Hlaupahátíð á Vestfjörðum 2017
Nú styttist í hátíðina og langar okkur að minna á nokkur atriði sem skipta máli á næstu dögum
Skráningu á hlaupahatid.is lýkur fimmtudaginn 13. júlí klukkan 08.00 en eftir það verður hægt að skrá sig í versluninni CraftSport við Austurveg á Ísafirði. Þar verður opið fimmtudaginn 13. júlí frá 16-18 og föstudaginn 14. júlí frá 12-18. Einnig verður hægt að skrá sig á Þingeyri á laugardag í tjaldi sem verður fyrir utan íþróttahúsið á Þingeyri.
Athugið að þeir sem skrá sig eftir að forskráningu lýkur fara ekki í pott þar sem dregnir verða út útdráttarvinningar. Þetta er gert til þess að hvetja fólk til að skrá sig í forskráningu þar sem það auðveldar okkur alla vinnu.
Þeir sem skrá sig í forskráningu fá sendan tölvupóst með helstu atriðum varðandi hátíðina. Einnig verður hægt að nálgast þann minnislista á skráningarstöðum hátíðarinnar.
Ef einhver lendir í því að skráningin þeirra gengur ekki í gegn þá er sá hinn sami beðinn um að senda tölvupóst á hlaupahatid@hlaupahatid.is og við munum finna út úr því. Einnig ef þið hafið einhverjar spurningar eða viljið breyta skráningunni ykkar.
Annars hlökkum við bara til að sjá ykkur á hátíðinni okkar 14-16 júlí 2017
Dagskrá Hlaupahátíðar á Vestfjörðum 2017
Dagskrá hlaupahátíðarinnar í heild sinni lítur þannig út:
Föstudagur 14. júlí
- Kl. 16:00 Sjósund 1500 m (2000 kr)
- Kl. 16:00 Sjósund 500 m (2000 kr)
- Kl. 20:00 Arnarneshlaup 21 km (3500 kr)
- Kl. 20.30 Arnarneshlaup 10 km (2500 kr)
- kl. 22.00 Verðlaunaafhending á Silfurtorgi fyrir Arnarneshlaup
Laugardagur 15. júlí
- Kl. 10.00 Fjallahjólreiðar 55 km (5000 kr)
- Kl. 10.15 Skemmtihjólreiðar 8 km (500 kr)
- Kl. 11.30 Skemmtiskokk á Þingeyri, 2 og 4 km (500 kr)
- Útijóga, vöfflubakstur og fleira skemmtilegt við sundlaugina á Þingeyri
- Athugið að tímasetning á skemmtihjólreiðum getur breyst
Sunnudagur 16. júlí
- Kl. 08:00 Tvöföld Vesturgata 45 km (6000 kr)
- Kl. 11:00 Heil Vesturgata 24 km (6000 kr)
- Kl. 12:45 Hálf Vesturgata 10 km (4000 kr)
Þríþraut samanstendur af 500 m sjósundi, 55 km fjalahjólreiðum og 24 km Vesturgata (10000 kr)
Tilgreindir tímar eru rástímar. Allar nánari upplýsingar um mætingu og rútuferðir er að finna inni á síðu hverrar greinar fyrir sig.