A A A
  • 1973 - Björn Henry Kristjánsson
  • 1999 - Friðfinnur Sigurður Sigurðsson
08.06.2017 - 14:43 | Dýrafjarðardagar

Dýrafjarðardagar 2017

Simbahöllin á Þingeyri.
Simbahöllin á Þingeyri.

Miðvikudaginn 14. júní verður fundur í Simabahöllinni klukkan 20:15 þar sem helstu dagskráratriði hátíðarinnar verða kynnt.
Allir þeir sem hafa áhuga á að taka þátt og leggja hátíðinni lið eru hvattir til að koma á fundinn.


Margar hendur vinna létt verk.


Hlökkum til að sjá sem flesta


Dýrafjarðardaganefndin

...
Meira
08.06.2017 - 13:05 | Vestfirska forlagið,Hallgrímur Sveinsson

Saga dagsins: - Bæjarfréttir frá Bíldudal

Hafliði Magnússon alþýðulistamaður við fossinn Dynjanda í Arnarfirði. Ljósm.: Björn Ingi Bjarnason.
Hafliði Magnússon alþýðulistamaður við fossinn Dynjanda í Arnarfirði. Ljósm.: Björn Ingi Bjarnason.
« 1 af 2 »

Ekki var alltaf mikið um að menn gætu sagt fréttir eða merk tíðindi er þeir heimsóttu hver annan í þorpinu Bíldudal í gamla daga. Þó var reynt að tína til eitthvert slúður og skröfuðu menn reyndar um eitt og annað sér til gamans.
Ingólfur í Sælundi hafði gaman af að rápa milli húsa til kunningja sinna og fá kaffibolla. Gjarnan heimsótti hann þau hjón Valdemar Ottósson og Lilju í Valshamri og var þar ætíð vel tekið. Kvöld eitt er hann var búinn að sitja þar yfir ilmandi kaffi og tína til fátæklegar bæjarfréttir fannst honum loks kominn tími til að standa upp og kveðja. Hann var kominn út úr húsinu og búinn að loka á eftir sér, þegar hann mundi eftir einni smáfrétt sem honum hafði láðst að flytja. Hann opnaði því dyrnar aftur og kallaði inn:


    Fiddi var að kaupa sér úlpubyrði.


    Svo lokaði hann aftur og fór.

...
Meira
08.06.2017 - 08:18 | Vestfirska forlagið,Björn Ingi Bjarnason,bb.is

FERÐABLAÐIÐ VESTFIRÐIR KOMIÐ Á STJÁ

Vestfirðir, okkar eina sanna ferðablað flýgur nú um sveitir og er fagurt sem aldrei fyrr. Stútfullt blað af fallegum myndum og skemmtilegum og fjölbreyttum fróðleik. Ýtarlegt viðtal við húsráðendur í Breiðuvík, fróðleg grein um einleikjahátíðina Act alone, allt um hlaupahátíðina og um safnið á Nauteyri um Stein Steinar. Nokkrir vel valdir Vestfirðingar segja frá sínum uppáhaldsstöðum og spennandi ferðaþjónustufyrirtæki láta ljós sitt skína. Sauðfjársetrið og Skóbúðin, víkingar og kappar, blaðið er sneisafullt af lesefni.


Ritstjóri blaðsins að þessu sinni er Anna Sigríður Ólafsdóttir.

...
Meira
08.06.2017 - 08:08 | Björn Ingi Bjarnason,Morgunblaðið,Vestfirska forlagið

Rúmlega 44 milljónum króna úthlutað úr -Starfslaunasjóði sjálfstætt starfandi fræðimanna-

19 sjálfstætt starfandi fræðimenn hljóta styrk til starfa.

Stjórn Starfslaunasjóðs sjálfstætt starfandi fræðimanna lauk nýverið úthlutun úr sjóðnum fyrir árið 2017. 

Samkvæmt upplýsingum frá sjóðnum bárust alls 54 umsóknir og hlutu 19 sjálfstætt starfandi fræðimenn styrki úr sjóðnum eða um 35% umsækjenda. 

Sótt var um samtals 414 mánuði eða ríflega 153 milljónir kr. Rúmlega 44 milljónum ísl. kr. var úthlutað í styrki eða tæplega 29% umbeðinnar upphæðar. Konur sóttu um 22 styrki og karlar um 32 styrki. 

