A A A
  • 1973 - Björn Henry Kristjánsson
  • 1999 - Friðfinnur Sigurður Sigurðsson
19.06.2017 - 06:56 | Vestfirska forlagið,Júlía B. Björnsdóttir,Björn Ingi Bjarnason

Herðubreið – drottning íslenskra fjalla í þjóðhátíðarbúningi

Fjallið Herðubreið þann 17. júní 2017. Ljósm.: Júlía B. Björnsdóttir.
Fjallið Herðubreið þann 17. júní 2017. Ljósm.: Júlía B. Björnsdóttir.
« 1 af 2 »

HERÐUBREIÐ er þjóðarfjallið í huga flestra Íslendinga ef marka má niðurstöður könnunar sem gerð var á árinu 2002.


Vel á þriðja þúsund manns þátt í könnuninni sem fór fram á Netinu. Flestir eða 48% töldu Herðubreið vera þjóðarfjallið, 16% nefndu Heklu og 13% Snæfellsjökul en alls voru nefnd 75 fjöll.


Herðubreið er 1682 metra hátt móbergsfjall norðan Vatnajökuls. Hún er í Ódáðahrauni og er oft nefnd „Drottning íslenskra fjalla“ vegna þess hve mörgum finnst hún formfögur.

...
Meira
19.06.2017 - 06:47 | Björn Ingi Bjarnason,Morgunblaðið,Vestfirska forlagið

19. júní 1915 - Kvenréttindadagurinn

Kristján konungur X staðfesti breytingar á stjórnarskránni þann 19. júní árið 1915. 
Konur fengu þá kosningarétt og kjörgengi til Alþingis, en fyrst í stað var miðað við 40 ára og eldri. 
Réttindunum var fagnað á Austurvelli 7. júlí, við setningu Alþingis...
Meira
18.06.2017 - 11:19 | Vestfirska forlagið,Hallgrímur Sveinsson,Björn Ingi Bjarnason

Ársfundur Vestfirska forlagsins

Halla Óalfsdóttir og frétt árins 2016 á Þingeyrarvefnum.
Halla Óalfsdóttir og frétt árins 2016 á Þingeyrarvefnum.
« 1 af 5 »

Vestfirska forlagið hélt ársfund á Þingeyri við Dýrafjörð þann 6. júní sl.
Á dagskrá fundarins voru þrjú atriði:


1.  Farið yfir útgáfa ársins 2016


2.   Stefnumótun vegna útgáfu ársins 2017


3.  Þingeyrarvefurinn á árinu 2016

Hér á Þingeyrarvefnum verður bráðlega gerð grein fyrir útgáfumálum Vestfirska forlagsins á árinu 2017.
Vestfirska forlagið hefur séð um Þingeyrarvefin í rúm 3 ár. Á árinu 2016 komu á vefinn 863 fréttir sem er að meðaltali 72 fréttir á mánuði.
Vinsælasta og mest metna fréttin var þann 16. september 2016 þegar Halla Ólafsdóttir, fréttamaður RUV á Ísafirði, fékk „hrós dagsins“ frá Þingeyrarvefnum....
Meira
18.06.2017 - 10:58 | Björn Ingi Bjarnason,Morgunblaðið,Vestfirska forlagið

Dóra Laufey Sigurðardóttir - Fædd 16. des. 1928 - Dáin 1. júní 2017 - Minning

Dóra Laufey Sigurðardóttir (1928 - 2017).
Dóra Laufey Sigurðardóttir (1928 - 2017).
Dóra Lauf­ey Sig­urðardótt­ir fædd­ist 16. des. 1928 að Hvoli í Saur­bæ. Hún lést 1. júní 2017.

For­eldr­ar henn­ar voru sr. Sig­urður Zóph­on­ías Gísla­son, prest­ur Staðar­hólsþinga í Dala­sýslu en síðan í Sanda­prestakalli í Dýraf­irði, f. 15. júlí 1900, d. 1. jan. 1943, og Guðrún Jóns­dótt­ir, f. 5. jan. 1904, d. 9. sept. 1963.


Systkini henn­ar: Ólöf hús­mæðra­kenn­ari, f. 25.11. 1927, d. 4.8. 1995, Jón, f. 14.3. 1932, hljómlist­armaður, d. 30.4. 2007, Ásgeir, f. 11.11. 1933, tónl.skóla­stj., Jón­as Gísli, f. 22.5. 1935, sím­virki, Gunn­ar, f. 25.1. 1939, end­ur­skoðandi.


Maki 1) (28.8. 1954) Hörður Krist­ins­son loft­skeytamaður, f. 27.8. 1929 í Hafnar­f­irði, fórst með tog­ar­an­um Júlí 8.2. 1959.

