Bíldudalstengin hluti af nýjum vegi
Meira
Hjónin Sigríður Helgadóttir og Friðfinnur Sigurðsson, betur þekkt sem Sirrý og Finni, reka gistihúsið Við Fjörðinn á Þingeyri við Dýrafjörð og hafa gert síðan árið 2000. „Hjá okkur er góð aðstaða fyrir bæði hópa og einstaklinga, við erum með átta herbergi og þrjár íbúðir og ein íbúðin er sérútbúin fyrir hreyfihamlaða,“ segir Sirrý en gistihúsið Við Fjörðinn er opið yfir sumartímann og eftir samkomulagi yfir veturinn.
„Herbergin í gistihúsinu eru rúmgóð og hægt er að leigja herbergi með baði eða með aðgangi að sameiginlegu baðherbergi. Eins bjóðum við upp á morgunmat og er hann borinn fram í garðskálanum okkar úti í garði. Aðgangur að interneti er í húsinu, boltaáskriftin er klár fyrir þá sem hafa áhuga á fótbolta,“ segir Sirrý og hlær við.
...Eiginkona Hjálmars var Else Sørensen húsfreyja.
Hjálmar lauk stúdentsprófi frá MR 1939, stundaði nám í tréskipasmíði við skipasmíðastöð BGT á Ísafirði 1940, nám í flugvélasmíði við Marinens Flyvevåben í Kaupmannahöfn 1940, stundaði verklegt nám í stálskipasmíði, rafsuðu, járnsteypu og rennismíði við Ørlogsværftet á námstíma í verkfræði í Kaupmannahöfn, lauk prófum í skipaverkfræði frá DTH 1947, lærði jafnframt flugvélaverkfræði sem aukagrein og sótti námskeið í tæknilegri ljósmyndun.
Hjálmar var skipaverkfræðingur hjá Helsingör Skibsværft og Maskinbyggeri A/S í Danmörku, hjá Cook, Welton & Gemmel Ltd og hjá Stálsmiðjunni hf. í Reykjavík 1948-54. Hann var skipaskoðunarstjóri og skipaskráningarstjóri 1954-70, siglingamálastjóri 1970-85 og forseti Alþjóðasiglingamálastofnunar SÞ í Lundúnum 1969-71.
...Sæmundur var sonur séra Ögmundar, á Krossi, bróður séra Böðvars í Holtaþingum, föður séra Þorvaldar í Holti, forföður ýmissa menningarforkólfa, s.s. Vigdísar Finnbogadóttur, Matthíasar Johannessen og Gylfa Þ. Gíslasonar.
Kona Tómasar var Sigríður Þórðardóttir, sýslumanns í Garði Björnssonar og komust upp tvö börn þeirra, Þórhildur, kona Helga Hálfdánarsonar lektors, og Þórður, héraðslæknir á Akureyri.
Tómas lærði hjá Steingrími Jónssyni í Odda, síðar biskupi, lauk stúdentsprófi frá Bessastaðaskóla 1827, tók 2. lærdómspróf við Hafnarháskóla, lauk próf í hebresku 1831 og guðfræðiprófi 1832. Hann ferðaðist um Suður-Evrópu 1832-34 og stofnaði Fjölni, er hann kom til baka, ásamt Jónasi Hallgrímssyni, Brynjólfi Péturssyni og Konráð Gíslasyni.
Tómas fékk Breiðabólstað í Fljótshlíð 1834, varð prófastur Rangárþings 1836 og hélt Breiðabólstað til dánardags. Hann var líklega áhugasamastur og raunsæjastur um Fjölni, skrifaði mikið í ritið og gagnrýndi Konráð fyrir ofstæki í stafsetningarmálum og Jónas fyrir róttækni og harða gagnrýni á menn.
...Þær komu hingað vestur í sauðburðinn fjórar vinnukonur úr Reykjavík. Eiga ættir að rekja til Þingeyrar. Það hefur auðvitað allt gengið eins og í sögu. Þær fengu náttúrlega að fara í leiktækin við barnaskólann og leikskólann. Skemmst er frá því að segja, að þær voru mjög ánægðar með alla aðstöðu þar. Og leiktækin bara „eðal“ eins og það var orðað. Þær hafa samanburðinn af Stór-Reykjavíkursvæðinu.
Og taki nú þeir til sín sem eiga: Heiður þeim sem heiður ber.