A A A
  • 1973 - Björn Henry Kristjánsson
  • 1999 - Friðfinnur Sigurður Sigurðsson
31.07.2017 - 20:43 | Vestfirska forlagið,Hallgrímur Sveinsson,Björn Ingi Bjarnason

Prik fyrir Vegagerðina: - Hlemmivegur frá Hrafnseyri að Dýrafjarðargöngum

Frá Arnarfirði séð í Hrafnseyrardal. Ljósm.: Mats Wibe Lund.
Frá Arnarfirði séð í Hrafnseyrardal. Ljósm.: Mats Wibe Lund.

Nú er aldeilis uppi annar óður! Það er eins og vegurinn frá Hrafnseyri að framkvæmdasvæði Dýrafjarðarganga á Rauðsstöðum og jafnvel inn í Mjólká, sé bara steyptur. Þetta er eins og hver önnur hraðbraut eða Autobahn eins og þeir segja í Þýskalandi.


Gárungarnir segja að þetta sé Búnaðarfélagi Auðkúluhrepps að þakka. Þegar aðalfundur félagsins var haldinn í Mjólkárvirkjun í apríl 2005, þótti við hæfi að bera harpað efni frá Grjóteyri utan Rauðsstaða í slitlag á veginum og alla leið upp á Hrafnseyrardal. Svo bara hefur sprautubíllinn sprautað sjó duglega á veginn í sumar og heflun lukkast vel og allt hvað heiti hefur.


Þetta umrædda vor var meira að segja sett malbik við sitt hvorn endann á einbreiðu brúnum á veginum, sem eru nokkrar. Þannig að nú lenda menn ekki í hinu skylduga hoppi við brýrnar eins og áður, eins og Ómar okkar Ragnarsson orðaði það svo skemmtilega forðum.

...
Meira
31.07.2017 - 17:17 | Björn Ingi Bjarnason,Hallgrímur Sveinsson,Vestfirska forlagið,Lands­sam­band smá­báta­eig­enda

Vilja auka afla­heim­ild­ir í strand­veiðum

Þorvaldur við bryggju á Þingeyri fyrir áratugum. Um borð eru; skipstjórinn Guðmundur Valgeirsson, Ingvar og Höskuldur. Ljósm.: Halldór J. Egilsson/Bátasíða Dýrafjarðar sem er ný síða á Facebook.
Þorvaldur við bryggju á Þingeyri fyrir áratugum. Um borð eru; skipstjórinn Guðmundur Valgeirsson, Ingvar og Höskuldur. Ljósm.: Halldór J. Egilsson/Bátasíða Dýrafjarðar sem er ný síða á Facebook.

Stjórn Lands­sam­bands smá­báta­eig­enda hef­ur farið þess á leit­ir við Þor­gerði Katrínu Gunn­ars­dótt­ur sjáv­ar­út­vegs­ráðherra að aflaviðmiðun til strand­veiða verði hækkuð þannig ekki komi til stöðvun­ar veiða. 


„Strand­veiðar 2017 hafa ekki upp­fyllt þær vænt­ing­ar sem þátt­tak­end­ur gerðu til þeirra,“ seg­ir í álykt­un sem samþykkt var á fundi stjórn­ar LS fyr­ir helgi. „Þrátt fyr­ir að ell­efu pró­sent færri stundi veiðarn­ar í ár en í fyrra, fækk­un um 72 báta, og því meira sem kem­ur í hlut hvers og eins er afla­verðmæti nú fjórðungi lægra en í fyrra. Hrun fisk­verðs og ónæg­ar veiðiheim­ild­ir eru helstu or­saka­vald­arn­ir.“


Í álykt­un­inni bend­ir stjórn­in á að vegna vinnu­stöðvun­ar á fisk­veiðiár­inu verður þorskafli nokkuð und­ir því sem afla­regla ger­ir ráð fyr­ir að veitt verði, 244 þúsund tonn. „Sam­kvæmt töl­um Fiski­stofu var þorskafli á fisk­veiðiár­inu þann 21. júlí 212 þúsund tonn, sem er um 17 þúsund tonn­um minna en á sama tíma á fisk­veiðiár­inu 2015/​2016,“ seg­ir þar.

