A A A
  • 1920 - Jón Þ Sigurðsson
  • 1940 - Edda Arnholtz
  • 1992 - Ólöf Guðbjörg Jónasdóttir
  • 2006 - Jóhann Króknes Torfason
  • 2006 - Sigríður Króknes Torfadóttir
29.09.2016 - 05:42 | Erna Höskuldsdóttir,Grunnskóli Þingeyrar,Vestfirska forlagið

Nemendaráð Grunnskólans á Þingeyri skólaárið 2016-17

Sl. föstudag var kosið til nemendaráðs skólaárið 2016-17. Nemendur í 7.-10. bekk geta kosið nemendur í 8.-10. bekk sem hafa boðið sig fram í eftirfarandi embætti:



  • formaður

  • ritari

  • gjaldkeri

  • skemmtistjóri 

  • plötusnúður


Kosningin gekk vel og héldu nemendur flottar framboðsræður. Niðurstöður kosninganna urðu:

...
Meira
28.09.2016 - 17:11 | Vestfirska forlagið,Komedia,Elfar Logi Hannesson

Gísli á Uppsölum á Þingeyri

Gísli á Uppsölum sýndur í miðstöð leiklistar á Vestfjörðum.
Gísli á Uppsölum sýndur í miðstöð leiklistar á Vestfjörðum.
« 1 af 2 »

Síðasta sunnudag var einleikurinn um Gísla á Uppsölum frumsýndur á söguslóðum. Sýnt var fyrir stappfullri Selárdalskirkju og hlaut verkið afar góðar viðtökur. Nú hefst leikferð okkar um landið og það er við hæfi að skunda yfir í næsta fjörð og hefja þar sýningar. 


Gísli á Uppsölum verður sýndur í Félagsheimilinu á Þingeyri á laugardag 1. október 2016 kl.20. Miðasala er þegar hafin og fer aðeins fram á netinu. Það eina sem þarf að gera er að fara inná heimabanknn og leggja inn fyrir einum miða eða jafnvel fleirum. Miðaverðið er að vanda sérlega kómískt aðeins 3.500.-kr. Svo nú er bara að vinda sér í heimabankann.

...
Meira
28.09.2016 - 12:46 | bb.is,Ísafjarðarbær,Vestfirska forlagið

Flateyringar beðnir afsökunar

Flateyri og fjallið Þorfinnur. Ljópsm.: BIB
Flateyri og fjallið Þorfinnur. Ljópsm.: BIB
Bæjarráð Ísafjarðarbæjar biður Flateyringa afsökunar á saurgerlamenguðu vatni á Flateyri fyrr í þessum mánuði. Heilbrigðiseftirlit Vestfjarða tók vatnssýni á Flateyri 31. ágúst og var sýnið sett í ræktun hjá Matís í Reykjavík þann 1. september. Mánudaginn 5. september barst Heilbrigðiseftirlitinu staðfesting á að sýnið væri mengað. Í bréfi framkvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlitsins til bæjarráðs segir að misskilningur hjá starfsmönnum eftirlitsins hafi valdið því að starfsmönnum Ísafjarðarbæjar var ekki gert viðvart um mengunina....
Meira
28.09.2016 - 09:08 | Reykhólavefurinn,Vestfirska forlagið

Lætur af starfi umsjónarmanns

Hlynur Þór Magnússon.
Hlynur Þór Magnússon.

Hlynur Þór Magnússon hefur látið af umsjón með Reykhólavefnum. Hann hefur annast vefinn í átta og hálft ár en af heilsufarsástæðum hefur hann nú óskað eftir lausn frá starfi. Hlynur mun samt liðsinna starfsfólki á skrifstofu Reykhólahrepps óformlega við vefinn eitthvað enn um sinn eftir því sem aðstæður leyfa.


 

...
Meira
28.09.2016 - 08:51 | skutull.is,Vestfirska forlagið

Lilja Rafney efst hjá Vinstri grænum í Norðvesturkjördæmi

Lilja Rafney á fundi á Þingeyri fyrir nokkru.
Lilja Rafney á fundi á Þingeyri fyrir nokkru.
Lilja Rafney Magnúsdóttir alþingismaður varð efst í forvali Vinstri grænna í Norðvesturkjördæmi. Hún hlaut 328 atkvæði í fyrsta sæti, tuttugu atkvæðum meira en Bjarni Jónsson frá Sauðárkróki sem hlaut annað sætið. Í þriðja sæti varð Dagný Rósa Úlfarsdóttir kennari á Skagaströnd og í fjórða Lárus Ástmar Hannesson frá Stykkishólmi. Aðeins munaði 16 atkvæðum á þeim í þriðja sætið. Fimmta og sjötta sæti skipa Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir Kleppjárnsreykjum í Borgarfirði og Rúnar Gíslason úr Borgarnesi....
Meira
27.09.2016 - 07:00 | Vestfirska forlagið,Morgunblaðið

