A A A
  • 1949 - Guðberg Kristján Gunnarsson
  • 1962 - Unnur Cornette Bjarnadóttir
28.09.2016 - 17:11 | Vestfirska forlagið,Komedia,Elfar Logi Hannesson

Gísli á Uppsölum á Þingeyri

Gísli á Uppsölum sýndur í miðstöð leiklistar á Vestfjörðum.
Gísli á Uppsölum sýndur í miðstöð leiklistar á Vestfjörðum.
« 1 af 2 »

Síðasta sunnudag var einleikurinn um Gísla á Uppsölum frumsýndur á söguslóðum. Sýnt var fyrir stappfullri Selárdalskirkju og hlaut verkið afar góðar viðtökur. Nú hefst leikferð okkar um landið og það er við hæfi að skunda yfir í næsta fjörð og hefja þar sýningar. 

Gísli á Uppsölum verður sýndur í Félagsheimilinu á Þingeyri á laugardag 1. október 2016 kl.20. Miðasala er þegar hafin og fer aðeins fram á netinu. Það eina sem þarf að gera er að fara inná heimabanknn og leggja inn fyrir einum miða eða jafnvel fleirum. Miðaverðið er að vanda sérlega kómískt aðeins 3.500.-kr. Svo nú er bara að vinda sér í heimabankann.

 

Reikningur: 0156 26 64

Kennitala: 640401 2650

Miðaverð: 3.500.- kr.

Kaupa má eins marga miða og hver og einn vill.

 

Höfundar handrits eru Bílddælingarnir Elfar Logi Hannesson og Þröstur Leó Gunnarsson. Elfar leikur og Þröstur leikstýrir. Höfundur tónlistar er hinn einlægi og sanni listamaður Svavar Knútur. 


« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31