Hafþór Gestsson situr hér hlæjandi við hlið Hafliða Magnússonar eftir keppnina í maí 2011. Efst t.v. má sjá Dýrfirðingana Eggert Guðmundsson og Guðmund Júlíus Þórðarson ásamt eiginkonum.
T.v. er Hafþór Gestsson, Suðurlandsmeistari í krossgátukeppni í maí 2011 eftir nauman sigur á Bjarkari Snorrasyni t.h.
Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður á Selfossi, dró út verðlaunahafa með aðstoð Sigmundar Sigurgeirssonar, ritstjóra Sunnlenska fréttablaðsins og Björns Inga Bjarnasonar hjá Vestfirska forlaginu.
Sautján heppnir lesendur Sunnlenska fréttablaðsins á Selfossi voru dregnir úr hópi þeirra sem sendu inn rétt svör í verðlaunakrossgátu blaðsins og Vestfirska forlagsins sem var í jólagjafahandbók blaðsins. Krossgátan var í minningu Hafliða Magnússonar frá Bíldudal.
Þátttakan var gríðarleg og þökkum við kærlega öllum þeim sem sendu inn lausnir og óskum verðlaunahöfum til hamingju með bækur Vestfirska forlagsins 2012 sem voru vinningar. Meðal vinningshafa var Krossgátumeistari Suðurlands, Hafþór Gestsson á Eyrarbakka. Hann vann krossgátukeppni sem Hrútavinafélagið Örvar stóð fyrir að forskrift Hafliða Magnússonar en keppnin var rétt mánuði fyrir andlát hans þann 25. júní 2011. Hugmyndir eru uppi um að endurtaka slíka keppni á vordögum í minningu Hafliða.
Vinningshafarnir 17 að þessu sinnu eru:
...
Meira