Gísli á Uppsölum verður á Dýrafjarðardögum
Hin einstaka og rómaða sýning Kómedíuleikhússins um einbúan Gísla á Uppsölum verður á Dýrafjarðardögum í ár. Láttu þessa sýningu ekki framhjá þér fara.
Sýningin er sunnudaginn 2. júlí 2017 kl. 15:00 í Félagsheimilinu á Þingeyri.
Sýningin er innifalin í armbandi Dýrafjarðardaga en miðaverð á sýninguna er 3.500 kr.
Gísli á Uppsölum
Gísli á Uppsölum er einstakt leikverk um einstakan mann. Einn stærsti viðburður íslenskrar sjónvarpssögu er Stiklu þáttur Ómars Ragnarssonar um einbúann Gísla Oktavíus Gíslason. Enn er Gísli landanum kær og hugleikinn. Hér er á ferðinni áhrifamikil sýning sem hefur hrifið áhorfendur líkt og saga söguhetjunnar.
Gísli á leikferð um landið júlí- september:
Lau. 1. júlí kl.16.00 BOLUNGARVÍK/MARKAÐSDAGUR
Sun. 2. júlí kl.15.00 ÞINGEYRI FÉLAGSHEIMILIÐ/DÝRAFJARÐARDAGAR
Sun. 23. júlí kl.17.30 GÍSLASTAÐIR HAUKADAL - UPPSELT
Fim. 10. ágúst kl.22.00 ACT ALONE SUÐUREYRI
Fim. 17. ágúst kl. HELLA
Lau. 19. ágúst kl. DJÚPAVÍK - DJÚPAVÍKURDAGAR
Lau. 9. september kl. GÍSLASTAÐIR HAUKADAL - UPPSELT