Krossgátumeistari Suðurlands meðal vinningshafa
Sautján heppnir lesendur Sunnlenska fréttablaðsins á Selfossi voru dregnir úr hópi þeirra sem sendu inn rétt svör í verðlaunakrossgátu blaðsins og Vestfirska forlagsins sem var í jólagjafahandbók blaðsins. Krossgátan var í minningu Hafliða Magnússonar frá Bíldudal.
Þátttakan var gríðarleg og þökkum við kærlega öllum þeim sem sendu inn lausnir og óskum verðlaunahöfum til hamingju. Meðal vinningshafa var Krossgátumeistari Suðurlands, Hafþór Gestsson á Eyrarbakka. Hann vann krossgátukeppni sem Hrútavinafélagið Örvar stóð fyrir að forskrift Hafliða Magnússon en keppnin var mánuði fyrir andlát hans þann 25. júní 2011. Hugmyndir eru uppi um að endurtaka slíka keppni á vordögum í minningu Hafliða.
Vinningshafarnir 17 að þessu sinnu eru:
Nína Björg Knútsdóttir – Selfossi
Jóhannes Sigmundsson – Syðra-Langholti
Guðlaugur Valtýsson – Þorlákshöfn
Helga Baldursdóttir – Hveragerði
Þórdís Hannesdóttir – Selfossi
Ólafur Einarsson – Hurðarbaki 1
Ásta Stefánsdóttir – Selfossi
Gunnlaugur Briem Vilhjálmsson – Selfossi
Ragnheiður Guðrún Júlíusdóttir – Selfossi
Ingvar Guðmundsson – Hvolsvelli
Linda Björk Hrafnkelsdóttir – Selfossi
Hafþór Gestsson – Eyrarbakka
Símon Tómasson – Selfossi
Ásdís Sigurðardóttir – Selfossi
Óskar H. Ólafsson – Selfossi
Steinunn Eyjólfsdóttir – Selfossi
Ásdís Kristinsdóttir – Rangárþingi eystra
Vestfirska forlagið og Sunnlenska fréttablaðið.