25.04.2016 - 07:27 | Morgunblaðið,Vestfirska forlagið
Dýrafjarðargöngum ekki frestað • Innanríkisráðuneytið tekur af tvímæli
Strax í ár verður fjármunum varið til undirbúnings framkvæmda við Dýrafjarðargöng sem hefjast svo á næsta ári. Er þetta samkvæmt samgönguáætlun 2015 til 2018, greinir frá í yfirlýsingu frá innanríkisráðuneytinu. Hún var birt á vef ráðuneytisins í gær vegna umræðu um grein Ásmundar Einars Daðasonar alþingismanns, hvar fram kemur að framkvæmdir við gangagerð verði boðnar út í haust en ekki skotið á frest eins og haldið hafi verið fram. Mikilvægt sé að leiða þetta mál til lykta fyrir kosningar, sem stjórnarandstaðan vilji að verði í haust. Sjálfur segist hann þó talsmaður þess að ríkisstjórnin, sem hafi umboð til næsta vors, ljúki verkefnum sem séu á borði hennar áður en gengið verði að kjörborði.