A A A
  • 1973 - Björn Henry Kristjánsson
  • 1999 - Friðfinnur Sigurður Sigurðsson
19.05.2017 - 11:29 | Vestfirska forlagið,Morgunblaðið,Björn Ingi Bjarnason

Merkir Íslendingar - Ásgeir Hannes Eiríksson

Ásgeir Hannes Eiríksson (1947 - 2015).
Ásgeir Hannes Eiríksson (1947 - 2015).
« 1 af 2 »
Ásgeir Hann­es Ei­ríks­son fædd­ist í Reykja­vík 19. maí 1947.

For­eldr­ar hans voru Ei­rík­ur Ket­ils­son stór­kaupmaður og Sig­ríður Ásgeirs­dótt­ir lög­fræðing­ur.


Móðir Ei­ríks var Guðrún Ei­ríks­dótt­ir, veit­inga­kona í Reykja­vík og hót­eleig­andi í Hafnar­f­irði, frá Járn­gerðar­stöðum, en Sig­ríður var dótt­ir Ásgeirs Þor­steins­son­ar, efna­verk­fræðings og for­stjóra, og El­ín­ar Jó­hönnu Guðrún­ar, dótt­ur Hann­es­ar Haf­stein, skálds og ráðherra, og k.h., Ragn­heiðar Haf­stein.

...
Meira
19.05.2017 - 09:01 | Vestfirska forlagið,Björn Ingi Bjarnason,bb.is

BÆVERSKUR LAUFSKÓGUR DAFNAR Á ÞINGEYRI

Frá gróðursetningu á Þingeyri. F.v. Gísli Halldór Halldórsson bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, Gerður Eðvarsdóttir, Erich Püttner bæjarstjóri Kaufering og Ludwig Pertl.
Frá gróðursetningu á Þingeyri. F.v. Gísli Halldór Halldórsson bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, Gerður Eðvarsdóttir, Erich Püttner bæjarstjóri Kaufering og Ludwig Pertl.
Vinabæjarsamstarf Ísafjarðarbæjar og Kaufering í Þýskalandi er um margt merkilegt. Einn þáttur í því sem ekki hefur farið hátt er er elja skógræktarmanna í báðum sveitarfélögum. Þeir Ludwig Pertl frá Kaufering og Sæmundur Þorvaldsson frá Læk í Dýrafirði hafa síðustu ár unnið að ræktun skógar fyrir ofan Þingeyri og sömuleiðis hefur verið plantað samanburðarskógi í Kaufering.

Í aðsendri grein Ludwig Pertl í gær segir hann að þar eð hingað til hafi aðallega barrtré verið flutt til Íslands var ákveðið að bæta nú við lauftrjám til að auka frjósemi jarðvegsins....
Meira
18.05.2017 - 10:46 | Vestfirska forlagið,Björn Ingi Bjarnason,bb.is

VORSÝNING NEMENDA Á LISTA- OG NÝSKÖPUNARBRAUT

Edinborgarhúsið glæsilega á Ísafirði sem Dýrfirðingurinn Rögnvaldur Ólafsson teiknaði.
Edinborgarhúsið glæsilega á Ísafirði sem Dýrfirðingurinn Rögnvaldur Ólafsson teiknaði.
Vorsýning nema á Lista- og Nýsköpunarbraut Menntaskólans á Ísafirði, verður haldin á ganginum í Edinborgarhúsinu í dag, fimmtudaginn 18. maí 2017,, klukkan 17.

Þar gefur að líta afrakstur nemanda úr margmiðlun- og listaáföngum annarinnar og stendur sýningin aðeins þennan eina dag....
Meira
18.05.2017 - 10:29 | Vestfirska forlagið,Björn Ingi Bjarnason,bb.is

FYRSTA SKIP SUMARSINS Í HÖFN Á ÍSAFIRÐI

Fyrsta skip sumarsins Ocean Diamond lagðist að bryggju á Ísafirði í morgun. Ljósm.: Guðbjörg Kristín Haraldsdóttir.
Fyrsta skip sumarsins Ocean Diamond lagðist að bryggju á Ísafirði í morgun. Ljósm.: Guðbjörg Kristín Haraldsdóttir.
« 1 af 2 »

Fyrsta skip sumarsins Ocean Diamond lagðist að bryggju á Ísafirði í morgun.
Koma skipsins markar upphaf skemmtiferðaskipavertíðarinnar þetta árið sem mun standa fram til 22.  september er Ocean Diamond lokar henni aftur, reyndar með annað skip, Hanseatic, sér til fulltingis þann daginn. Það er ferðaskrifstofan Iceland ProCruises, sem er með Ocean Diamond á leigu og er Reykjavík heimahöfn þess.


Von er á yfir 100 skipum til Ísafjarðar í sumar og hafa þau aldrei vera fleiri.