...
Meira
18.06.2017 - 08:37 | Björn Ingi Bjarnason,Ungmennafélag Íslands,Vestfirska forlagið

Landsmót UMFÍ 50+ fer fram 23. - 25. júní 2017 í Hveragerði

Frá Héraðsmóti að Núpi í Dýrafirði  um eða rétt fyrir 1980. Ljósm.: BIB
Frá Héraðsmóti að Núpi í Dýrafirði um eða rétt fyrir 1980. Ljósm.: BIB

Mótið er blanda af íþróttakeppni og annarri keppni, hreyfingu og því að fá fólk á besta aldri til að hafa gaman saman.  Mótið er öllum opið sem verða 50 ára á árinu og eldri. Mótið hefst föstudaginn 23. júní og lýkur eftir hádegi, sunnudaginn 25. júní.


Landsmót UMFÍ 50+ var fyrst haldið árið 2011 og því verðu þetta í 7. sinn sem þetta skemmtilega mót er haldið. UMFÍ hefur úthlutað mótinu til HSK sem er mótshaldari að þessu sinni. Hveragerðisbær er bakhjarl mótsins og kemur að undirbúningi og framkvæmd mótsins á margan hátt.

...
Meira
18.06.2017 - 06:42 | Hallgrímur Sveinsson,Vestfirska forlagið

Ný félagsrit

Jón Sigurðsson (1811 - 1879).
Jón Sigurðsson (1811 - 1879).

Vorið 1841 hófu Jón og nokkrir félagar hans útgáfu á Nýjum félagsritum og var það ársrit. Hafði Jón veg og vanda af ritinu alla tíð og var það höfuðmálgagn hans. Þar barðist hann fyrir stjórnfrelsi, kjörfrelsi, málfrelsi, verslunarfrelsi og atvinnufrelsi til handa Íslendingum. Hann birti í ritinu ótal hvatningagreinar til Íslendinga um hvaðeina sem verða mátti landinu til viðreisnar.


   Útgáfan var alltaf mjög erfið og mætti misjöfnum skilningi heima á Íslandi. Ný félagsrit komu út í 30 ár. Það er skemmtilegt að geta þess, að upplagið var geymt uppi á lofti konungshallarinnar, Amalíuborgar. 

Veist þú hvílíkt afrek það var að halda úti Nýjum félagsritum í öll þessi ár?

...
Meira
17.06.2017 - 22:26 | Vestfirska forlagið,Hallgrímur Sveinsson

Í tilefni dagsins: - Jón Sigurðsson í nauðum staddur

Jón Sigurðsson.
Jón Sigurðsson.

Árið 1855 var Jón Sigurðsson illa staddur fjárhagslega. Mátti rekja það beint til starfa hans í þágu Íslendinga.


Stuðningsmenn hans hér heima efndu þá til samskota honum til handa. Þá söfnuðust á öllu landinu 47 ríkisdalir og 76 skildingar. Það ár skutu Íslendingar saman 1480 ríkisdölum til að reisa styttu af Marteini Lúther suður í Þýskalandi. Og eitt sinn er safna átti í heiðursgjöf til Jóns varð mönnum ekkert ágengt. En í prófastsdæmi nokkru á landinu söfnuðust 602 ríkisdalir og 42 skildingar til kristniboðs í Kína. 

Vissir þú þetta?


 

...
Meira
17.06.2017 - 22:14 | Vestfirska forlagið,Hallgrímur Sveinsson

Jón Sigurðsson tók loks af skarið: - Ingibjörg sat í festum í 12 ár!

Jón Sigurðsson og Ingibjörg Einarsdóttir.
Jón Sigurðsson og Ingibjörg Einarsdóttir.

Vorið 1845 hélt Jón Sigurðsson til Íslands til að sitja endurreist Alþingi fyrir Ísafjarðarsýslu og vitja heimhaganna fyrir vestan. Um haustið voru þau Ingibjörg Einarsdóttir gefin saman í hjónaband í Dómkirkjunni í Reykjavík. Hafði hún þá setið í festum, sem kallað var, í 12 ár. Þá var hún 41 árs en hann 34 ára. Þau voru bræðrabörn.


Meðfylgjandi ljósmynd, sem ekki er vitað hver tók, var smellt af skömmu eftir brúðkaupið. Er hún ein elsta ljósmynd sem til er af Íslendingum. Á myndinni er Jón dökkur á brún og brá, sem sjá má. Skömmu síðar varð hann hvíthærður og var það alla tíð síðan. Er það einkenni úr móðurætt hans að vestan.
Svo er annað. Þetta er eina ljósmyndin sem vitað er um af Jóni Sigurðssyni þar sem önnur persóna er á mynd með honum. 

...
Meira
Eldri færslur
« Janúar »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31