A A A
  • 1973 - Björn Henry Kristjánsson
  • 1999 - Friðfinnur Sigurður Sigurðsson
Pétur Bjarnason á góðri stund Vestfirðinga. F.v.: Jón Kr Ólafsson, Magnús Björnsson, látinn, Ólafur Helgi Kjartansson, Hafliði Magnússon, látinn og Pétur Bjarnason. Ljósm.: BIB
Pétur Bjarnason á góðri stund Vestfirðinga. F.v.: Jón Kr Ólafsson, Magnús Björnsson, látinn, Ólafur Helgi Kjartansson, Hafliði Magnússon, látinn og Pétur Bjarnason. Ljósm.: BIB

Í erindi sem Pétur Bjarnason frá Bíldudal, fyrrum fræðslustjóri Vestfjarða, flutti á málþingi í Bolungarvík 27. maí árið 2000 um séreinkenni Vestfirðinga, sagði hann meðal annars:


Vestfirðingurinn er hertur af umhverfi sínu og hann hefur þraukað við óblíð kjör í hundruð ára. Hann hefur lifað á fiski og fjörubeit þegar aðrir landsmenn hafa soltið í hel eða fallið í plágum. Hann er þrjóskari en sauðkindin og trúir því enn þann dag í dag að nálægðin við fiskimiðin muni verða honum til bjargar eins og fyrr. Hann hefur sína eigin menningu sem er tiltölulega sjálfbær og býsna fjölbreytt. Hann elur oft á kerskni við náungann, ekki vegna mannvonsku heldur til að honum líði sjálfum betur og meinar ekki alltaf mikið með því. Hann er dulur og sýnir væntumþykju sína oft með hranalegum hætti. Hann hefur þá bjargföstu trú að hann sé þó nokkuð skárri en aðrir landsmenn og geldur því varhug við aðkomumönnum. Þeir ná þó iðulega viðurkenningu hér svona eftir nokkurra áratuga búsetu þegar best lætur.”

...
Meira
21.06.2017 - 18:22 | bb.is,Björn Ingi Bjarnason,Hlaupahátíð 2016,Vestfirska forlagið

STRANDBLAKIÐ Á SÍNUM STAÐ

Strandblak verður á Dýrafjarðardögun en þeir eru 30. júní - 2. júlí 2017
Strandblak verður á Dýrafjarðardögun en þeir eru 30. júní - 2. júlí 2017
Það er áralöng hefð fyrir stigamóti í strandblaki á Þingeyri í tilefni Dýrafjarðardaga en þeir verða í ár 30. júní - 2. júlí. og í ár er engin undantekning.
Þetta mun vera í 12. skipti sem mótið er haldið á Þingeyri, en það er Íþróttafélagið Höfrungur sem stendur fyrir mótinu. Þetta er þriðja stigamótið á árinu og munu  stigahæstu liðin keppa á Íslandsmótinu síðar í sumar. Keppt er í fullorðinsflokki, bæði kvenna og karla og að sögn Dýrleifar Hönnu Sigmundsdóttur mótsstjóra rennur skráningarfrestur út mánudaginn 26. júní. ...
Meira
21.06.2017 - 18:18 | bb.is,Björn Ingi Bjarnason,Vestfirska forlagið

FYRSTU VINNUBÚÐIRNAR KOMNAR Í ARNARFJÖRÐ

Vinnubúðirnar skammt frá Mjólkárvirkjun í Arnarfirði.
Vinnubúðirnar skammt frá Mjólkárvirkjun í Arnarfirði.
Vinna við undirbúning Dýrafjarðarganga er að komast á fullan skrið. Í síðustu viku var byrjað að flytja á staðinn og setja upp fyrsta hluta vinnubúða í Arnarfirði. Vinnubúðirnar úr Kerlingarfirði, en þar hafa þær staðið sían Suðuverk lauk vegagerð um Kerlingarfjörð og Kjálkafjörð árið 2015.
Eins og sést á meðfylgjandi mynd eru búðirnar skammt frá Mjólkárvirkjun, en þar hafa staðið vinnubúðir áður í tengslum við virkjunina....
Meira
21.06.2017 - 08:19 | Vestfirska forlagið,Hallgrímur Sveinsson,Björn Ingi Bjarnason,bb.is

FIMMTA HJÓLABÓK ÓMARS SMÁRA

« 1 af 3 »

Hjá Vestfirska forlaginu er komin út fimmta Hjólabókin eftir Ómar Smára Kristinsson og fjallar hún um Rangárvallasýslu. Viltu ferðast á frábæra staði? Viltu samt losna við fjölmenni? Þá er reiðhjólið rétti ferðamátinn og Rangárvallasýsla rétti staðurinn. Svo segir höfundur hjólabókanna, en hann er fæddur í Rangárvallasýslu.