...
Meira
18.05.2017 - 06:53 | Vestfirska forlagið,Morgunblaðið,Björn Ingi Bjarnason

„Alltaf langað að eiga langspil“

Langspilið smíðaði Jón Sigurðson á Þingeyri.
Langspilið smíðaði Jón Sigurðson á Þingeyri.
Barði Jóhannsson hlýtur Langspilið þetta árið
Tónlistarmaðurinn Barði Jóhannsson hlaut í fyrradag Langspilið, verðlaun Sambands tónskálda og eigenda flutningsréttar (STEF), en þau hlýtur höfundur sem hefur skarað fram úr og náð eftirtektarverðum árangri á síðastliðnu ári, að mati sambandsins.

Verðlaunagripurinn er íslenskt langspil sem er sérstaklega smíðað fyrir STEF af Jóni Sigurðssyni á Þingeyri.

Barði er meðal annars meðlimur í hljómsveitunum Bang Gang, Lady & Bird og Starwalkers. Langspilið var veitt í þriðja sinn í fyrradag en fyrri verðlaunahafar eru Ólafur Arnalds og Ásgeir Trausti....
Meira
18.05.2017 - 06:06 | Vestfirska forlagið,Safnahúsið á Ísafirði,Björn Ingi Bjarnason

18. maí 2017 - Alþjóðlegi safnadagurinn á Íslandi

Safnahúsið á Ísafirði.
Safnahúsið á Ísafirði.

Alþjóðlegi safnadagurinn verður haldinn hátíðlegur í dag,  18. maí 2017 og munu söfn víðsvegar um landið bjóða upp á sérstaka dagskrá í tilefni dagsins. Markmið alþjóðlega safnadagsins er að kynna og efla safnastarf í heiminum. Yfirskriftin fyrir árið 2017 er:
Söfn og umdeild saga: Að segja það sem ekki má segja í söfnum.


Dagskráin á Íslandi:

...
Meira
17.05.2017 - 13:45 | Vestfirska forlagið,Morgunblaðið,Björn Ingi Bjarnason

Merkir Íslendingar - Bjarni Pálsson

Nes­stofa. - Fyrsta lækna­set­ur og lyfja­búð lands­ins.
Nes­stofa. - Fyrsta lækna­set­ur og lyfja­búð lands­ins.
Bjarni Páls­son land­lækn­ir fædd­ist á Ups­um á Upsa­strönd 17. maí 1719, son­ur Páls Bjarna­son­ar, prests á Ups­um, og k.h., Sig­ríðar Ásmunds­dótt­ur hús­freyju.

Eig­in­kona Bjarna var Rann­veig, dótt­ir Skúla Magnús­son­ar, land­fógeta við Viðey, og k.h., Stein­unn­ar Björns­dótt­ur Thorlacius.
Meðal barna Bjarna og Rann­veig­ar voru Stein­unn, hús­freyja á Hlíðar­enda, kona Vig­fús­ar Þór­ar­ins­son­ar sýslu­manns og móðir Bjarna Thor­ar­en­sen, skálds og amt­manns; Skúli lyfja­fræðinemi sem tal­inn er hafa lát­ist í Kína; Eggert, prest­ur í Staf­holti, og Þór­unn, kona Sveins Páls­son­ar, nátt­úru­fræðings og héraðslækn­is.


Bjarni út­skrifaðist úr Hóla­skóla 1945, lagði síðan stund á nátt­úru­fræði og lækn­is­fræði við Hafn­ar­há­skóla, lauk bacc.phil.-prófi 1748 og ex.med.-prófi „með efsta æru­titli“ 1759.

...
Meira
17.05.2017 - 08:00 | Björn Ingi Bjarnason,Morgunblaðið,Vestfirska forlagið

Fá fjórða bátinn í hvalaskoðun

Magnús Guðjóns­son, skip­stjóri og framkvæmdastjóri fyrirtækisins. Magnús er f.v. kaupfélagsstjóri á Þingeyri.
Magnús Guðjóns­son, skip­stjóri og framkvæmdastjóri fyrirtækisins. Magnús er f.v. kaupfélagsstjóri á Þingeyri.
« 1 af 2 »
Nýr hvala­skoðun­ar­bát­ur í eigu hvala­skoðun­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Ambassa­dor kom til hafn­ar á Ak­ur­eyri seint í fyrra­kvöld. „Við vor­um rétt tæpa tvo sól­ar­hringa á 910 sjó­mílna leið okk­ar frá Ber­gen í Nor­egi sem verður að telj­ast býsna gott,“ sagði Magnús Guðjóns­son, skip­stjóri og einn eig­enda fyr­ir­tæk­is­ins.

Magnús á von á að bát­ur­inn, sem ber nafnið Konsúll, verði tek­inn í notk­un á næstu tveim­ur vik­um en þetta er fjórði bát­ur­inn sem sinn­ir hvala­skoðun hjá Ambassa­dor.

...
Meira
Eldri færslur
« Janúar »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31