24.04.2016 - 06:27 | Vestfirska forlagið,Hallgrímur Sveinsson
Söngkonan vinsæla Eivör Pálsdóttir frænka okkar. Þess er að minnast, að hún og aðrir Færeyingar, lánuðu okkur Íslendingum óumbeðnir hátt á sjöunda milljarð í beinhörðum gjaldeyri, þegar við vorum með betlistaf í hendi eftir „hið svokallaða hrun.“ Áttum minna en ekkert til að kaupa lyf, eldsneyti og aðrar nauðsynjavörur erlendis.
Sundlaugin á Þingeyri.
Í sundlauginni á Þingeyri hefur á liðnum árum ekki einungis verið hugsað um líkamlegu hliðina. Hin andlega hliðin kemur þar einnig við sögu. Í all mörg ár hefur nefnilega verið lesið þar innan stokks upp úr vestfirskum bókmenntum og jafnvel heimsbókmenntum. Svo þarf auðvitað ekki að nefna spekingana í heita pottinum og við kaffiborðið hjá henni Þorbjörgu Gunnarsdóttur, sem stjórnar öllu til sjós og lands í íþróttamiðstöðinni. Þar eru nefnilega innanlandsmálin og heimsmálin krufin til mergjar og stundum bara hreinlega leyst!
Og svona til að monta okkur svolítið er hér upptalning á nokkrum verkum sem lesið hefur verið úr í vetur:
Eivör og færeysk tónlist eftir Jens Guðmundsson.
Ævisaga Vigdísar Finnbogadóttur eftir Pál Valsson
Útlaginn eftir Jón Gnarr
Fyrir miðjum firði Æviþættir Jóns Hjartarsonar fræðslustjóra.
Svalvogavegur Kafli úr lífsbók Elísar Kjaran.
Vestfirskar konur í blíðu og stríðu eftir Finnboga Hermannsson.
Lífsins dómínó Öðruvísi ævisaga Skúla Halldórssonar eftir Örnólf Árnason.
...
Meira