...
Meira
31.07.2017 - 16:09 | Björn Ingi Bjarnason,Hallgrímur Sveinsson,Stjórnarráðið,Vestfirska forlagið

Jón Gunnarsson heimsótti sveitarstjórnarfulltrúa

Jón Gunnarsson á Patreksfirði í Vesturbyggð.
Jón Gunnarsson á Patreksfirði í Vesturbyggð.

Jón Gunnarsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, hefur undanfarna daga verið á ferð um landið og hitt sveitarstjórnarmenn.
Á þessum óformlegu fundum eru rædd sveitarstjórnar- og byggðamál, svo og samgöngumál.


Undanfarið hefur ráðherra átt fundi með fulltrúum sveitarfélaga á Norðurlandi, Vesturlandi og Vestfjörðum. Hefur hann rætt við sveitarstjórnarmenn Norðurþings, Skútustaðahrepps Dalvíkurbyggðar, Blönduósbæjar, Húnaþings vestra,  Skagastrandar, Vesturbyggðar, Tálknafjarðar, Ísafjarðar, Súðavíkur, Bolungarvíkur, Reykhólahrepps, Dalabyggðar, Stykkishólms, Grundarfjarðar og Snæfellsbæjar. Í næsta mánuði er gert ráð fyrir heimsókn á Austfirði.

...
Meira
31.07.2017 - 07:02 | Vestfirska forlagið,Hallgrímur Sveinsson,Björn Ingi Bjarnason,bb.is

HEIMILDARMYND UM ACT ALONE

« 1 af 2 »

Í kvöld. mánudagskvöldið 31. júlí 2017, mun RUV sýna heimildarmynd um einleikjahátíðina Act alone og hefst hún kl. 22:20. Það er Baldur Páll Hólmgeirsson sem framleiðir og leikstýrir myndinni. Á vef RUV er myndinni lýst svona „Við skyggnumst á bak við tjöldin og fylgjumst með aðstandendum við undirbúning hátíðarinnar.  Einnig eru sýnd brot úr einleikjum og rætt við flytjendur og gesti.


Á vefsíðu Act alone má nálgast glæsilega dagskrá hátíðarinnar sem að þessu sinni er haldin 10-12 ágúst.

Á bb.is var á dögunum frétt um hátíðina og þar má sjá myndir frá hátíðinni undanfarin ár.

...
Meira
30.07.2017 - 17:55 | Vestfirska forlagið,Morgunblaðið,Hallgrímur Sveinsson,Björn Ingi Bjarnason

110 ár frá því Friðrik VIII konungur Danmerkur og Íslands kom til landsins þann 30. júlí 1907

Konungsskipið Birma á Flateyrarhöfn í ágúst 1907. Ljósm.: Hermann Wendel á Þingeyri.
Konungsskipið Birma á Flateyrarhöfn í ágúst 1907. Ljósm.: Hermann Wendel á Þingeyri.
« 1 af 6 »

Friðrik 8., konungur Íslands og Danmerkur, siglir frá Kaupmannahöfn þann 21. júlí 1907 og kemur til Íslands þann 30. júlí og ferðast um Suðurland auk þess að fara til Flateyrar, Ísafjarðar, Akureyrar og Seyðisfjarðar.


Heimsókn Friðriks VIII. Danakonungs til Íslands um sumarið 1907 er merkur atburður í Íslandssögunni. Alþingismannaförin til Danmerkur árið áður og vel heppnuð Íslandsferð konungs og ríkisþingmanna jók gagnkvæm kynni ráðamanna og skýrði sameiginlega hagsmuni. Það má segja að með þessum tveimur heimsóknum hafi hafist samningaferli sem síðar átti eftir að leiða til fullveldis Íslands 1918.


