A A A
13.08.2017 - 11:07 | Vestfirska forlagið,Helga Guðný Kristjánsdóttir,Hallgrímur Sveinsson,Björn Ingi Bjarnason

Rjómaballið að Núpi 26. ágúst

Núpur í Dýrafirði Ljósm.: BIB
Núpur í Dýrafirði Ljósm.: BIB
« 1 af 4 »

Hið árvissa Rjómaball bænda og búaliðs verður að Núpi í Dýrafirði laugardaginn 26. ágúst 2017.


Nánari upplýsingar hjá Helgu í Botni í Súgandafirði s: 894-4512


Sjá nánar á myndum með þessari frétt.

...
Meira
12.08.2017 - 09:13 | Vestfirska forlagið,Morgunblaðið,Hallgrímur Sveinsson,Björn Ingi Bjarnason

Sigurjón Samúelsson - Fæddur 6. febrúar 1936 - Dáinn 4. ágúst 2017 - Minning

Sigurjón Samúelsson (1936 - 2017).
Sigurjón Samúelsson (1936 - 2017).
Sig­ur­jón Samú­els­son, bóndi á Hrafna­björg­um í Ísa­fjarðar­djúpi, fædd­ist á Hrafna­björg­um 6. fe­brú­ar 1936. Hann andaðist eft­ir lang­vinn veik­indi á hjúkr­un­ar­heim­il­inu Eyri á Ísafirði 4. ág­úst 2017.

Sig­ur­jón var elsta barn hjón­anna Samú­els G. Guðmunds­son­ar, bónda á Hrafna­björg­um, og Hild­ar Hjalta­dótt­ur hús­freyju og ljós­móður á Hrafna­björg­um.


Syn­ir Sig­ur­jóns eru:


1. Samú­el Guðmund­ur, f. 1966, vél­stjóri í Reykja­vík, gift­ur Ragn­heiði I. Þórólfs­dótt­ur, hann á með henni tvö börn og á að auki önn­ur tvö börn frá fyrra sam­bandi. 2. Krist­inn Þor­berg­ur, f. 1968, vöru­flutn­inga­bíl­stjóri í Kan­ada, í sam­bandi með Martha Amelia Castillo frá Ecua­dor, þau eru barn­laus en Krist­inn á tvö börn frá fyrra sam­an­di.


Sig­ur­jón ólst upp við hefðbund­in sveita­störf auk starfa á jarðvinnu­tækj­um búnaðarfé­laga Ögur- og Reykja­fjarðar­hreppa, aðallega við tún­rækt­un og vega­gerð. 


...
Meira
12.08.2017 - 07:47 | Vestfirska forlagið,Reykhólavefurinn,Hallgrímur Sveinsson,Björn Ingi Bjarnason

Ólafsdalshátíðin í dag, laugardaginn 12. ágúst 2017

« 1 af 3 »

Dagskrá Ólafsdalshátíðarinnar er að venju fjölbreytt.


Meðal þeirra sem koma fram eru:
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ferðamálaráðherra,  Laddi með grín og glens, Valdimar Guðmundsson syngur, Leikhópurinn Lotta, Nikkólína og margir fleiri.


Grænmetismarkaður Ólafsdalsfélagsins, Ólafsdalshappdrættið.


Handverksfélagið Assa sér um kaffiveitingar og meðlæti. 


Ýtarlegri dagskrá hér á mynd.


Kynnir er Halla Sigríður Steinólfsdóttir.

