A A A
  • 1975 - Sesselja Hreinsdóttir
  • 1977 - Elísabet Sif Helgadóttir
  • 2011 - Máni Sigurjónsson
03.03.2017 - 07:00 | Vestfirska forlagið,Morgunblaðið,Björn Ingi Bjarnason

Merkir Íslendingar - Jón Þorláksson

Jón Þorláksson (1877 - 1935).
Jón Þorláksson (1877 - 1935).
Jón Þorláksson forsætisráðherra fæddist í Vesturhópshólum 3. mars 1877. Foreldrar hans voru Þorlákur Þorláksson, hreppstjóri þar, og k.h., Margrét Jónsdóttir húsfreyja.

Föðurbróðir Jóns var Þórarinn Þorláksson listmálari, en systir Jóns var dr. Björg Þorláksson, fyrsti íslenski kvendoktorinn.
Kona Jóns var Ingibjörg, dóttir Jean Valgard vann Deurs Claessen, landsféhirðis, og Kristín Eggertsdóttur Briem. Þau Jón og Ingibjörg áttu tvær kjördætur.


Jón lauk stúdentsprófi frá Lærða skólanum 1897, með hæstu einkunn í sögu skólans, og prófi í byggingaverkfræði frá DTH í Kaupmannahöfn 1903, þriðji Íslendingurinn sem lauk verkfræðiprófi.
Jón rannsakaði byggingarefni og brúargerð hér á landi 1903-1905, var skólastjóri Iðnskólans í Reykjavík frá stofnun 1904-1911, landsverkfræðingur 1905-1917, rak sjálfstæða verkfræðistofu og byggingavöruverslun í Reykjavík 1917-1923 og síðan verslunina í samvinnu við Óskar Norðmann til æviloka, var bæjarfulltrúi í Reykjavík 1906-1908 og 1910-22, alþingismaður 1921-33, fjármálaráðherra 1924-27, forsætisráðherra 1926-27 og borgarstjóri í Reykjavík frá 1933 og til dauðadags. Hann var formaður Verkfræðingafélags Íslands, einn helsti stofnandi og seinni formaður Íhaldsflokksins 1926-29 og fyrsti formaður Sjálfstæðisflokksins.

...
Meira
02.03.2017 - 22:25 | visir.is,Vestfirska forlagið,Stöð 2,Björn Ingi Bjarnason

Þessir vegir lenda í tíu milljarða niðurskurði samgönguáætlunar

Jón Gunnarsson samgönguráðherra: „Þetta eru mikil vonbrigði víða um land, því miður.
Jón Gunnarsson samgönguráðherra: „Þetta eru mikil vonbrigði víða um land, því miður." STÖÐ 2/BJÖRN SIGURÐSSON
« 1 af 2 »
Ríkisstjórnin er langt komin með að skera samgönguáætlun niður um tíu milljarða króna. Vegur um Teigsskóg, Dettifossvegur, hringvegurinn í Berufirði og ný brú á Hornafjarðarfljót eru meðal verkefna sem lenda undir hnífnum. Fjallað var um niðurskurðinn í frétt Stöðvar 2, sem sjá má hér að ofan. 
Samgönguáætlun sem Alþingi samþykkti þann 12. október, rétt fyrir þingkosningar, var tveimur mánuðum síðar orðin marklaus, með samþykkt fjárlaga. Jón Gunnarsson, ráðherra samgöngumála, segir að það muni tæpum tíu milljörðum króna. Þurft hefði 14 milljarða en um 4,5 milljarðar hefðu komið í fjárlagafrumvarpi til nýrra framkvæmda.
Niðurskurðurinn verður mestur á Vestfjörðum. 1200 milljónir króna voru markaðar í Vestfjarðaveg um Gufudalssveit í ár en öll sú fjárhæð verður skorin af. 400 milljónir áttu að fara í Dynjandisheiði, það allt sömuleiðis verður tekið af í ár....
Meira
02.03.2017 - 21:24 | Vegagerðin,ruv.is,Björn Ingi Bjarnason,bb.is,Vestfirska forlagið

TEIGSSKÓGUR: - VEGAGERÐIN VELUR ÓDÝRASTA KOSTINN

Veglínurnar sem eru bornar saman í matsskýrslunni
Veglínurnar sem eru bornar saman í matsskýrslunni

