A A A
  • 1973 - Björn Henry Kristjánsson
  • 1999 - Friðfinnur Sigurður Sigurðsson
28.05.2017 - 06:50 | Vestfirska forlagið,Morgunblaðið,Björn Ingi Bjarnason

Merkir Íslendingar - Vilmundur Jónsson

Vilmundur Jónsson (1889 - 1972)
Vilmundur Jónsson (1889 - 1972)
Vilmundur fæddist á Fornustekkum í Nesjahreppi í Vestur-Skaftafellssýslu 28. maí 1889. Foreldrar hans voru Jón Sigurðsson, bóndi á Fornustekkum, og k.h., Guðrún Guðmundsdóttir húsfreyja.

Eiginkona Vilmundar var Kristín Ólafsdóttir læknir og voru börn þeirra Guðrún, húsfreyja, stúdent og prófarkalesari, móðir Þorsteins heimspekings, Vilmundar ráðherra og Þorvalds prófessors Gylfasona; Ólöf, tannsmiður í Reykjavík, móðir Ólafs viðskipafræðings og Kristínar, ritstjóra Fréttablaðsins Þorsteinsbarna, og Þórhallur, prófessor, faðir Guðrúnar dósents,Torfa verkfræðings og Helgu verkfræðings.


Vilmundur lauk stúdentsprófi frá MR 1911, embættisprófi í læknisfræði frá HÍ 1916 og stundaði framhaldsnám m.a. við Rigshospitalet í Kaupmannahöfn og Ullevål Sykehus í Ósló.

...
Meira
27.05.2017 - 20:33 | Björn Ingi Bjarnason,Vestfirska forlagið,Vesturland

30 Vestfjarðabátar á síld 1965

Framnes ÍS 608. Ljósm.: Halldór J. Egilsson.
Framnes ÍS 608. Ljósm.: Halldór J. Egilsson.

Í sumar munu 30 Vestfjarðabátar stunda síldveiðar á miðunum fyrir Norður- og Austurlandi, og er það heldur færra en í fyrra. Nokkrir af minni bátunum, sem gerðir voru út á síld í fyrra, verða nú ýmist á huma r eða línu.


Allmargir vestfirzku bátanna eru þegar komnir á miðin og hafa þegar fengið nokkurn afla, t.d. Helga Guðmundsdóttir, Ólafur Friðbertsson, Guðrún Jónsdóttir og Guðbjartur Kristján 1S 280.


Hér fer á eftir skrá um vestfirzku síldarbátana og skipstjóra þeirra:

...
Meira
26.05.2017 - 06:56 | Björn Ingi Bjarnason,Morgunblaðið,Vestfirska forlagið

Merkir Íslendingar - Héðinn Valdimarsson

Héðinn Valdimarsson (1892 - 1948)
Héðinn Valdimarsson (1892 - 1948)
Héðinn Valdi­mars­son fædd­ist í Reykja­vík 26. maí 1892. 
For­eld­ar hans voru Valdi­mar Ásmunds­son, rit­stjóri Fjall­kon­unn­ar, og Bríet Héðins­dótt­ir, bæj­ar­full­trúi og kven­rétt­inda­frömuður.

Syst­ir Héðins var Lauf­ey, sem lauk stúd­ents­prófi frá MR, fyrst kvenna, árið 1910, og var formaður Kven­rétt­inda­fé­lags Íslands.


Héðinn var þríkvænt­ur. Önnur kona hans var Gyða Eggerts­dótt­ir Briem og dótt­ir þeirra Katrín, en þriðja kona hans var Guðrún Páls­dótt­ir kenn­ari og dótt­ir þeirra Bríet Héðins­dótt­ir leik­kona.


Héðinn lauk stúd­ents­prófi frá MR 1911 og Cand.polit.-prófi frá Hafn­ar­há­skóla 1917. Hann var skrif­stofu­stjóri Landsversl­un­ar 1917-26, stofnaði og var fram­kvæmda­stjóri Tób­aksversl­un­ar Íslands hf 1926-29, stofnaði Olíu­versl­un Íslands hf. (BP og síðar Olís) 1928 og var for­stjóri henn­ar til æviloka.

...
Meira
26.05.2017 - 06:50 | bb.is,Björn Ingi Bjarnason,Vestfirska forlagið

SVARTFUGLSEGGIN KOMIN

Kári í fiskbúð Sjávarfangs. Ljósm: Ágúst G. Atlason.
Kári í fiskbúð Sjávarfangs. Ljósm: Ágúst G. Atlason.
« 1 af 2 »

Sælkerar á Ísafirði og nágrenni geta tekið gleði sína því Kári Jóhannsson fisksali hefur fengið sendingu af svartfuglseggjum. „Þau eru úr Látrabjargi. Ég kaupi þau af björgunarsveitunum fyrir vestan og þannig er maður líka að styðja gott málefni,“ segir Kári.


