A A A
  • 1950 - Árni Ásbjörn Jónsson
  • 1962 - Siggeir Stefánsson
28.06.2017 - 07:07 | Vestfirska forlagið,Dýrafjarðardagar,Björn Ingi Bjarnason

Kynlíf í Íslendingasögunum

Óttar Guðmundsson verður á Gíslastöðum í Haukadal.
Óttar Guðmundsson verður á Gíslastöðum í Haukadal.
Hinn umdeildi, en bráðskemmtilegi og geðþekki geðlæknir og rithöfundur Óttar Guðmundsson snýr aftur á heimavöll Gísla Súrssonar í Haukadal með fyrirlesturinn "Kynlíf í Íslendingasögunum".

Árið 2015 fjallaði Óttar um geðsjúkdóma og persónuleikaraskanir í Íslendingasögunum, en nú gengur hann skrefinu lengra og gægist undir rekkjuvoðirnar í baðstofum og skálum sögualdar og lýsir því sem fyrir augu ber í nánum samkiptum fornra kappa og kvenhetja með augum geðlæknis og túlkar.

Fyrirlesturinn er á Gíslastöðum í Haukadal  föstudaginn 30. júní 2017. Húsið opnar kl. 20:00 en fyrirlesturinn hefst kl 20:30 - heitt á könnunni.

Aðgangseyrir kr. 1.500 - en innifalin í armbandi hátíðarinnar



« Desember »
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31