Klungur og sandar safaríkustu leiðirnar
...
Meira
Erlendir sýningargestir ættu að greiða aðgangseyri
Það er borðleggjandi að Ísland á sér enga hliðstæðu í víðri veröld. Ábyrgð okkar Íslendinga er mikil að varðveita landið sem við höfum að láni. Og það er mikil áhætta að hleypa útlendingum milljónum saman meira og minna eftirlitslaust hér inn í okkar stóra og mikla listasal náttúrunnar. Við verðum að stýra þeim af festu ef ekki á illa að fara. Til þess þarf uppbyggingu af ýmsu tagi. Til að standa undir henni verða stjórnvöld að innheimta aðgangseyri að salnum.
...Úr kurteisisheimsókn til Suðureyrar í Súgandafirði
3. þáttur
Einhver nafnkunnasti maður á Suðureyri á 20. öld var Sturla Jónsson hreppstjóri. Við stöldruðum við hús hans. Sturla var eftirminnilegur persónuleiki. Hann var mikill baráttumaður fyrir Súgandafjörð. Hann sagði oft á þingum og vitnaði þá til þeirra dönsku:“Súgandafjörður besejles ikke.“ Ekki er siglt til Súgandafjarðar. Þetta taldi hann vott þess hversu staðurinn hafði oft verið afskiptur. Notaði það óspart til að fá menn í lið með sér í ýmsum baráttumálum Súgfirðinga. Vitnum nú aftur í Ólaf Þ. Þórðarson, alþingismann, þegar hann minntist vinar síns í Mbl. 12/10 1996:
Gamla myndin
Við beitingaskúr á Flateyri rétt um eða eftir árið 1945.
Frá vinstri: Kristján Sigurðsson, Hermann Kristjánsson, Jón Salómon Jónsson, Ólafur Hafliðason, Eiríkur Ásgeirsson, (bak við hann eru sennilega Jóhannes Andrésson og Sigurður Björnsson), Haraldur Magnússon, Sigurmundur Þóroddsson og Þorlákur Bernharðsson.
Úr kurteisisheimsókn til Suðureyrar í Súgandafirði
2. þáttur
Brjóturinn er þekkt hafnarmannvirki yzt á Suðureyri. Hann þjónar nú ekki lengur sem slíkur og má muna sinn fífil fegurri. Ólafur Þ. Þórðarson, alþingismaður, segir svo í minningarorðum í Mbl. 12/10 1996 um Sturlu Jónsson hreppstjóra, sem segja má að hafi verið einn nafnkenndasti Súgfirðingur á 20. öld:
Úthlutunarnefnd Uppbyggingarsjóðs Vestfjarða hefur lokið við að fara yfir umsóknir um styrki vegna ársins 2015 og stjórn Fjórðungssambands Vestfirðinga hefur staðfest tillögu nefndarinnar um úthlutun.
Að þessu sinni voru samtals 60 milljónir til úthlutunar til margvíslegra verkefna og uppbyggingar víða um Vestfirði. Umsóknir voru fjölbreyttar og mörg verkefni afar áhugaverð.
...
Í dag fórum við í snöggt sumarfrí til Suðureyrar í Súgandafirði. Er það svolítið í stíl við það þegar Erlendur í Unuhúsi og verkamenn við höfnina í Reykjavík og fleiri fóru í 2-3 daga sumarfrí til Hafnarfjarðar í gamla daga.
Það er virkilega gaman að koma niður í Súgandafjörð. Túnin hjá frúnni í Botni eru að vísu enn bara með grænum lit. Spretta ekki mikil að sjá 20. júlí. Vonandi stendur það þó til bóta. Það er allt seint á ferðinni hér vestra núna. Við ökum til Suðureyrar í þessari fínu rigningu. Það sem fyrst birtist manni og er áberandi í plássinu er þjónustufyrirtækið Fisherman.
...