Hjónaball 2008
Hinn síkáti og fjölhæfi veislustjóri verður Benedikt Sigurðsson, sundþjálfari frá Bolungarvík. Jóhannes Oddur matreiðslumeistari mun sjá um kræsingar á borðum og munu Safngripirnir spila fyrir dansi. Húsið mun opna kl. 19:00
Miðaverð fyrir borðhald er kr. 4500. Miðaverð fyrir borðhald og ball er kr. 5900
Gengið verður að venju í hús og skráningar teknar niður 2. og 3. nóvember n.k.
Einnig er hægt að skrá sig hjá Ernu erh9@hi.is og Elsu Maríu elsamaria@snerpa.is
Happdrættið góða verður að venju á sínum stað og eru mjög veglegir vinningar í boði
að þessu sinni.
Það er gaman að gleðjast saman, sjáumst.
Stjórnin
Athugið!
* Aldurstakmark er 18 ára og er miðað við afmælisdag.
* Snyrtilegur klæðnaður er áskilinn.
* Forsala aðgöngumiða verður föstudagskvöldið 7. nóv frá 20 - 22 og laugardag 8. nóv. frá 13 -15.