A A A
  • 1973 - Björn Henry Kristjánsson
  • 1999 - Friðfinnur Sigurður Sigurðsson
30.05.2017 - 11:21 | Vestfirska forlagið,Morgunblaðið,Björn Ingi Bjarnason

Suðurverk byrjar eftir hvítasunnu að koma upp vinnubúðum við væntanleg Dýrafjarðargöng

Útsýnið þegar maður kemur út um gangamunnann í Dýrafirði. Ljósm.: Björn Davíðsson.
Útsýnið þegar maður kemur út um gangamunnann í Dýrafirði. Ljósm.: Björn Davíðsson.
Leggja í þetta og sjá hvernig gengur
"Við förum að skoða þetta alvarlega upp úr hvítasunnunni. Við þurfum að byrja á því að koma okkur fyrir á staðnum,“ segir Dofri Eysteinsson, framkvæmdastjóri Suðurverks, sem grafa mun Dýrafjarðargöng ásamt tékkneska fyrirtækinu Metrostav. Dofri segir að nú sé að- allega unnið að því að fá til landsins tæki til að vinna verkið. 
Suðurverk á vinnubúðir í Mjóafirði sem notaðar voru við vegarlagningu þar. Hann segir að byrjað verði á því að flytja þær í Arnarfjörð. Þá geti menn farið að koma sér fyrir, setja upp verkstæði, sprengiefnageymslu og fleira. Sprengigengið kemur frá Metrostav en starfsmenn Suðurverks aka frá þeim grjótinu og vinna ýmis önnur störf. Dofri segir ekki farið að reyna á mönnun verksins en tekur fram að Suðurverk verði ekki með marga menn þar í vetur. 
Grafið úr Arnarfirði ...
Meira
30.05.2017 - 11:14 | Björn Ingi Bjarnason,Fjórðungssamband Vestfirðinga,Reykhólavefurinn,Vestfirska forlagið

Fjórðungsþing samþykkir stofnun Vestfjarðastofu

62. Fjórðungsþing Vestfjarða var haldið í Félagsheimilinu Bolungarvík, miðvikudaginn 24. maí s.l.
62. Fjórðungsþing Vestfjarða var haldið í Félagsheimilinu Bolungarvík, miðvikudaginn 24. maí s.l.

62. Fjórðungsþing Vestfjarða var haldið í Félagsheimilinu Bolungarvík, miðvikudaginn 24. maí s.l.. Þingið sóttu 30 fulltrúar úr sveitarstjórnum á Vestfjörðum. Þingið er nú haldið í annað sinn með breyttu sniði með áherslu á ársfundarmál en málefnaþing eru síðan haldin að hausti.


Mikilsverð mál kölluðu hinsvegar á að vera tekin til umræðu þ.e. stofnun og mótun framtíðarsýnar Vestfjarðastofu og innviðamál. Afgreiddi þingið umboð til stjórnar FV að stofna Vestfjarðastofu með sameiningu starfsemi FV og Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða. Góður rómur var síðan í umræðu um eflingu raforkukerfis á Vestfjörðum, byggingu virkjana og uppbygging flutningskerfis.

...
Meira
30.05.2017 - 08:17 | Vestfirska forlagið,Menntaskólinn á Ísafirði,Hildur Halldórsdóttir,Björn Ingi Bjarnason

Skólaslit og brautskráning Menntaskólans á Ísafirði 2017

Stúdentar.
Stúdentar.
« 1 af 3 »
Laugardaginn 27. maí s.l. var skólanum slitið við hátíðlega athöfn í Ísafjarðarkirkju, að viðstöddu fjölmenni. Alls voru brautskráðir 52 nemendur. Átta nemendur luku A-námi vélstjórnar og sjö nemendur luku B-námi. Einn sjúkraliði var brautskráður og fimm stálsmiðir. Þá voru brautskráðir 32 stúdentar. Þar af luku 10 nemendur stúdentsprófi af félagsfræðabraut og tveir af félagsvísindabraut. Einn lauk stúdentsprófi af opinni stúdentsprófsbraut og 16 af náttúrufræðibraut. Tveir nemendur luku viðbótarnámi til stúdentsprófs og einn nemandi lauk prófi af starfsbraut....
Meira
30.05.2017 - 06:53 | Björn Ingi Bjarnason,Fréttablaðið,Vestfirska forlagið

30. maí 1851 - Jón Sigurðsson verður forseti

Jón Sigurðsson (1811 - 1879).
Jón Sigurðsson (1811 - 1879).
« 1 af 2 »
Þann 30. maí 1851 var Jón Sigurðsson kosinn forseti Kaupmannahafnardeildar Hins íslenska bókmenntafélags og gegnir þeirri stöðu til dauðadags. 