Konur sóttu um laun í 183 mánuði og karlar í 231 mánuð, en mánaðarlaunin nema 370 þús. kr. ...
Meira
08.06.2017 - 07:50 | Vestfirska forlagið,Hagþenkir,Björn Ingi Bjarnason

Starfsstyrkir Hagþenkis 2017

Alls bárust 69 umsóknir og af þeim hljóta 29 verkefni styrk.
Alls bárust 69 umsóknir og af þeim hljóta 29 verkefni styrk.
Hagþenkir, félag höfunda fræðirita og kennslugagna auglýsti í apríl eftir umsóknum um starfsstyrki til ritstarfa. Til úthlutunar voru 15 milljónir. Alls bárust 69 umsóknir og af þeim hljóta 29 verkefni styrk. Tvö verkefni hlutu hæsta styrk, kr. 900.000, eitt 800.000 kr. og sjö verkefni hlutu kr. 600.000.
Í úthlutunarráði Hagþenkis 2017 voru þrír félagsmenn: Kristín Svava Tómasdóttir, Salvör Aradóttir og Jón K. Þorvarðarson. 

Eftirfarandi hlutu styrk: ...
Meira
08.06.2017 - 06:06 | Vestfirska forlagið,Blaðið - Vestfirðir,Björn Ingi Bjarnason

Við Djúpið blátt – Ísafjarðardjúp: - Ólína Þorvarðardóttir skrifar árbók Ferðafélags Íslands 2017

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir er höfundur Árbókar Ferðafélags Íslands 2017. Ísafjarðardjúpið er viðfangsefnið að þessu sinni. Ólína er aðeins önnur konan í níutíu ára sögu Ferðafélagsins sem er fengin til þess að skrifa árbókina.
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir er höfundur Árbókar Ferðafélags Íslands 2017. Ísafjarðardjúpið er viðfangsefnið að þessu sinni. Ólína er aðeins önnur konan í níutíu ára sögu Ferðafélagsins sem er fengin til þess að skrifa árbókina.
« 1 af 2 »
Út er komin nítugasta árbók Ferðafélags Íslands. Að þessu sinni er Ísafjarðardjúpið við- fangsefnið. Í árbókinni 1949 var farið um norður Ísafjarðarsýslu, hrepp úr hrepp, en nú er Djúpið sjálft tekið út úr, frá Skálavík til Snæfjallastrandar. Höfundur er dr. Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir þjóðfræðingur. Ólína er þaulkunnug svæðinu og kannaði ýmsar gönguleiðir gagngert fyrir árbókina. Þetta er aðeins í annað sinn sem kona skrifar árbókina í langri sögu Ferðafélags Íslands. 

Ritstjóri Árbókarinnar er Gísli Már Gíslason og sagði hann í ávarpi sínu við kynningu árbókarinnar að Ólína hefði yfirgripsmikla þekkingu á svæðinu og að hún hefði lagt mikið á sig til þess að gera bókina sem best úr garði.

Fram kom í ávarpi Ólínu að árbækur Ferðafélagsins væru samfelld átthagafræði og –saga....
Meira
01.06.2017 - 07:19 | Vestfirska forlagið,Björn Ingi Bjarnason,bb.is

MÝRABOLTINN, VASULKA OG FM BELFAST Á SKJALDBORG

Skrúðgangan á Skjaldborgarhátíðinni er með þeim hressari. Mynd af fésbókarsíðu hátíðarinnar.
Skrúðgangan á Skjaldborgarhátíðinni er með þeim hressari. Mynd af fésbókarsíðu hátíðarinnar.

10 ár eru liðin frá því er heimildarmyndahátíðin Skjaldborg var fyrst haldin á Patreksfirði. Áhugi kvikmyndargerðarfólks á hátíðinni aldrei verið meiri en í ár og fleiri myndir bárust en nokkurn tímann fyrr. Eftir það vandasama verk skipuleggjenda við að velja og hafna stendur eftir stórglæsileg dagskrá sem gestir hátíðarinnar geta notið um komandi helgi.


Það er fjölbreytt flóra mynda sem sýnd verður á hátíðinni í ár, allt frá fullbúnum heimildarmyndum í fullri lengd yfir í verk í vinnslu. 

Meðal þeirra mynda sem sýndar verða á hátíðinni í ár er:

...
Meira
31.05.2017 - 07:00 | Fréttablaðið,Byggðastofnun,Björn Ingi Bjarnason,Vestfirska forlagið

Vilja samstarf um byggð á Þingeyri

Þingeyri við Dýrafjörð.
Þingeyri við Dýrafjörð.
Þingeyri við Dýrafjörð er meðal þeirra byggðarlaga sem skora hæst á mælikvörðum Byggðastofnunar vegna verkefnisins Brothættar byggðir. 
Þetta kemur fram í bréfi til Ísafjarðarbæjar frá Byggðastofnun sem vill bæinn í samstarf um verkefni um Þingeyri. Sótt hafði verið um slíkt fyrir Þingeyri. „Samkvæmt áætlun ætti að vera svigrúm til að taka inn ný byggðarlög á seinni hluta ársins eða byrjun árs 2018,“ segir Byggðastofnun. 
Meðal annars sé tekið tillit til lýðfræðilegra þátta, landfræðilegrar stöðu og stöðu í atvinnulífi....
Meira
Eldri færslur
« Janúar »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31