Vega­gerðin tel­ur að leið Þ-H um Gufu­dals­sveit sé besti kost­ur­inn við val á nýrri leið um Gufu­dals­sveit. Sú leið ligg­ur meðal ann­ars um Teigs­skóg í Þorskafirði. Í mats­skýrslu sem Vega­gerðin hef­ur nú lagt fram vegna um­hverf­is­mats kem­ur fram að vega­gerðin hafi óhjá­kvæmi­lega nei­kvæð áhrif á um­hverfið og er leið Þ-H önn­ur af tveim­ur leiðum sem hafa mest áhrif á lands­lagið. Þegar Skipu­lags­stofn­un hef­ur gefið út álit sitt á mats­skýrsl­unni sæk­ir Vega­gerðin um fram­kvæmda­leyfi til Reyk­hóla­hrepps. Stefnt hef­ur verið að því að hefjast handa í ár. Samkvæmt upplýsingum á vef Vegagerðarinnar er álits Skipulagsstofnunar að vænta í síðasta lagi 27. mars 2017.


Leið Þ-H þver­ar Þorska­fjörð, fer um Teigs­skóg og þver­ar Djúpa­fjörð og Gufu­fjörð. Hún stytt­ir Vest­fjarðaveg um helm­ing, eða rúma 20 km, á þess­um kafla og ligg­ur öll um lág­lendi.

...
Meira
01.03.2017 - 21:47 | Vestfirska forlagið,Morgunblaðið,Björn Ingi Bjarnason

1. mars 1915 - Kol úr Dufansdal í Arnarfirði

Dufansdalur í Arnarfirði.
Dufansdalur í Arnarfirði.
« 1 af 2 »
Íslensk kol voru seld í fyrsta sinn í Reykjavík þann 1. mars 1915. 

Þau voru frá Dufansdal við Arnarfjörð, voru ódýrari en innflutt kol og sögð gefa góðan hita....
Meira
01.03.2017 - 21:36 | Vestfirska forlagið,Morgunblaðið,Björn Ingi Bjarnason

Merkir Íslendingar - Sigurður Eggerz

Sigurður Eggerz (1875 - 1945).
Sigurður Eggerz (1875 - 1945).
Sigurður Eggerz ráðherra fæddist á Borðeyri 1. mars 1875. Foreldrar hans voru Pétur Friðriksson Eggerz, kaupstjóri þar, og Sigríður Guðmundsdóttir húsfreyja.

Í ættum Sigurðar og fjölskyldu eru óvenju margir alþingismenn og ráðherrar, s.s. bróðir hans, Guðmundur, alþingismaður og sýslumaður, og tveir mágar hans, Páll Ólafsson, ritstjóri og alþingismaður, og Ólafur Thorlacius alþingismaður, faðir Kristjáns Thorlacius sem var formanns BSRB og varaþingmaður.
Þá var Sigurður kvæntur Solveigu, dóttur Kristjáns Jónssonar ráðherra, bróður Péturs ráðherra og Steingríms, alþingismanns og bæjarfógeta á Akureyri, en þeir voru synir Jóns Sigurðssonar, alþingismanns og héraðshöfðingja á Gautlöndum, og eru því af Gautlandsætt og Reykjahlíðarætt, fjölmennustu ráðherraætt landsins.
Tengdamóðir Sigurðar var hins vegar Anna Þórarinsdóttir, dóttir Þórarins Böðvarssonar alþingismanns sem átti ræturnar að Holti í Önundarfirði.

...
Meira
01.03.2017 - 15:28 | Vestfirska forlagið,Fræðslumiðstöð Vestfjarða,Björn Ingi Bjarnason

Smári Haraldsson lætur af störfum hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða

Smári Haraldsson.
Smári Haraldsson.
« 1 af 3 »

Smári Haraldsson forstöðumaður vann sinn síðasta dag hjá Fræðslumiðstöðinni í gær, þriðjudaginn 28. febrúar 2017. Hann lætur nú af störfum eftir tæplega 16 ár.


