"Rífandi uppgangur og aukning ferðamanna“
Engin starfsemi verður fram að áramótum, en hestaleigan opnar líklega aftur í janúar og kaffihúsið um páskana.
Engin starfsemi verður fram að áramótum, en hestaleigan opnar líklega aftur í janúar og kaffihúsið um páskana.
Eftir að ljóst varð að Ásbjörn Óttarsson hættir þingmennsku fyrir Sjálfstæðisflokkinn í norðvesturkjördæmi er arftaka hans leitað.
Þar eru einkum tveir nefndir. Dýrfirðingurinn Kristinn Jónasson bæjarstjóri Snæfellsbæjar, er vinsæll og þykir hafa verið farsæll í starfi.
Þá vilja að Ólafur Adolfsson, lyfsali á Akranesi, fari fram. Ólafur var knattspyrnumaður í fremstu röð hjá ÍA og hefur vakið athygli fyrir baráttu gegn lyfsölukeðjunum. Hann var valinn Vestlendingur ársins 2009. Margir telja eðlileg að Skagamenn fái sinn manni í þingmannasveitina.
DÖGUN, stjórnmálasamtök, gera nú víðreist um landsbyggðina. Farkosturinn er gömul ráðherrarúta sem gerð hefur verið upp og sérútbúin til útbreiðslu fagnaðarerinda.
Í ferðinni munu liðsmenn DÖGUNAR kappkosta að kynna nýja stjórnarskrá og hvetja sem flesta til að mæta á kjörstað þann 20. okt. n.k. Rútumálaráðherra er hinn kunni kosningasmali, Guðmundur Jón Sigurðsson, en margir hafa gist þinggeymzlur fyrir hans tilstilli. Meðal farþega ráðherrarútunnar eru Guðjón Arnar Kristinsson, Þóra Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, Þorvaldur Gylfason, formaður SANS, Kristjana Hreinsdóttir, Skerjafjarðarskáld ofl.
Ráðherrarútan verður á Ísafirði sunnudaginn 30. september og býður þeim sem vilja í súpufund í hádeginu í Edinborgarhúsinu. Samkvölda verður hugvekja í Félagsheimilinu á Þingeyri og hefst hún kl. 20:00
Fundum stýrir Lýður Árnason og eru allir velkomnir.
Vegurinn hans Ella Kjaran milli Keldudals í Dýrafirði og Stapadals í Arnarfirði verður sífellt vinsælli.
Þar ganga menn, hjóla, aka og hlaupa og gera allt mögulegt. Í því sambandi hafa mörg nöfn verið tengd vegi þessum.
Það er því tímabært að rifja það upp að vegur sá hefur hlotið nafn og kallast Kjaransbraut og ætti að teljast nokkuð eðlilegt.
Töðugjöld eldri borgara á norðanverðum Vestfjörðum verða haldin að Núpi í Dýrfirði 19. september 2012.
Matur, skemmtun og dans frá klukkan 18:00 - 22:00, fer eftir stemmnigu .
Upplýsingar og þátttökuskráningar eru hjá Grétari Þórðarsyni í síma 844-5970 og 891 6161, Guðmundi B. Hagalínssyni í síma 893 2693 og hjá Ingibjörgu Guðfinnsdóttir í síma 456-7210. Rútuferðir ef óskað er.
Miðaverð að Núpi 3.500 krónur. Góða skemmtun.
.