Merkir Íslendingar - Sigtryggur Guðlaugsson

Sigtryggur Guðlaugsson (1862 - 1959)
Sigtryggur Guðlaugsson (1862 - 1959)
Sigtryggur fæddist á Þröm í Garðsárdal 27.9. 1862, sonur Guðlaugs Jóhannessonar, bónda á Þröm, og k.h., Guðnýjar Jónasdóttur.

Guðlaugur var sonur Jóhannesar Bjarnasonar, bónda í Meðalheimi á Svalbarðsströnd, og k.h., Halldóru Bjarnadóttur, en Guðný var dóttir Jónasar Bjarnasonar, bónda á Veturliðastöðum í Fnjóskadal, og k.h., Sigríðar Jónsdóttur.


Fyrri kona Sigtryggs var Ólöf Júlíana Sigtryggsdóttir en hún lést 1902. Seinni kona Sigtryggs var Hjaltlína Margrét Guðjónsdóttir kennari og urðu synir þeirra þjóðþekktir, Hlynur veðurstofustjóri og Þröstur, skipherra í þorskastríðunum á áttunda áratugnum.


Sigtryggur lauk stúdentsprófi frá Lærða skólanum 1894 og embættisprófi í guðfræði frá Prestaskólanum í Reykjavík 1897. Hann kenndi börnum og unglingum í Eyjafirði og í Hálshreppi 1878-87 sem og á námsárum sínum, var barnakennari í Reykjavík og víðar 1897-1905, stofnaði og stjórnaði Lýðháskóla á Ljósavatni 1903-1905, stofnaði ungmennaskólann á Núpi (síðan nefndur Héraðsskólinn á Núpi) árið 1906 og var skólastjóri hans frá stofnun og til 1929.

...
Meira
Stórsmalar íhuga næstu aðgerðir á fjöllum. Frá vinstri. Dagbjartur, Valdimar, Viktor, Sigþór fjallkóngur, Sigríður kona hans, og Gunnar Þór. Ljósm.: H. S.
Stórsmalar íhuga næstu aðgerðir á fjöllum. Frá vinstri. Dagbjartur, Valdimar, Viktor, Sigþór fjallkóngur, Sigríður kona hans, og Gunnar Þór. Ljósm.: H. S.

Aðalfundur Félags fyrirstöðumanna- og kvenna í Vestfirsku Ölpunum var haldinn á Eyri við Arnarfjörð í gær kl. 14,00.  Formaður félagsins, Grelöð Bjartmarsdóttir, setti fundinn og stjórnaði honum með harðri hendi. Þýddi ekkert fyrir menn að vera neitt að röfla á þeim bæ. Kom það fram í máli frúarinnar, að það er ekki tekið út með sitjandi sældinni að vera í fyrirstöðu þegar smalað er hér í vestfirsku fjöllunum.
Svo sagði frúin:


„Hver kannast ekki við setningar eins og þessar:

...
Meira
26.09.2016 - 07:23 | Morgunblaðið,Vestfirska forlagið

26. september 1915 - Minnisvarði af Kristjáni konungi níunda var afhjúpaður

Nær er Kristján níund, konungur Danmerkur og Íslands, framan við Stjórnarráðið í Reykjavík. Fjær er Hannes Hafstein, fyrsti ráðherra Íslands þann 1. febrúar 1904. Ljósm.: BIB
Nær er Kristján níund, konungur Danmerkur og Íslands, framan við Stjórnarráðið í Reykjavík. Fjær er Hannes Hafstein, fyrsti ráðherra Íslands þann 1. febrúar 1904. Ljósm.: BIB

Fyrir sléttu 101 ári þann 26. september 1915 var minnisvarði af Kristjáni konungi níunda afhjúpaður við Stjórnarráðshúsið í Reykjavík (á afmælisdegi Kristjáns tíunda).


Með hægri hendi réttir konungur fram skjal sem á að tákna stjórnarskrána 1874.
Kristján níundi var konungur 1863 - 1906


Blaðið Lögrétta sagði 31. janúar 1906:

...
Meira
Eldri færslur
« Janúar »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31