...
Meira
11.08.2017 - 19:43 | Vestfirska forlagið,Hallgrímur Sveinsson,Björn Ingi Bjarnason,bb.is

Vanþakklátur hvalur í nauðum á Dýrafirði

Hvalabjörgun á Dýrafirði.
Hvalabjörgun á Dýrafirði.
« 1 af 2 »

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar bárust síðdegis í gær upplýsingar frá formanni björgunarsveitar Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Þingeyri að sést hefði til hnúfubaks á Dýrafirði sem virtist vera með veiðafæri flækt utan um sporðinn. Svo virtist sem þetta kæmi í veg fyrir að hann gæti kafað eða synt um.  Varðskipið Þór sem statt var undan Vestfjörðum var sent áleiðis inn á Dýrafjörð til þess að finna hvalinn og freista þess að skera veiðarfærin frá sporði dýrsins.


Rétt fyrir klukkan níu í gærkvöldi komu varðskipsmenn auga á hvalinn utarlega í Dýrafirði og var bátur skipsins sjósettur með nokkrum skipverjum um borð ásamt viðeigandi verkfærum til að skera veiðarfærin.  
Aðgerðin heppnaðist vel því að um 20 mínútum síðar var hvalurinn laus við netadræsuna, netakúlurnar og annað það sem flækst hafði utan um sporðinn.

...
Meira
11.08.2017 - 11:36 | Vestfirska forlagið,Hallgrímur Sveinsson,Björn Ingi Bjarnason,bb.is,Act alone

ATVINNUTÆKIFÆRI LISTAMANNA UTAN HÖFUÐBORGARINNAR

Elfar Logi Hannesson leikari og stjórnandi hátíðarinnar Act Alone. Hér sem Gísli Súrsson.
Elfar Logi Hannesson leikari og stjórnandi hátíðarinnar Act Alone. Hér sem Gísli Súrsson.

Í dag, föstudaginn 11. ágúst 2017, kl. 16:00 hefst á Suðureyri opin ráðstefna um atvinnutækifæri listamanna á landsbyggðinni, ráðstefnan er hluti dagskrár einleikjahátíðarinnar Act alone.


Í umfjöllun um ráðstefnuna á vef Act alone segir.


Þegar fjallað er um atvinnulífið í opinberum skýrslum eða rannsóknum félagsvísindanna koma oftar en ekki í ljós veikleikar sem flestir virðast sammála um að þurfi að lagfæra. Þar er áberandi einhæfni atvinnulífsins, sérstaklega á dreifbýlli svæðum, og lögð áhersla á mikilvægi þess að aukið verði við fjölbreytnina, enda almennt talið að kraftmikið og fjölbreytt atvinnulíf sé grundvöllur þess að ungt fólk vilji setjast að á landsbyggðinni.

...
Meira
11.08.2017 - 11:22 | Vestfirska forlagið,Hallgrímur Sveinsson,Björn Ingi Bjarnason,Bjarni Guðmundsson

Bjarni Guðmundsson....lózaði (h)eldri Akureyringum Borgarfjarðarhringinn

Reykholt í Borgarfurði í gær, 10. ágúst 2017. Ljósm.: Björn Ingi Bjarnason.
Reykholt í Borgarfurði í gær, 10. ágúst 2017. Ljósm.: Björn Ingi Bjarnason.
« 1 af 10 »

Bjarni Guðmundsson.... lózaði (h)eldri Akureyringum Borgarfjarðarhringinn í sólblíðunni (gluggamegin) í gær:


Við Andakílsárfossa: Undraveröld flestum hulin en drullug er áin...
Hestháls: Birkigróið hálendi sem í brún Harðangursheiðar
Lundarreykjadalshringur: Upp laukst fyrir mörgum hve dalurinn er fallegur
Steðji: Bjór drukkinní huganum en rifjuð upp helstu íblöndunarefni.
Ruddi: Annar fegursti útsýnisstaður í Borgarfirði
Hver-inn á Kljreykum: Dæilegur áningarstaður fyrir fótlúið fólk.
Deildartunguhver: Fulltrúar japanska keisaradæmisins mættir. Hvenær verður hætt að framkvæma þar í kringum hverinn???
Reykholt: Með afbrigðum vel hirtar flatir og lendur, velþegin vanhús; Meistarastykkin Guðjóns Sam og Garðars Halld verða brátt innpökkuð í skóg, þá verður gott að eiga myndir af þeim, og ég hættur að gefa mig út sem ferðasögumann...

