14.11.2008 - 21:40 | bb.is
Vísisbátur gerður út frá Þingeyri
Vel gengur í hráefnisöflun fyrir fiskvinnsluna Vísi á Þingeyri en línubáturinn Sighvatur GK er gerður út frá staðnum. „Það er mjög gott hljóð í okkur á Þingeyri enda gengur alveg glimrandi vel hjá okkur. Við erum með einn bát úr Vísisflotanum sem er að veiða fyrir okkur hér fyrir vestan og það hefur haldið okkur gangandi frá því að við opnuðum eftir vinnslustoppið", segir Viðar Friðgeirsson, rekstrarstjóri en eins og greint hefur verið frá var tilkynnt í vor að vinnsla myndi stöðvast vegna hráefnisskorts í fimm mánuði. Það fór nú ekki alveg svo illa en fiskvinnslan tók til starfa í lok september eftir þriggja og hálfsmánaða langa vinnslustöðvun....
Meira
Meira