Íslandsheimsókn Friðriks VIII. Danakonungs árið 1907

...
Meira
30.07.2017 - 07:42 | Björn Ingi Bjarnason,Fréttablaðið,Hallgrímur Sveinsson,Vestfirska forlagið

Kristján Davíðsson skrifar: 8. boðorðið

Dýrfirðingurinn Kristján Þ. Davíðsson er framkvæmdastjóri Landssambands fiskeldisstöðva.
Dýrfirðingurinn Kristján Þ. Davíðsson er framkvæmdastjóri Landssambands fiskeldisstöðva.
Séra Gunnlaugur í Heydölum fer með himinskautum í predikun sinni í Fréttablaði þriðjudagsins 25. júlí 2017. Heit trú hans á málstað sinn og þeirra af safnaðarbörnum hans, sem eru handhafar laxveiðiréttinda í ám, hitar honum svo í hamsi að hann gleymir meira að segja einu boðorðanna. 

Í predikun hans eru norskir laxabændur ljótu karlarnir, langt komnir með að leggja náttúru Noregsstranda í rúst og hérlend handbendi þeirra fara nú sem landafjendur um strandlengju Íslands, blindaðir af skærum loga Mammons, tilbúnir að selja náttúru landsins svo rækilega undir sömu örlög og Noreg að nærtækasta samlíkingin sem honum kemur í hug er ekkert minna en kjarnorkuváin. ...
Meira
30.07.2017 - 06:45 | Björn Ingi Bjarnason,Hallgrímur Sveinsson,Vestfirska forlagið

Frá aðalfundi Búnaðarfélags Auðkúluhrepps 2017: - Ekki verði seldur fimmeyringur í Landsbankanum!

Landsbankinn.
Landsbankinn.

Í tilefni hinnar góðu afkomu Landsbankans okkar, er rétt að rifja upp skelegga ályktun aðalfundar Búnaðarfélags Auðkúluhrepps frá í vor:

 

„Aðalfundur Búnðarfélags Auðkúluhrepps krefst þess af Alþingi og ríkisstjórn að ekki verði seldur fimmeyringur í Landsbankanum. Fundurinn telur að alls ekki megi hleypa erlendum fjárglæframönnum og vogunarsjóðum með krumlurnar í sjóði hans.

Það er álit fundarins að Landsbankinn eigi að vera 100% í eigu allra Íslendinga. Viðskiptabanki fyrir venjulegt fólk. Alveg eins og sparisjóðirnir voru. Það þarf að lýsa þessu yfir í eitt skipti fyrir öll fyrir hönd eigendanna. Bankinn á ekki að standa í neinu peningaþvætti.“



30.07.2017 - 06:32 | Vestfirska forlagið,Hallgrímur Sveinsson,Björn Ingi Bjarnason

Gamanmál frá aðalfundi Búnaðarfélags Auðkúluhrepps 7. apríl 2016:- Mikið var hlegið á fundinum!

Mjólkárvirkjun í Arnarfirði.
Mjólkárvirkjun í Arnarfirði.
Aðalfundur Búnaðarfélags Auðkúluhrepps var haldinn í Mjólkárvirkjun 7. apríl 2016. 

Fundarstörf gengu vel fyrir sig og voru menn bara kátir að vanda. Formaður félagsins, Hreinn Þórðarson, stjórnaði fundinum á sinn ljúfa hátt. Ályktanir nokkrar voru samþykktar til að leggja fyrir landsmenn. Undir liðnum önnur mál kom í ljós að mönnum liggur ýmislegt á hjarta í Auðkúluhreppi hinum forna. Ekki var það nú allt fært til bókar en þó sumt og skal nú stiklað á stóru í þeim efnum....
Meira
Eldri færslur
« Janúar »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31