...
Meira
11.08.2017 - 09:06 | Act alone,Björn Ingi Bjarnason,Hallgrímur Sveinsson,Morgunblaðið,Vestfirska forlagið

18 viðburðir á Act alone

Mikill fjöldi fólks var við upphaf hátíðarinnar í gær. Ljósm.: Gunnhildur Brynjólfsdóttir.
Mikill fjöldi fólks var við upphaf hátíðarinnar í gær. Ljósm.: Gunnhildur Brynjólfsdóttir.
« 1 af 3 »
Einleikjahátiðin Act alone hófst í gær á Suðureyri við Súgandafjörð og stendur yfir til og með 12. ágúst. 
Hátíðin er nú haldin í 14. sinn og eru 18 viðburðir á dagskrá hennar og frítt á þá alla, eins og verið hefur frá upphafi. Opnunarsýning Act alone var frumsýning á leikverkinu Fjallkonan með Heru Fjord. 
Af öðrum leiksýningum má nefna Hún pabbi, Maður sem heitir Ove og Djúpið. 
Einnig verður boðið upp á barnadagskrá þar sem Íslenski fíllinn, Basketball Jones og Búkolla verða í aðalhlutverki.
Tónleikar verða einnig á dagskrá og á þeim koma Ólöf Arnalds og Eyjólfur Kristjánsson fram. 
Ritlist kemur einnig við sögu því Kristín Eiríksdóttir les upp úr og segir frá verki sínu Kok. 
Einnig verður haldið málþingið Atvinnutækifæri listamanna utan höfuðborgarinnar, í samstarfi við Bandalag íslenskra listamanna. Málþingið fer fram í dag kl. 16. 

Dagskrá hátíðarinnar og frekari upplýsingar má finna á vefsíðu hennar, 

www.actalone.net

...
Meira
11.08.2017 - 07:49 | Vestfirska forlagið,Reykhólavefurinn,Hallgrímur Sveinsson,Björn Ingi Bjarnason,bb.is

151 ár frá fæðingu Höllu á Laugabóli

Halla bjó nær öll sín fullorðinsár á Laugabóli í Ísafirði í Ísafjarðardjúpi.
Halla bjó nær öll sín fullorðinsár á Laugabóli í Ísafirði í Ísafjarðardjúpi.
« 1 af 2 »
Í dag, 11. ágúst 2017, eru 151 ár frá fæðingu Hallfríðar Eyjólfsdóttur, eða Höllu á Laugabóli eins og hún er betur þekkt. Halla var á sínum tíma þekkt ljóðskáld, gaf út tvær ljóðabækur; Ljóðmæli sem komu út árið 1919, og Kvæði sem komu út árið 1940, þremur árum eftir andlát hennar. 

Halla fæddist 11. ágúst 1866 í Múla við Gilsfjörð, Austur-Barðastrandarsýslu. Vorið 1886 kvaddi Halla æskustöðvarnar við Gilsfjörðinn tæplega tvítug og hélt norður yfir heiði þar sem hún réðst sem vinnukona að Laugabóli við Ísafjörð innst í Ísafjarðardjúpi. Fáum árum síðar giftist hún Þórði Jónssyni, f. 5.4. 1858, d. 18.10. 1914, syni hjónanna þar Jóns Halldórssonar og Guðrúnar Þórðardóttur. Halla og Þórður eignuðust fjórtán börn en þrjú þeirra misstu þau úr barnaveiki sumarið 1904. 
Þórður og Halla reistu sér fyrst bú á Kirkjubóli í Laugardal 1892 en fimm árum seinna tóku þau við búi foreldra hans á Laugabóli. ...
Meira
Eldri færslur
« Desember »
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31