A A A
  • 1902 - fæddist Halldór Laxness
  • 1950 - Ólafía Sigurjónsdóttir
  • 1965 - Kristbjörg Bjarnadóttir
  • 1989 - Harpa Sjöfn Friðfinnsdóttir
  • 1990 - Snorri Karl Birgisson
  • 1998 - Magnús Freyr Jónasson
18.05.2017 - 10:46 | Vestfirska forlagið,Björn Ingi Bjarnason,bb.is

VORSÝNING NEMENDA Á LISTA- OG NÝSKÖPUNARBRAUT

Edinborgarhúsið glæsilega á Ísafirði sem Dýrfirðingurinn Rögnvaldur Ólafsson teiknaði.
Edinborgarhúsið glæsilega á Ísafirði sem Dýrfirðingurinn Rögnvaldur Ólafsson teiknaði.

Vorsýning nema á Lista- og Nýsköpunarbraut Menntaskólans á Ísafirði, verður haldin á ganginum í Edinborgarhúsinu í dag, fimmtudaginn 18. maí 2017,, klukkan 17.

Þar gefur að líta afrakstur nemanda úr margmiðlun- og listaáföngum annarinnar og stendur sýningin aðeins þennan eina dag.

Undanfarinn vetur er sá fyrsti sem kennt er á lista- og nýsköpunarbraut við skólann og er þar lögð áhersla á listir og nýsköpun. Brautin var stofnuð með það í huga að breikka námsframboð skólans og höfða til þeirra nemenda sem sækja um skólavist og hafa sérstakan áhuga á listum og (ný)sköpun.

Brautinni lýkur með framhaldsskólaprófi eftir 120 f-einingar en nemendur geta haldið áfram námi til stúdentsprófs.

 

 

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30