RÚTUFERÐIR MILLI KEFLAVÍKURFLUGVALLAR OG AKUREYRAR
Ferðaþjónustufyrirtækið Gray Line (Allrahanda) hefur fyrir nokkru hafið beinar áætlunarferðir milli Akureyrar og Keflavíkurflugvallar.
Í apríl og maí var ekið þrisvar í viku en daglega ekið yfir sumarið fram í miðjan september.
Áætlun Gray Line Airport Express er með þeim hætti að brottför er frá Keflavík kl. 17.00, komið til Akureyrar um kl. 23.00. Þaðan er haldið kl. 23.15 og komið til Keflavíkur kl. 05.15. Flugfarþegar sem koma til landsins síðdegis komast þannig norður fyrir miðnætti og farþegar að norðan komast beint í morgunflug.
Á leiðinni er stoppað fyrir farþega í Borgarnesi, Staðarskála, Blönduósi og Varmahlíð.
Fargjald aðra leið er 11.000 milli Akureyrar og Keflavíkur, Varmahlíð 10.000 kr., Blönduós 9.000 kr., Staðarskáli 7.000 kr. og Borgarnes 4.500 kr.
...Meira