Samstarfsfólk kvaddi sinn gamla yfirmann með góðum gjöfum, fögrum orðum og ómældu knúsi. Valið á gjöfunum sýndu að fólkið þekkir allar langanir og þrár yfirmanns síns. Þau gáfu honum bókina Jón lærði og náttúrur náttúrunnar eftir Viðar Hreinsson, en þessi bók var einmitt efst á óskalista Smára. Þá gáfu þau honum vinkil, tommustokk og tréblýant til að auðvelda honum viðhald og tómstundastarf, en Smári hefur oft kvartað sálega yfir því að hann mældi vitlaust og sagaði skakkt. Ennfremur fékk hann sérlega haganlega gerða bjórdós sem ekkert klikk heyrist í þegar hún er opnuð, þannig að Helga hans heyrir ekki þegar hann fær sér bjórinn. Bjórnum fylgdi súkkulaðistykki sem þau sögðu að væri aðeins fyrir Helgu þar sem þau fullyrtu að Smári segðist vera hættur að borða sætindi. Smári kannaðist reyndar ekkert við það. Til að kóróna þetta allt fylgdi gjöfinni svo fallegur blómvöndur.

...
Meira
Þessi mynd úr stofunni á Lokinhömrum er að vísu ekki tekin á bolludaginn. Samt var stórveisla  á afmælisdegi Sigurjóns bónda sem var fæddur 30 . 11. 1925. Frá vinstri: Sigríður Ragnarsdóttir, Hrafnabjörgum, Andrés G. Jónasson, Guðrún Steinþórsdóttir, Elís Kjaran og Sigurjón G. Jónasson. Ljósm.: H. S.
Þessi mynd úr stofunni á Lokinhömrum er að vísu ekki tekin á bolludaginn. Samt var stórveisla á afmælisdegi Sigurjóns bónda sem var fæddur 30 . 11. 1925. Frá vinstri: Sigríður Ragnarsdóttir, Hrafnabjörgum, Andrés G. Jónasson, Guðrún Steinþórsdóttir, Elís Kjaran og Sigurjón G. Jónasson. Ljósm.: H. S.
« 1 af 2 »
Það var fyrir 20-25 árum eða svo, sem þau Elli Kjaran og Guðrún á Hrafnseyri lögðu land undir belti á snjóbílnum Bomba. 

Fóru þau alla leið í Lokinhamradal með fullt af bollum sem frúin hafði sérbakað. Að vísu urðu þau að ganga fjörurnar langleiðina úr Stapadal, en töldu það ekki eftir sér. Þið getið nú rétt ímyndað ykkur hvort ekki hafi verið tekið vel á móti þeim af Sigríði á Hrafnabjörgum og Sigurjóni á Lokinhömrum. Maður lifandi! Slegið upp veislu. Þá hefur örugglega verið súkkulaði með þeyttum rjóma á borðum. 

Nú þýðir víst ekki að fara með bollur um þessar slóðir á bolludaginn. Nema þá fyrir álfana. Þeir halda ábyggilega sínu striki....
Meira
28.02.2017 - 21:39 | Vestfirska forlagið,Skessuhorn,Björn Ingi Bjarnason

Snæfellsbær styður áfram við Frystiklefann á Rifi

F.v.: Kári Viðarsson og Dýrfirðingurinn Kristinn Jónasson, bæjarstjóri, kampakátir eftir undirritun samningsins. Ljósm.: Frystiklefinn á Facebook.
F.v.: Kári Viðarsson og Dýrfirðingurinn Kristinn Jónasson, bæjarstjóri, kampakátir eftir undirritun samningsins. Ljósm.: Frystiklefinn á Facebook.
« 1 af 6 »
Í síðustu viku var ritað undir nýjan samstarfssamning milli Frystiklefans í Rifi og Snæfellsbæjar. Samningurinn felur í sér að samfélagsverkefnin Frystiklefans í leikskólum bæjarins, á dvalarheimilinu og ókeypis leiklistarnámskeið fyrir grunnskólabörn verða öll á dagskránni í sumar. 

„Nýtt í samningnum er samstarf um tónlistarhátíðina „Rafmagnslaust í Rifi.“ Það verkefni er í hugmyndafasa og verður mjög spennandi nýjung í íslenska tónlistarflóru,“ segir Kári Viðarsson frystihússstjóri. Kári þakkar forsvarsmönnum Snæfellsbæjar fyrir að taka vel í áframhaldandi samstarf og fyrir að skilja mikilvægi nýsköpunar og menningarstarfs á svæðinu....
Meira
Eldri færslur
« Janúar »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31