Góukaffi á Cafe Catalina og sýningin frá Djúpi til Dýrafjarðar
Góu-kaffi verður í dag sunnudaginn 3. mars 2013
í veitingahusinu Cafe Catalinu, Hamraborg 11 í Kópavogi, kl. 15:00 -17:00
Kaffihlaðborð að önfirskum hætti
Á Góukaffinu verður Elfar Guðni Þórðarson, listmálari á
Stokkseyri, með málverkasýningu þar sem hann sýnir Vestfjarðamyndir sem hann
málaði s.l. haust vestra. Hann dvaldi í þrjár viku í Mannlífs- og menningarsetri
Önfirðingafélagsins að Sólabkka 6 á Flateyri. Sýninguna nefnir hann - Frá Djúpi til
Dýrafjarðar-
Allir hjartanlega velkomnir
Dýrfirðingarnir sigruðu einir Vestfjarðafélaga
Fyrra keppniskvöldið í forkeppninni í Spurningakeppni átthagafélaganna sextán fór fram í gærkvöldi í troðfullri Breiðfirðingabúð í Reykjavík.
.
Dýrfirðingafélagið sigraði glæsilega mjög sterkt lið Stokkseyringafélagsins.
Skaftfellingafélagið sigraði Djúpmannafélagið
Húnvetningafélagið sigraði Átthagafélag Strandamanna og
Árnesingafélagið sigraði Önfirðingafélagið
.
Lið Dýrfirðingafélagsins skipuðu:
Meira
Vestfirska forlagið á bókamarkaði í Perlunni
Bókamarkaður Félags íslenskra bókaútgefenda 2013 er haldinn eins og venjulega í Perlunni dagana 22. febrúar til og með 10. mars. Markaðurinn er opinn alla daga frá kl. 10:00 - 18:00 og að venju er boðið upp á mikið úrval bóka á mikið lækkuðu verði.
Vestfirska forlagið á Þingeyri tekur sem fyrr þátt í þessum vinsæla bókamarkaði.
Perluna ættu allir að þekkja og er hún eitt helst kennileiti Reykjavíkur þar sem hún trónir á toppi Öskjuhlíðar.
Hrafn GK 111 (Sléttanes ÍS 808) er 30 ára í dag
Skipið hét áður Sléttanes ÍS 808 og var byggt í Slippstöðinni á Akureyri fyrir Fáfni hf. á Þingeyri sem var útgerðarfélag Kaupfélags Dýrfirðinga.
Skipið var lengt og breytt í frystiskip árið 1993.
Lið Dýrfirðingafélagsins í Spurningakeppni átthagafélaganna
Torfi Sigurðsson (Guðmundssonar frá Hjarðardal og Öddu frá Mýrum),
Gyða Hrönn Einarsdóttir (Gunnarssonar og Ásrúnar Leifsdóttur),
Þorbergur Steinn Leifsson (Þorbergssonar og Ásu)
Jóhann V. Gíslason (og Borgu frá Höfða)
Bergþóra Valsdóttir (Benediktssonar og Þorbjargar Ólafsdóttur úr Haukadal)
Sigurður J. Bergsson (Torfasonar frá Felli og Emilíu Sigurðardóttir)...
Meira
Fjöldi skoðar Fjallkonuna í Þjóðarbókhlöðunni
Samstarfsaðilar Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns um sýninguna eru Vetrarhátíð í Reykjavík, félagið Matur - saga – menning, Reynir Ingibjartsson, Kvennasögusafnið og Miðstöð munnlegrar sögu.
Sýningarstjóri er Djúpmaðurinn Ólafur J. Engilbertsson.
Dýrfirðingurinn Kristín Dahlstedt og starfsemi hennar er viðfangsefnið í sýningunni um veitngahúsamenninguna....
Meira
Saga ambáttarinnar Korku í einni bók
Sagan gerist á upphafsárum Íslandsbyggðar og aðalsöguhetjan er ambáttin Korka sem þarf sannarlega að berjast fyrir sínu. Vilborgu lætur einkar vel að skrifa um sterkar konur og kann sömuleiðis að skapa spennu.
Fjölmargir aðdáendur skáldkonunnar hljóta að fagna því að fá sögu Korku í einni bók.
Morgunblaðið sunnudagurinn 17. febrúar 2013.