Nokkuð er um liðið síðan hætt var að fara í björgin á Hornströndum, en þau sáu Ísfirðingum fyrir eggjum alla tíð. „Þeir segja mér gömlu mennirnir að það voru upp undir 10 þúsund egg sem bara voru seld á Ísafirði. En í þá gömlu góðu daga voru svartfuglseggin á sama verði og hænsnaegg en það er nú heldur breytt,“ segir Kári.

...
Meira
25.05.2017 - 07:57 | bb.is,Björn Ingi Bjarnason,Vestfirska forlagið

MARKAR UPPHAF FRAMKVÆMDA VIÐ DÝRAFJARÐARGÖNG

Það má segja að lagning strengsins marki upphaf framkvæmda við Dýrjafarðargöng og tengdra framkvæmda.
Það má segja að lagning strengsins marki upphaf framkvæmda við Dýrjafarðargöng og tengdra framkvæmda.

Í síðustu viku var fyrsta skóflustunga tekin að lagningu 11 kV háspennustrengs frá spennistöðinni á Skeiði í Dýrafirði inn að gangamunna Dýrafjaðrarganga. Til að byrja með mun strengurinn þjóna verktökum við Dýrafjarðagöng. Það má segja að lagning strengsins marki upphaf framkvæmda við Dýrjafarðargöng og tengdra framkvæmda.


Um er að ræða 11.5 km langan jarðstreng sem sinnir mikilvægu hlutverki vegna vinnubúða og framkvæmda í Dýrafjarðargöngum. Eftir að framkvæmdum við göngin lýkur verður strengurinn nýttur til að flytja raforku frá Mjólká að Þingeyri.

...
Meira
24.05.2017 - 06:21 | Vestfirska forlagið,Morgunblaðið,Björn Ingi Bjarnason

Risaþorskur á sjóstöng

Erlendir sjóstangveiðimenn hópast til Íslands.
Erlendir sjóstangveiðimenn hópast til Íslands.
Tveir þýskir félagar, þeir Markus og Kai, fóru nýlega á Bobby 17 frá Flateyri og dró annar risaþorsk sem sést á myndinni. Hann mældist 148 sentí- metrar og 31,6 kíló. 

„Þeir eru að draga stórþorska, frá 20 og upp í 31,6 kíló, þegar gefur á sjó,“ sagði Róbert Schmidt, rekstrarstjóri Iceland Profishing. „Einn fékk góðan ufsa á sunnudaginn og það er mokveiði á steinbít. Svo slysast með ýsa, karfi og skötuselur. Keppikeflið er að veiða stóra fiska og að fá sem flestar tegundir. 

Við erum með bestu þorskmið heimsins hér rétt fyrir utan.“ Iceland Profishing gerir út sextán frístundabáta frá Suðureyri og Flateyri sem allir heita Bobby....
Meira
23.05.2017 - 06:37 | Vestfirska forlagið,Morgunblaðið,Björn Ingi Bjarnason,bb.is

23. maí 1965 - Danir samþykktu að afhenda íslensku handritin

Þinghhúsið í Kaupmannahöfn - Christiansborg.
Þinghhúsið í Kaupmannahöfn - Christiansborg.
« 1 af 2 »

Þann 23. maí 1965 samþykktu Danir að afhenda íslensku handritin, sem lengi höfðu verið bitbein þjóðanna. 


21. apríl 1971


Danska eftirlitsskipið Vædderen lagðist að hafnarbakkanum framan við Hafnarhúsið í Reykjavík kl. 11.00 þann 21. apríl 1971 og hafði innanborðs Flateyjarbók og Sæmundar-Eddu.


Varðskipið Ægir sigldi til móts við eftirlitsskipið deginum áður og fylgir því til hafnar. Lúðrasveit Reykjavíkur hóf Ieik á hafnarbakkanum kl. 10,30, en skátar og lögreglumenn stáðu heiðursvörð.

...
Meira
22.05.2017 - 21:17 | Vestfirska forlagið,Dagskráin - Fréttablað á Suðurlandi,Björn Ingi Bjarnason

Mugison í Hvíta-húsinu á Selfossi á miðvikudaginn 24. maí 2017

Mugison í Hvíta-húsinu á Selfossi á miðvikudaginn 24. júní 2017
Mugison í Hvíta-húsinu á Selfossi á miðvikudaginn 24. júní 2017
Mugison verður með tónleika í Hvíta-húsinu á Selfossi miðvikudagskvöldið 24. maí næstkomandi. 

Tónleikarnir eru partur af tónleikaröð sem Mugison er með, en hún samanstendur af 9 tónleikum víðs vegar um landið. Mugison og hljómsveit spiluðu á alltof fáum tónleikum þegar þau fylgdu eftir síðustu plötu kappans, Enjoy, fyrir síðustu jól.

Var það mál manna og kvenna að hljómsveitin hafi aldrei hljómað betur. Rósa Sveinsdóttir bættist í hópinn í fyrra og spilar á saxafón. Þá hafa þau Tobbi og Rósa tekið upp á því að radda eins og englakór í fallegu lögunum – og Addi og Guðni halda ballestinni eins og sannir skriðdrekar....
Meira
Eldri færslur
« Janúar »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31