Í bókinni er lýst ellefu hjólreiðaleiðum, auðveldum og erfiðum, sem eiga það sameiginlegt að þær liggja í hring og að hægt er að loka hringnum á einum degi. Hverri leiðarlýsingu fylgja tillögur að fleiri ferðum. Þar að auki er nokkurra léttra hringleiða, sem ekki teljast til dagleiða, getið í bókinni. Einnig er í henni að finna kort af almenningssamgöngum og umferðarþunga.

...
Meira
21.06.2017 - 07:56 | Vestfirska forlagið,Björn Ingi Bjarnason

21. júní 2017 - Sumarsólstöður

Við Dýrafjörð. Ljósm.: Davíð Davíðsson.
Við Dýrafjörð. Ljósm.: Davíð Davíðsson.
« 1 af 2 »

Í dag, miðvikudaginn 21. Júní 2017, eru sólstöður að sumri, en þá er dagurinn lengstur hjá okkur. Á því augnabliki snýr norðurpóll jarðar næst sólu.


Upp úr þessu fara dagarnir að styttast en þrátt fyrir það mun þó líklega hlýna enn um sinn því að meðaltali er hvað hlýjast í lok júlí.


21. júní 2017 – Þjóðhátíðardagur Grænlendinga

...
Meira
20.06.2017 - 20:48 | Hallgrímur Sveinsson,Vestfirska forlagið

Vestfirðingar hafa alla tíð staðið í stafni hjá þjóðinni!

Eiríkur Kristófersson. Síðasta myndin sem tekin var af honum í fullum skrúða.
Eiríkur Kristófersson. Síðasta myndin sem tekin var af honum í fullum skrúða.

Það sannast jafnvel daglega ef einhver ber af í þessu þjóðfélagi, eða er eitthvað öðruvísi en aðrir, þá er hann oftar en ekki Vestfirðingur eða a.m.k. af vestfirskum ættum. 


   Ekki þarf að fara mörgum orðum um íslensku sjómannastéttina. Þar má heita valinn maður í hverju rúmi fyrr og síðar. Með allra harðfengustu mönnum á jarðarkringlunni. Úrræðagóðir og gætnir en samt framsæknir. Þar skipa Vestfirðingar öndvegið í huga margra okkar landkrabbanna. Standa í stafni. Til dæmis Eiríkur Kristófersson, skipherra, Barðstrendingurinn frá Brekkuvelli. Og fleiri kommandöra má nefna eins og Þröst Sigtryggsson og fleiri og fleiri. Á 35 ára starfsferli sínum hjá Landhelgisgæslunni tók Eiríkur þátt í 640 björgunaraðgerðum, smáum sem stórum, við ýmiskonar aðstæður. Margir áttu honum líf að launa.

...
Meira
20.06.2017 - 07:05 | Vestfirska forlagið,Morgunblaðið,Björn Ingi Bjarnason

Birkir Friðbertsson - Fæddur 10. maí 1936 - Dáinn 5. júní 2017 - Minning

Birkir Friðbertsson (1936 - 2017).
Birkir Friðbertsson (1936 - 2017).
Birkir Friðbertsson fæddist 10. maí 1936 í Botni í Súgandafirði.
Hann lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði 5. júní 2017. 
Foreldrar hans voru Friðbert Pétursson og Kristjana Guðrún Jónsdóttir. 
Birkir gekk í Barnaskólann á Suðureyri og Gagnfræðaskólann á Akranesi og útskrifaðist sem búfræðingur frá Bændaskólanum á Hvanneyri árið 1954. 
Birkir giftist Guðrúnu Fanný Björnsdóttur, f. 16.7. 1936, þann 13.11. 1957.
Þau eignuðust sex börn;...
Meira
19.06.2017 - 20:48 | Vestfirska forlagið,Morgunblaðið,Björn Ingi Bjarnason

19. júní 1915 - kon­ungs­úrsk­urður um gerð ís­lenska fán­ans

Flaggað íslenskum fána við Fánsetur Suðurlands á Eyrarbakka.
Flaggað íslenskum fána við Fánsetur Suðurlands á Eyrarbakka.
Þann 19. júní árið 1915 var gef­inn út kon­ungs­úrsk­urður um gerð ís­lenska fán­ans.

Hann átti að vera þrílit­ur:


„Heiðblár (ultram­ar­in­eblár) með hvít­um krossi og hárauðum krossi inn­an í hvíta kross­in­um.“


Litirnir áttu að tákna fjallablámann, ísinn og eldinn. 

...
Meira
Eldri færslur
« Janúar »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31