18.06.2017 - 11:19 | Vestfirska forlagið,Hallgrímur Sveinsson,Björn Ingi Bjarnason
Ársfundur Vestfirska forlagsins
Vestfirska forlagið hélt ársfund á Þingeyri við Dýrafjörð þann 6. júní sl.
Á dagskrá fundarins voru þrjú atriði:
1. Farið yfir útgáfa ársins 2016
2. Stefnumótun vegna útgáfu ársins 2017
3. Þingeyrarvefurinn á árinu 2016Hér á Þingeyrarvefnum verður bráðlega gerð grein fyrir útgáfumálum Vestfirska forlagsins á árinu 2017.
Vestfirska forlagið hefur séð um Þingeyrarvefin í rúm 3 ár. Á árinu 2016 komu á vefinn 863 fréttir sem er að meðaltali 72 fréttir á mánuði.
Vinsælasta og mest metna fréttin var þann 16. september 2016 þegar Halla Ólafsdóttir, fréttamaður RUV á Ísafirði, fékk „hrós dagsins“ frá Þingeyrarvefnum.
Í ljósi þessa var samþykkt á ársfundi Vestfirska forlagsins að færa Höllu Ólafsdóttur veglega bókagjöf frá Vestfirska forlaginu. Gjöfin var afhent að kvöldi þess 6. júní sl. í „Sögu- og menningarhjalli Höllu Ólafsdóttur“ við Þvergötu á Ísafirði.