Af því var hann jafnan nefndur Jón forseti. 

Um skeið var hann einnig forseti Alþingis....
Meira
29.05.2017 - 19:40 | Vestfirska forlagið,Morgunblaðið,Björn Ingi Bjarnason

Merkir Íslendingar - Einar Ingimundarson

Einar Ingimundarson (1917 - 1996).
Einar Ingimundarson (1917 - 1996).
Ein­ar Ingi­mund­ar­son fædd­ist í Kaldár­holti í Holt­um, Rang., 29. maí 1917. For­eldr­ar hans voru Ingi­mund­ur Bene­dikts­son, f. 1871, d. 1949, bóndi þar, og k.h. Ing­veld­ur Ein­ars­dótt­ir, f. 1874, d. 1953, hús­móðir, syst­ir Ei­ríks Ein­ars­son­ar alþing­is­manns, föður­syst­ir Steinþórs Gests­son­ar alþing­is­manns.

Eitt systkina Ein­ars var Helga, föður­amma Bjarna Bene­dikts­son­ar for­sæt­is­ráðherra.


Ein­ar lauk stúd­ents­prófi frá MR 1938, lög­fræðiprófi frá HÍ 1944 og varð héraðsdóms­lögmaður 1949.

...
Meira
29.05.2017 - 17:06 | Björn Ingi Bjarnason,bb.is,Vestfirska forlagið

UPPBYGGINGARSJÓÐUR ÚTHLUTAR 13 MILLJÓNUM

3.500.000 kr. - Félag um lýðháskóla á Flateyri.
3.500.000 kr. - Félag um lýðháskóla á Flateyri.

Ellefu menningar- og nýsköpunarverkefni fengu á dögunum styrk úr Uppbyggingarsjóði Vestfjarða. Um aukaúthlutun var að ræða, en aðalúthlutun sjóðsins var í janúar. Úthlutunarnefnd, sem er skipuð níu manns víðsvegar að úr fjórðungnum, átti ekki auðvelt verk fyrir höndum, því 52 umsóknir bárust. Næsta úthlutun verður svo væntanlega auglýst í nóvember, en það er aðalúthlutun fyrir árið 2018.


Verkefni sem sjóðurinn styrkir eru:

...
Meira
29.05.2017 - 07:45 | Vestfirska forlagið,Morgunblaðið,Björn Ingi Bjarnason

100 ár frá fæðingu John F. Kennedy • Næstyngsti forseti í sögu Bandaríkjanna

John F. Kennedy (1917 - 1963).
John F. Kennedy (1917 - 1963).
Í dag, 29. maí 2017,  eru 100 ár liðin frá fæðingu John F. Kenn­e­dy sem gegndi embætti for­seta Banda­ríkj­anna á ár­un­um 1961-1963. Kenn­e­dy var kjör­inn 35. for­seti Banda­ríkj­anna og varð um leið næstyngsti for­seti í sögu Banda­ríkj­anna þegar hann hafði bet­ur gegn re­públi­kan­an­um Rich­ard M. Nixon. 

Áður hafði Kenn­e­dy setið í öld­unga­deild Banda­ríkjaþings fyr­ir hönd Massachusetts-rík­is. Þrátt fyr­ir að skil­greina sig sem demó­krata var eitt helsta stefnu­mál hans lækk­un skatta. Hann taldi að með skatta­lækk­un­um mætti örva hag­vöxt....
Meira
28.05.2017 - 20:36 | Vestfirska forlagið,Hallgrímur Sveinsson

Hugsað í fjárhúsunum: - Er Ómar Þ. Ragnarsson fjölhæfasti Íslendingur fyrr og síðar?

Ómar Þ. Ragnarsson.
Ómar Þ. Ragnarsson.
Um daginn vorum við að nefna Hemma Gunn. Að hann væri meistari sjónvarpsviðtalsins innanhúss eða í setti sem kallað er. Hitt fer svo varla á milli mála að meistari vettvangsviðtala í íslensku sjónvarpi er auðvitað vinur hans, Ómar Þ. Ragnarsson.
 
Þessir félagar báðir hafa hitt íslenska þjóðarsál beint í hjartastað. Hvor á sinn hátt, en þó merkilega líkir karakterar að mörgu leyti. Hemmi, sjónvarpsstjarnan, en auk þess ógleymanlegur íþróttamaður. Ómar, frétta-og sjónvarpsstjarnan, en einnig slíkur baráttumaður fyrir Ísland, að vel má kalla einsdæmi. 

...
Meira
Eldri færslur
« Janúar »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31