfjörðunum. Vestfirðingar biðja ekki um annað en skilning, sanngjarna umfjöllun og að leyfisumsóknir fái eðlilega afgreiðslu.


Þannig kemst Gísli Halldór Halldórsson bæjarstjóri á Ísafirði að orði í grein sem hann birti í blaðinu Vestfirðir, síðasta tölublaði. Hér fara á eftir þeir kaflar úr grein Gísla sem fjalla um fiskeldismálin.

...
Meira
18.07.2017 - 13:56 | Vestfirska forlagið,Hallgrímur Sveinsson,Emil Ragnar Hjartarson,Björn Ingi Bjarnason

Héraðsmót að Núpi í Dýrafirði

Myndin sýnir skrúðgöngu íþróttafólks og annarra þátttakenda árið 1944 að Núpi í Dýrafirði. Ljósm.: Safn Emils R. Hjartarsonar.
Myndin sýnir skrúðgöngu íþróttafólks og annarra þátttakenda árið 1944 að Núpi í Dýrafirði. Ljósm.: Safn Emils R. Hjartarsonar.
« 1 af 5 »
Saga héraðsmóta á Núpi nær aftur til ársins 1943 þegar það fyrsta var haldið. Umf Vorblóm á Ingjaldssandi sigraði í stigakeppni mótsins þrjú fyrstu árin. Félagið tefldi fram görpum eins og bræðrunum á Brekku, Kristjáni og Ragnari, Guðna á Sæbóli og Sigurvin á Sæbóli sem vann allar greinar sem hann tók þátt í.

Umf Sautjándi júní í Auðkúluhreppi vann jafn oft og urðu keppendur þess félags einu sinni að ganga yfir Hrafnseyrarheiði til að komast á mótið. Af þeirra keppendum man ég eftir bræðrunum frá Hokinsdal, Guðbjarti og Þorleifi, systrunum frá Lokinhömrum Sigríði og Aniku og bræðrunum Ólafi og Njáli frá Auðkúlu....
Meira
Eldri færslur
« Janúar »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31