Dýrfirðingarnir sigruðu einir Vestfjarðafélaga
Fyrra kvöldið í forkeppninni í Spurningakeppni átthagafélaganna sextán fór fram í gærkvöldi í troðfullri Breiðfirðingabúð í Reykjavík.
Dýrfirðingafélagið sigraði glæsilega mjög sterkt lið Stokkseyringafélagsins.
Skaftfellingafélagið sigraði Djúpmannafélagið
Húnvetningafélagið sigraði Átthagafélag Strandamanna og
Árnesingafélagið sigraði Önfirðingafélagið
Lið Dýrfirðingafélagsins skipuðu:
Torfi Sigurðsson (Guðmundssonar frá Hjarðardal og Öddu
frá Mýrum), Gyða Hrönn Einarsdóttir (Gunnarssonar og
Ásrúnar Leifsdóttur), og Jóhann V. Gíslason (og
Borgu frá Höfða)
Seinna kvöld forkeppninnar verður 7. mars og þá keppa:
Barðstrendingafélagið - Breiðfirðingafélagið
Súgfirðingafélagið - Átthagafélag Sléttuhrepps
Átthagafélag Héraðsmanna - Vestfirðingafélagið
Siglfirðingafélagið - Norðfirðingafélagið
Átta liða úrslitin fara svo fram 21. mars þar sem
Dýrfirðingafélagið keppir eftir sigurinn í gær,
undanúrslitin verða 11. apríl og
úrslitin verða á síðasta vetrardag, 24. apríl. Eftir úrslitin munum við ljúka
keppninni með heilmiklu húllumhæi og dansi fram á nótt.
Húsið opnar klukkan 19:30 og keppnirnar
hefjast stundvíslega klukkan 20:00. Aðgangseyrir er 500 krónur og hægt verður
að kaupa kaffi og gos.
Allar keppnirnar verða sýndar á sjónvarpstöðinni -INN-hjá Ingva Hrafni.